Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 17

Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 17
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 InDónesíA, AP Dauðsföll sem rakin eru til fuglaflensusmits í heimin- um, frá því það greindist fyrst í mönnum árið 2003, eru nú komin yfir 160 eftir að tvær konur og unglingspiltur dóu úr veikinni á sjúkrahúsi í Djakarta í Indónes- íu. Kínversk yfirvöld hafa einnig tilkynnt um fyrsta dauðsfallið af völdum fuglaflensu síðan í júlí. Og nú hafa japönsk yfirvöld stað- fest að 4.000 kjúklingar á ali- fuglabúi syðst í Japan hefðu drepist úr hinu skæða H5N1- afbrigði fuglaflensuveirunnar. Í Japan er annars aðeins vitað um eitt tilfelli þar sem maður smit- aðist af veirunni, en enginn hefur dáið úr slíku smiti þar í landi. Í Indónesíu eru þetta fyrstu dauðsföllin af völdum fuglaflensu frá því í haust. Að minnsta kosti 60 manns hafa dáið úr veikinni í landinu frá því hið skæða H5N1- afbrigði veirunnar smitaðist fyrst úr alifuglum í menn á árinu 2003. Þetta er meira en þriðjung- ur allra dauðsfalla af völdum veikinnar í heiminum, svo vitað sé. Enn sem komið er berst fugla- flensusmit ekki í menn nema þeir séu í mjög náinni snertingu við sýkta fugla og mannfallið af völd- um veikinnar er aðeins brotabrot af þeim hundruðum þúsunda sem deyja á hverju ári í þróunarlönd- unum úr ýmsum smitsjúkdómum sem auðveldlega væri hægt að lækna. Sérfræðingar í faraldursfræð- um óttast hins vegar að fugla- flensuveiran kunni að stökk- breytast þannig að hún smitist auðveldlega frá manni til manns, en gerist það gæti hún valdið heimsfaraldri sem kostað gæti milljónir manna lífið líkt og spænska veikin svonefnda árið 1918. - aa Fuglaflensa orðin árviss vágestur: Ný dauðsföll í Asíu © GRAPHIC NEWS EDS -- DATA CORRECT AS AT 10:30GMT, J NUARY 10, 2007 CurrentAffairs MED,OVR :Medical BIRD FLU: Third wave claims victim in Indonesia Duncan Mil, Phil Bainbridge, Jordi Bou, Mario Lendvai, Mike Tyler, Julie Mullins (research) GRAPHIC NEWS Adobe Illustrator version 8.01 2 columns by 129mm deep 10/1/2007 WHO 20518 CATEGORY: IPTC CODE: SUBJECT: ARTISTS: ORIGIN: TYPE: SIZE: DATE: SOURCES: GRAPHIC #: STANDARD MEASURES (SAU) Picas 12p5 25p7 38p9 52p 65p1 78.p3 millimetres 52.3 107.7 163.2 219.0 274.4 329.7 © Copyright 2007 Graphic News. Reprint by permission only. The credit “GRAPHIC NEWS” must appear with all uses of this graphic image. 8 Ely Place, London EC1N 6RY, United Kingdom. Tel: +44 (0)20 7404 4270. Fax: +44 (0)20 7404 4290 Width 1 col 2 col 3 col 4 col 5 col 6 col Þriðja bylgja fuglaflensu lætur á sér kræla Fyrsta bylgja: Hröð út- breiðsla í alifuglum í Asíu. Skætt afbrigði veirunnar smitar menn. Af 117 sem vitað er að smitast deyja 64. Önnur bylgja: Smit berst með farfuglum til Quinghai-vatns í Kína í maí 2005 og síðan til Evr- ópu, Afríku og Miðausturlanda. Yfir 90 manns deyja. Þriðja bylgja: Nýtt „Fujian“-afbrigði veir- unnar greinist í Kína, Laos, Malasíu og Víetnam. Heimild: WHO Qinghai Víetnam Kína Tyrkland Írak Heildarfjöldi sýktra: 266 Sýkt svæði jan. - júl. júl. - des. Taíland Kambódía Indónesía Aserbaídsjan Egyptaland Djíbúti 1 maður sýktur Sýktir fuglar fundnir á árinu 2006 2003 2 0 0 4 2 0 0 5 2 0 0 6 Heildarmannfall: 160 17 4 5 10 2 14 42 6 60 ÞýskAlAnD, AP Íhaldsmenn í Bæjaralandi slógu því á frest í gær að gera út um það hvort flokksleiðtoganum og forsætisráðherranum Edmund Stoiber yrði gert að draga sig í hlé. Þrýst er á Stoiber að hætta við að bjóða sig fram til endurkjörs eitt kjörtíma- bilið enn, þegar kosið verður til héraðsþings Bæjaralands á næsta ári, en hinn 65 ára gamli Stoiber hefur farið fyrir héraðsstjórninni óslitið í fjórtán ár. Stuðningur kjósenda við endurtekið framboð Stoibers fer þverrandi í skoðanakönnunum. Ekkert augljóst arftakaefni er þó í sjónmáli. - aa Íhaldsmenn í Bæjaralandi: Þrýst á Stoiber að hætta Edmund StoibEr Skundar á flokksfund CSU í Wildbad Kreuth í gær. fréttablaðið/ap VInnUMARkAðUR Atvinnu- auglýsingar á pólsku skila fleiri umsóknum til auglýsandans en hinar, segir Júlíus Kristjánsson, starfs- mannastjóri Hýsingar, vöruhótels við Skútu- vog. Síðustu helgi auglýsti Júlíus eftir starfsmönn- um í Fréttablaðinu, bæði á íslensku og á pólsku. Umsóknir voru þrjátíu talsins og 25 þeirra voru frá Pól- verjum. Í auglýsingunni var tekið fram að greitt væri yfir taxta Verzlunar- mannafélags Reykjavík- ur. „Við höfum frétt af því að oft sé farið illa með þetta fólk,“ segir Júlíus. „En okkar kerfi er þannig að við veljum ekki eftir þjóðerni, kyni eða aldri. Við veljum og borgum eftir hæfni fólksins.“ - kóþ 25 svöruðu auglýsingu sem var á pólsku: Pólskan virkar vel JúlíuS KriStJánSSon
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.