Fréttablaðið - 18.01.2007, Qupperneq 33
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 3
Austurlenskir sloppar eru í tísku.
Svo virðist sem
blómaskreyttir
silkisloppar í
austurlenskum
stíl séu nýjasta
æðið í Holly-
wood. Þar sést
nú hver stjarn-
an á fætur ann-
arri íklædd
slíkri flík við
hátíðleg tilefni,
svo sem leik-
konurnar Kath-
erine Heigl og Heather Graham,
sem er kannski ekki ýkja skrítið
með hliðsjón af því hversu fallegir
og þægilegir slopparnir eru. Auk
þess sem má para þá við ólíkan
fatnað, allt frá gallabuxum upp í
pils, eftir því við hvaða tækifæri á
að nota sloppana.
Asískir
sloppar inni
Katherine Heigl með slopp utan yfir pils.
Heather Graham í
slopp við buxur.
Úr háborg tískunnar
bergþór bjarnason skrifar frá parís
á skíðum skemmti ég mér trallala...
Útsölurnar eru vel tímasettar
fyrir þá sem ætla sér í vetrarfrí í
Frakklandi, til dæmis á skíði. Á
skíðasvæðum í Frakklandi hefur
reyndar sama vandamálið verið
á ferðinni og heima á Íslandi.
Snjórinn hefur látið eftir sér bíða
þennan veturinn og veðráttan
verið einstaklega mild þó að loks-
ins hafi nú snjóað á Fróni og það
svo um munar. Þess vegna er nóg
úrval af vetrarklæðnaði á útsöl-
unum og hægt að fata sig upp
fyrir skíðaferðir með allt að 80
prósenta afslætti. Það munar um
minna þegar skíðavörur eru ann-
ars vegar. Auðveldasta og ódýr-
asta leiðin er að skreppa í sport-
búðir eins og „Go sport“ eða
„Decatlone“ sem eru eins konar
íþróttastórmarkaðir og sinna
nánast öllum íþróttagreinum.
Fyrir þá sem vilja ekki neina
almúgavöru er auðvitað hægt að
leita til tískuhúsanna, sem þó
einbeita sér misjafnlega mikið
að almennilegum vetrarvörum
er henta til vetrar- eða skíða-
ferða. Til dæmis hefur Prada í
gegnum tíðina lagt mikla áherslu
á fallegar vetrarúlpur og þá
ýmist úr dúni eða ekki.
Sum tískuhúsanna bjóða öðru
hvoru upp á vetraríþróttavörur
eins og skíði eða snjóbretti í tak-
mörkuðu upplagi, sem að sjálf-
sögðu selst vel því alltaf eru við-
skiptavinir sem borga hvað sem
er til að vera öðruvísi og skera
sig frá meðaljónunum. Því er
auðvitað ekki saman að líkja að
renna sér á Chanel-skíðum eða
spóka sig í „moonboots“ með
brúnu tweed-mynstri sem smell-
passar við brúnu Prada-úlpuna.
Það vill þó oft vera þannig að
lúxustískuvara er ekki endilega
gerð til þess að verjast kulda og
stunda íþróttir í frosti og snjó
heldur meira til að sýna sig og
sjá aðra. Stundum er því vissara
að halda sig við verönd skíðahót-
elsins og drekka heitt súkkulaði
en að týnast í Ölpunum. Nema
náttúrlega að fara um allt með
GPS-tæki.
Á flottari skíðastöðum eins og
til dæmis í Chamonaix er svo
auðvitað hægt að kaupa lúxus-
klæðnað á staðnum því tískuhús-
in eru mörg hver með útibú á
þessum stöðum sem einungis eru
opin meðan á skíðatímabilinu
stendur. Tískuhúsin eru sömu-
leiðis sérhæfðari á skíðastöðun-
um og bjóða þar varning sem er
jafnvel ófáanlegur í höfuðborg-
inni. En það er líklega vissara að
halda sig við viðurkennd vetrar-
merki eins og Lafuma eða
Northface, svo dæmi séu tekin,
sem reyndar hefur borið meira á
í París í vetur en áður þrátt fyrir
að hitinn hafi nú ekki enn farið
nema í nokkra dag í 1-2 gráður í
mínus. Nánast hlýrabolaveður
fyrir sanna víkinga. Svo væri
auðvitað ráð að skella sér ein-
faldlega á einn galla frá 66°
Norður, sem hlýtur að standast
eitt skíðaferðalag í Ölpunum
komandi frá hinu ísakalda landi.
XSTREAM
DESIG
N AN 07 01 002
Fjörður • Hafnarfirði • 565 7100
SJÁLFSSTYRKING FRAMKOMA OG LÍKAMSBURÐUR INNSÝN Í FYRIRSÆTUSTÖRF FÖRÐUN UMHIRÐA HÚÐAR
OG HÁRS UNDIRBÚNINGUR FYRIR MYNDATÖKU MYNDATAKA (12 SV/HV MYNDIR) TÍSKUSÝNINGARGANGA
FÍKNIEFNAFRÆÐSLA LEIKRÆN TJÁNING NÆRINGARRÁÐGJÖF
Umsjónarkennarar:
Kristín Ásta Kristinsdóttir
Gestakennarar:
Kolbrún Pálína Helgadóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir ofl.
Allir þáttakendur fá Eskimo boli, viðurkenningaskjal og 10 sv/hv myndir.
Námskeiðinu líkur með stórri tískusýningu.
Verð 17.900 kr.
Skráning er hafin í síma 533-4646 og á www.eskimo.is.
FRAMKOMU&
FYRIRSÆTUNÁMSKEIÐ
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 23. OG 25. JANÚAR.
Kuldaskór á alla
fjölskylduna
30-50 %
afsláttur
Frábær
verð
frá 2.495
Sendum í póstkröfu
Firði Hafnarfirði S: 555-4420