Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 35
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 5
Zucchelli lagði sig einnig fram við að
hafa fatnaðinn sem þægilegastan.
Þessi fatnaður ber ákveðinn keim af
klæðaburði margra poppstjarna níunda
áratugarins.
Margt á sýningunni var í hefðbundn-
ari kantinum, eins og til dæmis þessi
stílhreinu jakkaföt.
Herraföt Italo Zucchelli frá
Calvin Klein vekja eftirtekt.
Fatalína hönnuð af hinum þekkta
Italo Zucchelli fyrir Calvin Klein
hefur vakið jákvæð viðbrögð
gagnrýnenda, sem hafa sumir
hverjir haft á orði að hún sameini
alla bestu eiginleika tískuhönnuð-
arins.
Zucchelli, sem hefur um langt
skeið þótt með framúrstefnulegri
hönnuðum í karlatísku, er sagður
hafa leitað aftur til níunda áratug-
arins eftir hugmyndum og fært
fram til samtímans, ef ekki fram-
tíðarinnar, með vorlínu sinni.
Zucchelli var ófeiminn við að
para saman talsvert ólíkar flíkur,
svo sem sumarlega jakka við
glansandi stuttbuxur, hálfgagn-
sæjar, ljósar peysur við þröngar,
ljósbláar teygjubuxur eins og
poppstjörnur klæddust gjarnan á
níunda áratugnum, köflóttar
ermaskyrtur við vel girtar buxur
og svo mætti lengi telja.
Efnasamsetning fatalínunnar
vekur ekki síður athygli. Einn
gagnrýnenda er til að mynda svo
yfir sig hrifinn af samsetning-
unni að hann sagði hana henta vel
í fræðiritgerð um meðhöndlun
efna.
Þá þykir Zucchelli vera frem-
ur djarfur í litavali. Hann blandar
hefðbundnum litum á borð við
brúnan, gráan, svartan og hvítan
á smekklegan hátt saman við
heldur framúrstefnulegri liti eins
og fjólubláan, túrkísbláan og
sjávargrænan, svo dæmi séu
tekin.
Að vísu hefur notkun Zucchell-
is á þröngum teygjubuxum farið
fyrir brjóstið á einhverjum, þær
skilja heldur lítið eftir fyrir
ímyndunaraflið.
Eins og fyrr segir þykir útkom-
an þó á heildina séð vel heppnuð,
jafnvel þótt lýsingin hér að ofan
gæti gefið annað til kynna. Fata-
lína Zucchellis er talin einkenn-
ast af einfaldleika, fágun og þæg-
indum svo fátt eitt sé nefnt. Er
samstarf Zucchellis og Calvins
Klein því talið hafa borið af sér
ríkulegan ávöxt. -rve
Þessi svarti jakki og buxur með gulrótar-
sniði henta vel fyrir skemmtanalífið.
Framúrstefnu-
legt og flott
Þessar stuttbuxur koma sér vafalaust vel
í sumar.
Sumum fannst þröngu buxurnar skilja
heldur lítið eftir handa ímyndunaraflinu.
Óhætt er að segja að þessi sýningar-
dama hafi skinið skært á sýningu Soniu
Rykiel.
Þessi athyglisverða flík er frá Hussein
Chalayan.
Nýjasta tískuæðið er að klæð-
ast stórum steinum.
Fyrst voru það gull og silfur, nú
eru það stórir steinar. Tísku-
hönnuðir eru í síauknum mæli
farnir að skreyta fötin sín með
kristöllum á stærð við loftsteina.
Marc Jacobs reið á vaðið með
steinaskreyttum satínhúfum,
veskjum og sandölum með hæla-
böndum og vilja spekúlantar
meina að aðrir hafi fylgt í fót-
spor hans.
Til að mynda segir hönnuður-
inn Andrew Gn skraut sitt vera
undir áhrifum frá geimnum, ís
og Japan samtímans. Þá þykja
perluskreyttir kjólar Emilios
Pucci helst minna á yfirborð
tunglsins.
Luella Bartley er sögð hafa
farið pönkuðu leiðina með þessa
stefnu, með því að nota spegla-
brot til að skreyta „skriðdreka-
kjólana“ sína.
Burberry Prorsum, Huseein
Chalayan og Sinha-Stanic þykja
öllu hófsamari en Bartley, með
gimsteina- og hnappaskreyttar
flíkur í fínlegri kantinum.
-rve
Loftsteinaregn á
sýningapöllunum
Kjóll með steinaskreyttu hálsmáli frá
Esteban Cortazar.
Þetta áhugaverða höfuðfat kemur frá
Marc Jacobs.
- 60% afsláttur af öllum vörum