Fréttablaðið - 18.01.2007, Page 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
fasteignir heimili heilsa hús börn nám ferðir matur bílar tíska atvinna brúðkaup tilboð o.fl.
Helen hefur breiðan fatasmekk en dregur línuna við
skófatnað kúasmala.
Helen Svava Helgadóttir hefur lengi haft áhuga á tísku.
Hún hefur gaman af því að kaupa sér vandaðan fatnað en
verslar yfirleitt bara í einni búð í Reykjavík - Kron Kron.
„Mér finnst vanalega bara fínustu fötin þar og er alltaf
ánægðust eftir að hafa verslað í Kron Kron,“ segir hún.
Kjólinn sem Helen klæðist á myndinni er keyptur í Kron
Kron og skórnir líka en þeir eru hannaðir af Vivienne West-
wood, sem er einn af uppáhaldshönnuðum hennar.
Helen Svava fylgist almennt vel með því sem er að ger-
ast í tískuheiminum, bæði í umhverfi sínu og fjölmiðlum.
„Ég fletti blöðum, tek eftir þessu í sjónvarpi og úti á götu,“
segir hún og hvað varðar flottar konur sem hún tekur sér-
staklega eftir nefnir Helen fyrirsætuna Kate Moss og leik-
konuna Chloë Sevigny. „Þær eru báðar mjög flottar og til
fyrirmyndar og Hugrún sem á Kron Kron er alltaf tipp-
topp.“
Fatasmekkur Helenar er breiður, en hún dregur þó lín-
una við kúrekastígvél og segir að hún myndi aldrei ganga í
slíkum skófatnaði. „Og þó... ég þarf að passa mig á því
hvaða yfirlýsingar ég kem með vegna þess að oftast þegar
ég hef sagt eitthvað svona þá fer ég flíkina næsta dag,“
segir hún og hlær.
Maðurinn skapar fötin og fötin skapa manninn. Helen
segist yfirleitt klæða sig eftir líðan og kýs fremur að vera
„þunglynd“ í fínum kjól heldur en stórri hettupeysu. „Ef
mig langar að komast í einhverja ákveðna líðan þá get ég
klætt mig eftir því og ég held að það sé miklu skemmtilegra
að vera fallega klædd í þunglyndiskasti heldur en að vera
púkaleg. Það virkar í það minnsta betur svona út á við.“
mhg@frettabladid.is
Aldrei í kú-
rekastígvél
„Ég held að það sé miklu skemmtilegra að vera fallega klædd í þunglyndiskasti heldur en að vera púkaleg.“
FRÉTTABLAðið/RósA
vefverslunin Army.is býður
upp á herfatnað og fylgihluti.
Útivistarfólk og skotveiðimenn
ættu líka að finna þar eitthvað
við sitt hæfi.
skráning er hafin í Íslandsmót
einstaklinga með forgjöf, en
það fer fram í Keiluhöllinni
dagana 3. til 6. febrúar næst-
komandi. Olíuburður verður sá
sami og hefur verið í deildinni.
sjá www.kli.is
útsala
stendur yfir
í verslun
iKEA að
Kauptúni
4 í Garðabæ en útsölulok
eru 21. janúar næstkomandi.
Á vefsíðunni www.ikea.is er
hægt að skoða brot af því sem
er í boði.
alþjóðlegur jógadagur er 21.
janúar. Jóga verður stundað
milli klukkan 11 og 13 á mis-
munandi tímasvæðum heims
svo það verður samfellt jóga
í 24 klukkustundir umhverfis
jörðina. Laugar bjóða fólki til
þátttöku án greiðslu.
allt hitt
[tíska heilsa heimili]
góðan dag!
í dag er fimmtudagur-
inn 18. janúar, 18. dagur
ársins 2007.
sólarupprás hádegi sólarlag
reykjavík 10.48 13.38 16.29
akureyri 10.52 13.23 15.54
Heitt vatn á innan
við mínútu
Hraðsuðukatlar eru margs
konar að lit og hönnun en
þjóna allir sama hlutverki.
heimili Stjörnum prýddur
gullinn Hnöttur
Tískuspekúlantar sökkva nú
tönnum sínum í fataval stjarn-
anna á rauða dreglinum.
tíska reyna legígræðslu
GEFuR KOnum sEm EKKi GETA ÁTT BöRn nýJA vOn.
Læknar í new
York ætla sér
að græða leg
úr látinni konu
í líffæraþega.
Aðgerðin er
ætluð konum
sem ekki
getað orðið
óléttar vegna
skemmda á
legi.
Áður en kona
fer í aðgerðina er búið að taka egg úr henni og frysta. Þau eru
frjóvguð og komið fyrir í nýja leginu eftir aðgerðina í von um
óléttu.
Aðgerðin er ekki hættulaus og hafa læknar bent á að verði
leginu hafnað á miðri meðgöngu séu bæði móðir og barn í
mikilli hættu. - tg
20%afslætti
%
afsláttur
15-30%afsláttur 20%afsláttur