Fréttablaðið - 18.01.2007, Page 22
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
> Afli í tonnum talið í desembermánuði
Heimild: Hagstofa Íslands
17
.0
38
2006
17
.7
04
2005
41
20069
.1
88
2005
Þorskur LoÐNA
samningaviðræður milli sauðfjárbænda og ríkisins um
nýjan sauðfjársamning standa yfir um þessar mundir, en
núverandi samningur rennur út um næstu áramót.
Hvað er sauðfjársamningur?
Í sem einföldustu máli er sauðfjársamningur samningur
um fjárhagslegan stuðning landbúnaðarráðherra fyrir hönd
ríkisins við Bændasamtök Íslands fyrir hönd sauðfjár-
bænda. Gerður var samningur til sex ára frá 1. janúar 2007.
Hvað felst í þeim samningi sem nú er í gildi?
Í þeim samningi sem nú er í gildi kemur fram að mark-
miðin með samningnum séu að styrkja sauðfjárrækt sem
atvinnugrein og bæta afkomu sauðfjárbænda, að ná fram
aukinni hagræðingu í sauðfjárrækt, að halda jafnvægi milli
framleiðslu og sölu sauðfjárafurða, og að efla fagmennsku,
þekkingu og þróun í sauðfjárrækt ásamt öðru.
Í samningnum sem nú gildir er kveðið á um árlegar
beingreiðslur til bænda upp á 1.740 milljónir króna sem
skiptast hlutfallslega milli framleiðenda eftir fjölda kinda.
Við það bætast jöfnunargreiðslur sem renna til bænda
sem nýlega hafa hafið búskap, eða eru að bæta við sig
umtalsverðum fjölda kinda.
Hvernig kemur útflutningsskyldan inn í sauð-
fjársamninga?
Inni í samningunum er gert ráð fyrir ákveðinni
útflutningsskyldu, það er að bændur skuldbinda
sig til að selja ákveðið hlutfall framleiðslu sinnar á
markaði erlendis. Á síðasta ári voru flutt út um
700 tonn, og var það nokkru minna en árin á
undan. Framleiðendur annarra kjötvara eru ekki
bundnir af svipuðum ákvæðum um útflutnings-
skyldu.
Heimildir herma nú að ríkið vilji fella niður
útflutningsskylduna í þeim samningaviðræðum
sem nú eru í gangi. Andstaða er við það meðal
bænda, enda telja þeir markað fyrir lambakjöt
takmarkaðan hér á landi og óttast breytingar á
því jafnvægi sem verið hefur á markaðinum hér
á landi.
FBL greining: sAuÐFjÁrsAmNINGAr
Ríkisstuðningur við sauðfjárbændur
Ágúst Einars-
son, fyrrverandi
prófessor
við Háskóla
Íslands, tók
í vikunni við
starfi rektors
við Háskólann
á Bifröst.
Hvaða verk-
efni hafa átt
hug þinn og
hjarta?
Ég er kominn á bólakaf við að
stjórna hér skólanum, fara yfir
skipulag, fjármál og námslýsingar og
annað þess háttar þannig að það
hefur verið nóg að gera frá morgni
til kvölds undanfarna daga og
verður áfram.
Hver eru markmiðin?
Við eigum í miklum samskiptum við
útlönd og ég vil auka þau, bæta hér
kennslu og auka rannsóknir.
Verður eitthvað af nýjungum?
já, það fylgja nýjum manni alltaf
nýjungar. Þær munu koma í
ljós smátt og smátt. Ég vil auka
fjarkennslu og samskipti við skóla
hérlendis og erlendis, sérstaklega
við aðra skóla á landsbyggðinni.
skólarnir eru lífakkeri hinna dreifðu
byggða og ég hef áhuga á að það
haldi.
SpURT & SvARAð
nýr rektor á BiFröSt
Vill auka
rannsóknir
ágúSt einarSSon
háskólarektor á
Bifröst
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
og Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands,
undirrituðu samning um
kennslu og rannsóknir við
Háskóla Íslands í síðustu
viku. Um tímamótasamning
er að ræða fyrir starf HÍ.
Vísindamenn einkarekinna
háskóla gagnrýna samning-
inn og vilja að keppt sé um
rannsóknafé á jafnréttis-
grundvelli.
Langtímamarkið Háskóla Íslands
er að komast í hóp hundrað bestu
háskóla heims. Framtíðarsýnin
grundvallast á umfangsmiklu
stefnumótunarstarfi sem hófst
fyrir rúmu ári síðan þar sem
meirihluti starfsmanna skólans og
fjöldi stúdenta lögðust á eitt um að
greina hvert skólinn vildi stefna á
næstu árum og hvernig markmið-
um skyldi náð.
Bláköld staðreynd
Á árunum 2004 og 2005 voru gerð-
ar þrjár umfangsmiklar úttektir á
ólíkum þáttum í starfsemi HÍ. Í
kjölfarið skipuðu fráfarandi rekt-
or, Páll Skúlason, og Kristín Ing-
ólfsdóttir nefnd sumarið 2005 sem
hafði það hlutverk að taka saman
niðurstöður undirbúningsvinnunar
og setja fram tillögur um viðbrögð.
Samhliða hófst vinna á vettvangi
deilda og stjórnsýslu skólans.
Einnig var leitað til fjölmargra sér-
fræðinga innan og utan skólans;
fulltrúa stúdenta í grunn- og fram-
haldsnámi, nýdoktora, fulltrúa
atvinnulífs, menningarlífs, stjórn-
valda og erlendra sérfræðinga.
Við brautskráningu kandídata í
Háskólabíói í febrúar 2006 greindi
rektor HÍ síðan frá því að eftir
samráð við fulltrúa Háskólaráðs
og deildarforseta hefði langtíma-
markmið skólans verið sett um að
gera HÍ að einum af hundrað bestu
háskólum heims. Þessi yfirlýsing
vakti mikla athygli og efasemdir
um getu íslenskrar menntastofn-
unar til að ná slíku markmiði. Það
væri bláköld staðreynd að sam-
keppni milli þjóða á sviði menntun-
ar, rannsókna og nýsköpunar ykist
með hverju árinu og stefnumótun-
in ætti að snúast um að gera skól-
ann að afburða menntastofnun en
markmið um að verða einn af
hundrað bestu væri of háleitt og
þjónaði ekki tilgangi í sjálfu sér.
topp fimm hundruð
Í dag er Háskóli Íslands ekki í hópi
fimm hundruð bestu háskóla heims,
samkvæmt Shanghai Jiao Tong list-
anum (SJT) yfir bestu háskóla
heims. Litlu mun þó muna að skól-
inn komist í þann hóp en um tvö
þúsund skólar eru metnir inn á lista
SJT, sem flestir horfa til varðandi
mat á bestu menntastofnunum sam-
tímans. Bent hefur þó verið á að við
mat á gæðum er mjög horft til gæða
raunvísindadeilda (sérstaklega
verk- og stærðfræðideilda), og birt-
inga greina frá skólunum sem
tengjast slíku námi. Þegar aðrir
mælikvarðar eru notaðir, til dæmis
á gæði félagsfræði- og hugvísinda-
deilda, horfir öðruvísi við. Því hefur
markmið skólans verið gagnrýnt en
undir niðri liggur þó aðeins sá metn-
aður að bæta starf skólans veru-
lega. Markmið um að komast í hóp
hundrað bestu háskóla heims er
ekki verra en hvað annað í slíkri
viðleitni. Kristín Ingólfsdóttir rekt-
or hefur bent á að skólarnir sem
fylla flokk þeirra bestu hafi ekki
komist þangað fyrir tilviljun heldur
sé árangurinn afrakstur markvissr-
ar og metnaðarfullrar mennta-
stefnu sem nú hefur verið lokið við
að móta innan HÍ.
Markmið samningsins
Samningur ríkisins og HÍ felur í
sér að fjárveitingar til rannsókna
þrefaldast á samningstímanum og
aukast framlög til kennslu um 75
prósent samanborið við framlög á
fjárlögum árið 2006. Rannsóknar-
framlög til Háskóla Íslands hækka
með samningnum um 640 milljónir
árlega á tímabilinu 2008 til 2011
eða um tæpa þrjá milljarða í lok
samningstímabilsins.
Í samningnum er meðal annars
stefnt að því að stórefla rannsóknar-
tengt framhaldsnám við Háskólann
með því að fimmfalda fjölda braut-
skráðra doktora og tvöfalda fjölda
brautskráðra meistaranema á samn-
ingstímabilinu. Framboð námskeiða
í framhaldsnámi verður aukið,
meðal annars með auknu samstarfi
við erlenda háskóla. Fjölga á birt-
ingum vísindagreina kennara við
Háskóla Íslands í virtum, alþjóðleg-
um, ritrýndum tímaritum og útgáfu
bóka gefnum út hjá virtum bókaút-
gefendum. Auknum framlögum í
Rannsóknasjóð Háskólans er ætlað
að efla doktorsnám og að undirbúa
umsóknir til alþjóðlegra samkeppn-
issjóða. Jafnframt er gert ráð fyrir
að Háskólinn móti sér skýra stefnu
um fjarkennslu fyrir árslok 2007 og
fjarkennsla verði efld í völdum
greinum. Jafnframt er ætlunin að
auka samstarfið við rannsókna- og
náttúrufræðisetrin á landsbyggð-
inni.
gagnrýni
Ekki er búið að taka ákvörðun um
hvernig viðbótarframlögum til
rannsókna verður varið innan HÍ.
Kristín Ingólfsdóttir segir það
verða vandasamt en tæplega fimm-
tíu rannsóknastofnanir eru starf-
ræktar innan vébanda Háskóla
Íslands. Líklegt er talið að fénu sem
rennur til Háskólans á næstu árum
verði skipt jafnt niður á milli rann-
sóknastofnana innan Háskólans.
Þetta er gagnrýnt og bent á að mun
líklegra til árangurs sé að láta fé
renna í samkeppnissjóði. Vísinda-
menn græði meira á því að sækja
um fé; að keppt sé um peningana og
þeir hæfustu fái styrki því þannig
nýtist rannsóknafé best.
Vísindamenn í Háskólanum í
Reykjavík hafa bent á að eini stóri
íslenski rannsóknasjóðurinn, Rann-
ís, veiti um sex hundruð milljónir í
styrki á ári. Þar er ávallt krafist
mótframlags umsækjenda, oft í
formi launa og aðstöðu til rann-
sókna, en ef því fé sem veitt er til
rannsókna innan HÍ með nýgerðum
samningi yrði veitt í Rannís væri
hægt að losna við kröfuna um mót-
framlag. Þeir benda á að eftir auka-
fjárveitinguna eigi vísindamenn
innan HÍ mun meiri möguleika á
styrkjum úr Rannís en aðrir vís-
indamenn, þar sem þeir fái mót-
framlagið tryggt frá ríkinu. Þetta
skekki myndina því eftir því sem
mótframlagið sé hærra séu vís-
indamenn samkeppnishæfari um
að hljóta styrki úr samkeppnissjóð-
um. Eins er bent á að svo hátt fram-
lag eins og HÍ fær muni gera Rann-
ís erfitt fyrir að sækja fé til þess að
auka samkeppnisstyrki til vísinda-
manna frá því sem nú er.
Flaggskipið
Hvað sem allri gagnrýni líður er
háskólasamfélagið sammála um að
nauðsynlegt hafi verið að stórauka
framlög til rannsókna á háskóla-
stigi. Eins hefur verið bent á að einn
stór alhliða háskóli þurfi að vera til
staðar hér á landi og aukin fjárfram-
lög til hans séu eðlileg; þær beri
ekki að skoða í samhengi við starf
annarra háskóla í landinu eða fjár-
framlög ríkisins til þeirra. Eðlis-
munur á námsframboði og skyldum
menntastofnana sé of mikill til þess.
Hitt er það að vísindamenn innan
háskólanna allra, þar á meðal
Háskóla Íslands, deila um þá leið
sem nú er farin og telja að markmið-
um menntamálayfirvalda yrði frek-
ar náð með því að gefa fleirum tæki-
færi til að nýta rannsóknaféð sem
Háskóli Íslands fær næstu árin.
Tímamót í sögu Háskóla Íslands
HáSkóLi íSLandS stóraukið fé til rannsókna innan HÍ er talið gera skólanum kleift
að ná langtímamarkmiðum sínum. Fjárveitingin hefur verið gagnrýnd með þeim
rökum að slíkir fjármunir nýtist betur í samkeppnissjóði þar sem keppt er um fjár-
magn.
FrÉttAskýrING
Svavar HávarðSSon
svavar@frettabladid.is
10 BeStu HáSkóLar
HeiMS*
1. Harvard usA
2. Cambridge Bretland
3. stanford usA
4. Berkeley usA
5. mIt usA
6. kaliforníu háskóli usA
7. Columbia usA
8. Princeton usA
9. Chicago háskóli usA
10. oxford Bretland
10 BeStu HáSkóLar
eVróPu
1. Cambridge Bretland
2. oxford Bretland
3. Imperial Coll. London Bretland
4. London College Bretland
5. swiss FIt sviss
6. utrecht Hollandi
7. Parísarháskóli Frakklandi
8. karólínska Institutet svíþjóð
9. manchester Bretland
10. münchen Þýskalandi
HáSkóLar á norður-
LönduM á toPP 100
karólínska Institutet (48)
kaupmannahafnarháskóli (56)
Háskólinn í uppsölum (65)
oslóarháskóli (68)
Háskólinn í Helsinki (74)
Háskólinn í Lundi (90)
*Listi shanghai jiao tong