Fréttablaðið - 18.01.2007, Page 24
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR24
hagur heimilanna
Matur & NæriNg Ása guðrún KristjÁnsdóttir, næringarfræðingur
Fyrst þú ert að lesa þetta þá hefurðu
fengið Fréttablaðið. En til vonar
og vara skaltu klippa þetta símanúmer
út og hringja í það ef Fréttablaðið
kemur einhverntímann ekki.
550 5600
Ekkert blað?
- mest lesið
Staðhæfinguna um að
grænmeti sé hollt og gott
þekkja allir. Hollustan er
þó misjafnlega mikil. Í
garðyrkjustöðinni Melum á
Flúðum hefur bóndinn Guð-
jón Birgisson hafist handa
við ræktun tómata sem eiga
að vera hollari en flestir
þeir tómatar sem almenn-
ingur þekkir, og þykja þeir
þó einna hollastir af því
grænmeti sem völ er á.
„Þetta eru kallaðir lýkópen-tómat-
ar,“ segir Guðjón Birgisson garð-
yrkjubóndi þegar hann er spurður
um vöruna. Hann útskýrir því
næst að nafnið dragi tómaturinn
af efninu lýkópeni en það er í
flokki karótína sem þykja öflugt
andoxunarefni. Áhugi á þessu efni
hefur aukist mjög á síðustu árum
vegna þess hve rannsóknir hafa
eindregið bent til þess að neysla
grænmetis hafi áhrif gegn krabba-
meini og hjartasjúkdómum. Efnið
lýkópen kemur þar mjög við sögu
þó enn hafi ekki fengist afdráttar-
lausar sannanir á virkni þess.
Lýkópen gefur tómatinum
rauða litinn og segir Guðjón því
afar mikilvægt að tómötunum sé
gefinn tími til að þroskast og roðna
á tómatplöntunni. Í nýja afbrigð-
inu sem hann hefur til ræktunar
er lýkópenið nær þrefalt meira en
í öðrum tómötum. Þar með eru
kostir þessara tómata ekki upp-
taldir því Guðjón segir þá einnig
mun bragðmeiri en flesta aðra
tómata sem boðið er upp á auk
þess sem þeir eru ræktaðir með
vistvænum aðferðum.
„Við erum tveir í Evrópu sem
ræktum þessa tegund, ég er einn á
Íslandi en hinn er í Hollandi,“
segir Guðjón. Til gamans má geta
þess að í gagnasafni doktor.is
kemur fram að við rannsóknir á
lýkópeni hafi verið sýnt fram á að
í flestum tilfellum var meira af
þessu efni í íslenskum tómötum
heldur en innfluttum.
„Þetta er búið að vera í þrjár
vikur í verslunum og allt búið í
bili. Ég held að helsti markhópur-
inn fyrir þessa vöru séu þeir sem
hugsa um heilsuna en ég held að
matgæðingar sem vilja hafa mikið
bragð af grænmetinu sem þeir
nota taki þessari tegund einnig
fagnandi,“ segir garðyrkjubónd-
inn Guðjón, sem er nú í óða önn að
huga að þessari nýjung í íslenskri
matargerð. karen@frettabladid.is
Tómatar gegn hjartasjúk-
dómum og krabbameini
grænmetis- og
ávaxtaneysla er
lítil hérlendis og
mun minni en
það sem ráðlagt
er, að grænmeti
og ávextir séu
borðaðir fimm
sinnum á dag.
rannsakað
hefur verið hvaða þættir hafa áhrif á
ávaxta- og grænmetisneyslu barna
á Íslandi og niðurstöðurnar sýna
að aðgengi barna að grænmeti og
ávöxtum hefur mest áhrif. Því er
mikilvægt að ávextir og grænmeti
séu til heima og notaðir í skóla,
leikskóla og dagvist. Margir skólar
hafa grænmetis- og ávaxtastund og
það er góð leið til að venja börn á
að borða grænmeti og ávexti oftar.
Það er einnig mikilvægt að barni
finnist það eiga auðvelt með að
borða ávexti og grænmeti ef það vill
það á annað borð. fullorðnir þurfa
því bæði að hafa ávexti og grænmeti
á boðstólum og einnig að kenna
börnum og aðstoða þau við að njóta
þeirra. Það er erfitt fyrir litlar hendur
að taka utan af appelsínu og banana
getur verið erfitt að opna og því
þurfa þau oft hjálp. fyrir yngri börn
er gott að skera ávexti, til dæmis epli
eða perur í litla bita sem þau geta
tínt upp í sig sjálf. smám saman er
svo hægt að kenna þeim að bjarga
sér meira sjálf. Það er ekki sjálfsagt
mál fyrir unga neytendur að leita í
hollustuna og við fullorðnir þurf-
um að hjálpa þeim.
Ávextir eru almennt
aðgengilegri fyrir börn en
grænmeti. grænmeti er
yfirleitt borðað sem hluti af
máltíð og er því enn meira í
höndum foreldra en barnanna
og þar skiptir færni í matreiðslu
líka máli. umhverfi og félagslegir
þættir virðast líka hafa meiri áhrif á
grænmetisneyslu en ávaxtaneyslu,
meðal annars vegna þess að ávaxta-
neysla er almennari.
flest börn vilja frekar hrátt
grænmeti en soðið og auk þess vilja
þau frekar grænmetið eitt og sér
en blandað í salat eða mat. Það er
misjafnt hvaða ávextir og grænmeti
börnum finnst gott en eftir því sem
bragðlaukarnir þroskast geta þau
borðað fleiri tegundir. Það þarf að
fá þau til að smakka grænmetið
nokkrum sinnum til að þau venjist
því, lítið í einu er nóg.
Ávaxta- og græn-
metisneysla foreldra
hefur mikil áhrif á
börn og vinir hafa
líka áhrif, sérstaklega
á stelpur. Vinir hafa
auðvitað meiri áhrif
eftir því sem börnin
eldast en til dæmis meðal ellefu
ára barna hafa foreldrar langmest
áhrif, því börn læra það sem fyrir
þeim er haft. www.mni.is
grænmetis- og ávaxtaneysla barna
guðjóN birgissoN garðyrkjubóNdi segir lýkópen-tómatana höfða til þeirra sem
huga að heilsunni sem og matgæðinga. fréttablaðið/guðjón birgisson
> Meðalverð á kílói af rúsínum
Útgjöldin
fyrir þá sem versla erlendis, hvort sem er í gegnum netverslun eða þegar ferð-
ast er, getur Evrópska neytendaaðstoðin komið að góðum notum, til dæmis ef
varan reynist gölluð.
Eins og fram kemur á heimasíðu neytendasamtakanna ns.is sjá samtökin
um rekstur skrifstofunnar á Íslandi. Ýmsar upplýsingar um neytendaaðstoðina,
ráð til kaupenda og réttindi þeirra má finna á heimasíðu Evrópsku neytendaað-
stoðarinnar á Íslandi ena.is.
n Þjónusta
Evrópsk neytendaaðstoð
„Hver einasti sígarettupakki sem ég hef keypt
í gegnum árin hefur verið afar slæm kaup,“
segir sjónvarpsmaðurinn góðkunni Þórhall-
ur gunnarsson og dæsir við tilhugsunina.
Við lauslega útreikninga kemur í ljós að
Þórhallur hefur eytt um það bil sjö og
hálfri milljón í sígarettupakka í gegnum
tíðina. „ég hef reykt um það bil einn og
hálfan pakka á dag frá því ég var ungling-
ur. Það er víst ekki allt of sniðugt,“ bætir
hann við.
Þórhallur viðurkennir að honum hafi þótt
margar af þeim stundum sem hann átti
með sígarettu í hönd ánægju-
legar en hann hafi nú
hamingjusamlega
snúið baki við þess-
um forna fjandvini
sínum, sígarettunni.
um bestu kaup ævinnar
hefur hann lítið að segja.
„ég held að ég hafi aldrei
á ævinni gert góð kaup.
Verðgildi þess sem ég
kaupi hrynur alltaf strax.
ætli ég verði nú samt ekki
að nefna nikótínnefúðann
sem ég nota núna. Hann
er dýr en mikið óskaplega
hefði ég nú getað gert margt
skemmtilegt við þessar
milljónir sem ég hef eytt í síg-
arettur í gegnum tíðina,“
segir Þórhallur og
stynur þungan
af eftirsjá yfir
verstu kaupum
ævi sinnar.
NEytaNdiNN: ÞórHallur gunnarsson
Hefur eytt milljónum í sígarettur
Það er mikil plága
þegar reykinga-
lykt er í fötum, til
dæmis eftir kaffi-
húsaferð. sérstak-
lega fyrir þau okkar
sem ekki reykja og
eru viðkvæm fyrir
reyk. Þá er þjóðráð
að leggja flíkurnar á heitan og góðan
stað, til dæmis á ofninn. Þá læðist
lyktin úr, þannig að óþarfi er að fara
með flíkina í hreinsun. Margt fólk
reynir nefnilega að viðra fötin sín en
reynslan hefur kennt mér að svona
lykt fer alls ekki úr í kulda. Þetta hefur
gjörbreytt lífi mínu og nú fer ég mun
sjaldnar í hreinsun með fötin!
GoTT HúsRáð
ÚtrEykt föt á ofNiNN
n Ása Björk Ólafsdóttir Fríkirkjuprest-
ur kann ráð við reykingalykt í fötum.
229
267
315
301
HEiMild: Hagstofa Íslands
1996 1999 2002 2005
brotalamir eru á merkingum á matvælum, einkum
varðandi reglur um magnmerkingar á pakkningum og
staðsetningu merkinga á vörunni en einnig um inni-
haldslýsingar, upplýsingar um ábyrgðaraðila og fleiri
atriði sem þarfnast lagfæringa. jónína stefánsdóttir,
sérfræðingur hjá umhverfisstofnun, segir að þetta
eigi sérstaklega við um það að telja innihaldsefni
upp í réttri röð eftir magni og svo að merkja samsett
innihaldsefni í vöru. „Það er ótrúlega mikið sem er að,
þó að manni finnist eiga að vera einfalt að fara eftir
þessum reglum,“ segir jónína stefánsdóttir, sérfræð-
ingur hjá umhverfisstofnun.
reglur um merkingar gilda fyrir öll matvæli og hafa allir framleiðendur
skyldum að gegna við að gefa upplýsingar á aðgengilegan og skiljanlegan hátt.
úrbætur vegna athugasemda eru í ferli og má vænta þess að merkingar verði
lagfærðar.w
n umhverfisstofnun
brotalamir í merkingum
fyrir þá sem eru að íhuga að kaupa sér harðan
disk í tölvu, skjákort eða annað tölvutengt gæti
það verið þess virði að kíkja á vefsíðuna vaktin.is.
Þar má finna verðsamanburð á fjöldanum öllum
á vörum hjá tólf íslenskum söluaðilum. Misjafnt
er hvenær verð hefur síðast verið uppfært, en
nýjasta uppfærslan er samdægurs og hjá sex af
þessum tólf söluaðilum hefur verðið verið uppfært
á þessu ári.
n Þjónusta
Verðvöktun á tölvuvörum
innkaup, verslun, matur,
matvara
file name : dsC_6304.jPg
file size : 1.2Mb (1269440 bytes)
date taken : fšs, 10. jan 2003 0:17:09
image size : 2000 x 1312 pixels
resolution : 300 x 300 dpi
bit depth : 8 bits/channel
Protection attribute : off
Camera id : n/a
Camera : niKon d1H
Quality Mode : finE
Metering Mode : Matrix
Exposure Mode : Manual
speed light : Yes
focal length : 70.0 mm
shutter speed : 1/13 seconds
aperture : f9.0
Exposure Compensation : 0.0 EV
White balance : auto
lens : 70-200 mm f2.8
flash sync Mode : rear Curtain
Exposure difference : +0.2 EV
flexible Program : no
sensitivity : iso640
sharpening : normal
image type : Color
Color Mode : Mode ii (adobe rgb)
Hue adjustment : 3
saturation Control : n/a
tone Compensation : normal
latitude(gPs) : n/a
longitude(gPs) : n/a
altitude(gPs) : n/a