Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 39
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007
Losnað við límmiða
HeiLræði sem gagnast við að Hreinsa burt
Límmiða.
vissirðu að það má hafa meira gagn af hárþurkku
en að þurrka blautt hár? Hárþurrkur má nefnilega
líka nota við að losa límmiða af flöskum, skálum og
myndarömmum, svo dæmi séu tekin. maður þarf
bara að kveikja á þurrkunni, miða á límmiðann og
hita hann í nokkrar sekúndur. eftir það er hægur
leikur að ná honum af í heilu lagi. Þannig
kemst maður hjá því að þurfa að klístra fing-
urna með því að kroppa límmiðana af eða
nota til þess beitt áhald, sem getur skilið eftir
sig rispur.
- rve
Nokkur góð ráð til að hressa
upp á skipulagið í heimatölv-
unni.
Vistaðu skjöl sem þarfnast mestr-
ar athygli á skjáborðinu („desk-
top“). Vistaðu annað, eins og tölvu-
póst, tónlist, myndir, myndbönd
og fleira í þeim dúr á harða diskn-
um.
Vistaðu skjöl ekki undir löng-
um heitum, heldur einföldum
lýsandi orðum svo þú eigir auðvelt
með að finna þau aftur. Forðastu
íslenska bókstafi, þar sem sumar
tölvur geta átt í erfiðleikum með
að lesa þá.
Þegar þú opnar möppur í tölv-
unni raða skjöl sér yfirleitt eftir
stafrófsröð. Vilji maður setja skjal
framar án þess að breyta um heiti
þess getur maður bætt undirstrik-
unarmerki fyrir framan það. Við
það færist skjalið fremst. - rve
Tekið til í
tölvunni
ÚTSALA!
ÚTSALA!
Vikurnar milli áramóta og
páska eru tími túlípananna.
Nú þegar jólaskrautið er komið
inn í geymslu og jólatréð í endur-
vinnslu eru fersk blóm einstak-
lega velkomin á heimilið. Túlípan-
ar eru aldrei vinsælli en á
tímabilinu frá janúar til páska.
Þeir eru formfagrir, litglaðir og
ilmandi og gefa okkur tilfinningu
fyrir því að daginn sé að lengja og
að eftir kaldan veturinn kemur
vor.
Túlípana er létt að hirða því
þeir eru ekki þurftafrekir. Þeir
vilja standa í litlu vatni en þar sem
við kyndum mikið á þessum árs-
tíma má samt passa sig á að vökv-
unin gufi ekki öll upp úr vasanum
og þeir standi alveg á þurru.
Fjölbreytnin er mikil í
túlípanaflórunni, bæði af tegund-
um og litum, og til að skapa enn
meiri fjölbreytni má stilla þeim
upp með einhverju öðru skrauti
sem passar vel við. - gun
Túlípanatím-
inn kominn
túlípanar bera með sér birtu.