Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 16
16 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
STjóRnMál Margrét Sverrisdóttir
segir Guðjón Arnar Kristjánsson,
formann Frjálslynda flokksins,
hafa leikið af sér með stuðnings-
yfirlýsingu við Magnús Þór Haf-
steinsson í varaformannsembætti
flokksins í hádegisfréttum Stöðv-
ar 2 í gær. Hún hafi nú enga sér-
staka ástæðu til að fara ekki alla
leið gegn Guðjóni í formannsfram-
boð, en hún tilkynnti í fyrradag að
hún sæktist eftir varaformann-
sembætti Magnúsar.
„Mér finnst það ansi harkalegt
að Guðjón sé ekki bara hlutlaus í
þessu og leyfi okkur að taka þennan
slag á eigin forsendum. Ef það er
búið að mynda svona kosninga-
bandalag er það bara til að fella mig
og ef ég á að hlaupa á þennan vegg,
þá get ég alveg eins farið alla leið.“
Margrét segir þetta líkt kjafts-
höggi, því hún hafi með framboði
sínu verið að rétta fram sáttar-
hönd til formannsins. „Þeir greini-
lega vanmeta þá sem fylgja mér
og nú hefur Guðjón gerst sekur
um röð afleikja. Formaðurinn er
að kasta stríðshanskanum og mér
finnst hann stefna flokknum lóð-
beint í klofning með þessari
afdráttarlausu og óþörfu yfirlýs-
ingu.“ Margrét hefur ekki tekið
endanlega ákvörðun en talar um
„snarbreytta stöðu“ sína.
Guðjón Arnar segir lífssýn sína
hafa ráðið úrslitum. Hann standi
með sinni áhöfn. „Magnús hefur
staðið sig vel sem varaformaður
og fer vaxandi. Ef maður hefur
góða áhöfn á maður auðvitað ekki
að lýsa því yfir að maður sé í vafa
með áhöfn sína og hefði Margrét
verið í hans sporum síðustu fjögur
árin hefði ég örugglega stutt
hana.
Hins vegar er öllum frjálst að
bjóða sig fram og það er hlutverk
landsþingsins að kjósa í allar stöð-
ur. Margrét er búin að vinna fyrir
okkur í flokknum í mörg ár og
hefur gegnt fjölda af trúnaðar-
stöðum. Ég er ekki að segja að hún
standi sig illa. Ég er bara að segja
fólki að ég hef góðan stýrimann og
ég sé enga ástæðu til að vera að
skipta honum út.“
Guðjón vill lítið gefa fyrir hugs-
anlegan klofning og segir það
vera „einkennilega framsetningu
að tala um klofning þótt einhver
fari í framboð og fái ekki það emb-
ætti sem sóst var eftir“.
klemens@frettabladid.is
Margrét íhug-
ar framboð
til formanns
Margrét Sverrisdóttir segir Guðjón Arnar hafa kast-
að stríðshanskanum með stuðningsyfirlýsingu sinni
við Magnús Þór. Staða hennar sé nú snarbreytt.
Margrét
SverriSdóttir
Útilokar ekki að
hún fari „alla
leið“ og bjóði
sig fram gegn
Guðjóni Arnari,
formanni flokks-
ins. Hann hafi
fúlsað við útréttri
sáttarhönd.
FréttAblAðið/teitur
Ef ég á að hlaupa á
þennan vegg, þá get ég
alveg eins farið alla leið.
MargrétSverriSdóttir
Katrín Edda Svansdóttir
- sölumaður í þjónustuveri RVR
V
62
22
B
Skrifstofuvörur
á janúartilboði
Bréfabindi A4,
5cm og 8cm kjölur.
148kr.
Mopak ljósritunarpappír,
5x500 blöð í ks.
1.240kr. ks.
Á tilboði
í janúar 2007
Bréfabindi, ljósritunar-pappír, merkipennar,
töflutússar og
veggklukka
Merkipennar,
898kr. pk.
bláir, svartir, rauðir
og grænir, 12 stk í pk.
Við minnum ríkisstofnanir og sveitarfélög á eftirtalda rammasamninga:
RK 02.15: Ritföng og skrifstofuvörur. RK 02.01: Ljósritunarpappír.
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
Ú
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
Ú
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
ÚTSA
ÚTSA
ÚTS
Ú
TSALA ÚTSAL
A
ÚTSAL
A
A
A PARNIR
Íslensku
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
vIðURkennInG Guð-
mundur J. Oddsson,
sem starfar við útibú
Logos lögmannsþjón-
ustunnar í Lundúnum,
hefur af breska fag-
tímaritinu The Lawyer
verið valinn einn af 40
athyglisverðustu
erlendu lögfræðingun-
um í Bretlandi.
Segir The Lawyer að
Guðmundur hafi einn
síns liðs komið á fót úti-
búi fyrir Logos í Lundún-
um með það að markmiði
að nýta tækifæri sem
auknar fjárfestingar
Íslendinga í Bretlandi
hafi í för með sér.
„Svo vel hefur gengið
hjá Guðmundi að Logos
hefur nú sent annan lög-
fræðing til Lundúna og
stefnir enn fremur að því
að ráða reynda breska
lögmenn til starfa,“ segir
í The Lawyer. -gar
Íslenskur lögfræðingur vekur eftirtekt í Lundúnum:
Einn athyglisverðra
erlendra lögmanna
guðMundurJ.OddS-
SOnForstöðumaður
útibús lögmanns-
þjónustunnar logos í
london.
peRSónUveRnD Tryggingafélög og
leigubílastöðvar eiga ekki að fá
aðgang að upplýsingum í saka-
skrá. Þetta er niðurstaða Persónu-
verndar, sem Ríkissaksóknari ósk-
aði eftir umsögn frá eftir að
embættinu bárust beiðnir frá
tryggingafélagi og leigubílastöð
sem vildu upplýsingar úr saka-
skránni. Persónuvernd segir Vega-
gerðina en ekki leigubílastöðvar
gefa út atvinnuleyfi til leigubíl-
stjóra og geta fylgst með að þeir
hafi sakavottorð í lagi. Þá verði
ekki séð að almannahagsmunir
standi til þess að tryggingafélög
geti fengið afhentar upplýsingar
úr sakaskrá. -gar
Tryggingafélögum og leigubílastöðvum synjað:
Fá ekki aðgang að sakaskránni
LeigubíLarleigubílastöð fær ekki aðgang að sakaskrá. FréttAblAðið/vilHelm