Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 42
Strákarnir okkar
2
Íslenska handboltalandsliðið er eina
landslið okkar Íslendinga sem hefur
komist inn í úrslitakeppni stórmóts
og þangað eru nú strákarnir okkar
komnir í 24. sinn.
Ísland hefur verið með á fimm
Ólympíuleikum og fjórum Evrópu-
mótum en HM í Þýskalandi sem
hefst um helgina verður fimmtánda
heimsmeistaramót Íslands frá því að
við tókum fyrst þátt á HM í Austur-
Þýskalandi árið 1958. Íslenska
landsliðið er í 14. sæti á afrekalista
HM-keppninnar þar sem gefin eru
stig fyrir sæti sem þjóðirnar hafa
náð í úrslitakeppni HM.
Ísland náði sínum besta árangri
á HM í Kumamoto í Japan 1997.
Liðið var þá undir stjórn Þorbjarn-
ar Jenssonar, tapaði aðeins einum
leik og vann sjö af níu leikjum
sínum. Tapleikurinn, sem var með
einu marki (25-26) gegn Ungverj-
um í 8 liða úrslitum, sá til þess að
íslenska liðið spilaði um 5. sætið í
stað þess að komast í undanúrslitin.
Íslenska liðið vann bæði Spánverja
og Egypta í leikjum um 5. til 8. sæti
og bætti þar með sinn besta árang-
ur en íslenska liðið hafði tvisvar
náð 6. sætinu, fyrst á HM í Vestur-
Þýskalandi 1961 og svo aftur í Sviss
1986.
Síðan Ísland var með í fyrsta sinn
á HM í Austur-Þýskalandi árið 1958
hafa aðeins farið fram þrjár heims-
meistarakeppnir án þátttöku íslenska
landsliðsins. Ísland missti af HM í
Svíþjóð 1967, HM í Vestur-Þýska-
land 1982 og svo HM í Egyptalandi
1999. Pólverjar og Danir skildu
íslenska liðið eftir í undanriðli fyrir
HM 1967 og Danir fóru síðan alla
leið í úrslitaleikinn. Ísland tók þátt
í B-keppninni í Frakklandi 1981 og
var þremur sætum frá því að komast
á HM í Vestur-Þýskalandi. Ungverjar
skildu síðan Ísland eftir í undanriðl-
inum fyrir HM í Egyptalandi 1999 en
íslenska liðið tapaði 20-24 í úrslita-
leik úti í Ungverjalandi í lokaleik
liðanna í riðlinum. Ungverjar end-
uðu síðan í 11. sæti á HM 1999. HM í
Þýskalandi verður því fjórða heims-
meistaramótið í röð og það níunda
af síðustu tíu sem íslenska landsliðið
fær að spreyta sig.
Alfreð Gíslason er tíundi þjálf-
arinn sem stjórnar íslenska lands-
liðinu og sá fimmti í röð sem hefur
spilað sem leikmaður landsliðsins á
HM. Alfreð lék 11 leiki á HM 1986 í
Sviss og HM 1990 í Tékkóslóvakíu.
Þorbjörn Jensson er bæði sá þjálfari
sem stjórnað hefur íslenska liðinu í
flestum leikjum á HM (15) sem og
sá þjálfari sem hefur unnið flesta
leiki (9). Hallsteinn Hinriksson og
Bogdan Kowalczyk eru hins vegar
þeir tveir þjálfarar sem hafa komið
íslenska liðinu tvisvar meðal þeirra
tíu bestu.
Markvörðurinn Guðmundur
Hrafnkelsson er leikjahæsti leik-
maður Íslands í úrslitakeppni HM en
hann lék 43 leiki á sex heimsmeist-
aramótum frá 1990 til 2003. Guð-
mundur bætti met Geirs Sveinsson-
ar á HM í Frakklandi árið 2001 en
Geir lék 31 leik í úrslitakeppni HM.
Þeir Ólafur Stefánsson (36), Patrek-
ur Jóhannesson (34) og Dagur Sig-
urðsson (33) hafa síðan allir komist
upp fyrir Geir. Geir á hins vegar enn
metið yfir flesta leiki sem fyrirliði en
hann hefur 23 sinnum leitt íslenska
liðið fram á HM, þremur oftar en
Dagur sem kemur næstur. Ólafur
Stefánsson verður tíundi fyrirliði
íslenska landsliðsins á heimsmeist-
aramóti.
Ólafur Stefánsson er langmarka-
hæsti leikmaður Íslands á HM en
hann hefur skorað 152 mörk í 36
leikjum (4,2 mörk í leik), 31 marki
meira en næsti maður sem er Patrek-
ur Jóhannesson með 121 mark. Axel
Axelsson er hins vegar sá leikmaður
sem hefur skorað flest mörk að með-
altali í leik á HM en hann skoraði
32 mörk í 6 leikjum á HM 1974 og
1978, eða 5,3 mörk í leik. Kristján
Arason er þar í öðru sæti með 5
mörk að meðaltali í 13 leikjum á HM
1986 og 1990.
Átta sinnum meðal
tíu bestu þjóða heims
Íslenska handboltalandsliðið er að fara að keppa á sínu fimmtánda HM en liðið var
fyrst með fyrir 49 árum og náði sínum besta árangri í Kumamoto 1997.
Fyrstur í 32 ár Bjarki Sigurðsson varð
fyrsti Íslendingurinn í 32 ár til að vera
valinn í HM-lið en hann sló í gegn á HM
í Svíþjóð 1993. Fréttablaðið/GH
í úrvalsliði HM á íslandi Geir Sveinsson sést hér ásamt þeim sem voru valdir í
úrvalslið HM á Íslandi 1995. Fréttablaðið/Brynjar Gauti
sjötta sætið Ísland náði sjötta sætinu
á HM í Sviss 1986.
Góðar stundir Það er alltaf mikil
stemmning í íslenska landsliðinu á HM.
Fréttablaðið/Hilmar Þór
á leikjaMetið Guðmundur Hrafn-
kelsson hefur leikið fleiri leiki á HM en
nokkur annar Íslendingur, samtals 43
leiki í sex keppnum.
Fréttablaðið/Hilmar Þór
ólyMpíusæti í HöFn Sigfús Sigurðsson
faðmar hér til vinstri Ólaf Stefánsson
eftir að Ísland hafði náð 7. sætinu á HM
2003 og tryggt sig inn á Ólympíuleika.
Fréttablaðið/Hilmar Þór
FiMMti MarkaHæstur Kristján Arason
varð 5. markahæsti maður HM í Sviss.
í liði Mótsins 1997 Valdimar Grímsson
var frábær á HM í Kumamoto 1997.
Fréttablaðið/ÞÖK
eitt aF 152 MörkuM Ólafur Stefánsson
er markahæstur Íslendinga á HM.
Fréttablaðið/Uros Hocevar
Flestir HM-leikir:
Guðmundur Hrafnkelsson 43
Ólafur Stefánsson 36
Patrekur Jóhannesson 34
Dagur Sigurðsson 33
Geir Sveinsson 31
Valdimar Grímsson 26
Júlíus Jónasson 23
Bjarki Sigurðsson 22
Gústaf Bjarnason 22
Guðjón Valur Sigurðsson 20
Flest HM-Mörk:
Ólafur Stefánsson 152
Patrekur Jóhannesson 121
Valdimar Grímsson 95
Geir Sveinsson 87
Guðjón Valur Sigurðsson 85
Kristján Arason 65
Dagur Sigurðsson 59
Bjarki Sigurðsson 54
Róbert Julian Duranona 54
Einar Örn Jónsson 52
Gústaf Bjarnason 51
Sigurður Valur Sveinsson 51
Besti áranGur íslands
á HM 1938-2005:
1997 Þorbörn Jensson 5. sæti
1961 Hallsteinn Hinriksson 6.
1986 Bogdan Kowalczyk 6.
2003 Guðmundur Guðmundsson 7.
1993 Þorbergur Aðalsteinsson 8.
1964 Karl G. Benediktsson 9.
1958 Hallsteinn Hinriksson 10.
1990 Þorbergur Aðalsteinsson 10.
1970 Hilmar Björnsson 11.
2001 Þorbjörn Jensson 11.
1978 Birgir Björnsson 13.
1995 Þorbergur Aðalsteinsson 13.
1974 Karl G. Benediktsson 14.
2005 Viggó Sigurðsson 15.
úrslitaleikir
HM 1938-2005:
1938 Riðlakeppni (Þýskaland vann)
1954 Svíþjóð-Vestur-Þýskaland 17-14
1958 Svíþjóð-Tékkóslóvakía 22-12
1961 Rúmenía-Tékkóslóvakía 9-8
1964 Rúmenía-Svíþjóð 25-22
1967 Tékkóslóvakía-Danmörk 14-11
1970 Rúmenía-Austur-Þýskal. 13-12
1974 Rúmenía-Austur-Þýskal. 14-12
1978 Vestur-Þýskal.-Sovétríkin20-19
1982 Sovétríkin-Júgóslavía 30-27
1986 Júgóslavía-Ungverjaland 24-22
1990 Svíþjóð-Sovétríkin 27-23
1993 Rússland-Frakkland 28-19
1995 Frakkland-Króatía 23-19
1997 Rússland-Svíþjóð 23-21
1999 Svíþjóð-Rússland 25-24
2001 Frakkland-Svíþjóð 28-25
2003 Króatía-Þýskaland 34-31
2005 Spánn-Króatía 40-34
Björn Bjarnason, dóMsMála-
ráðHerra: Ólafur Stefánsson
ef meiðsli stöðva hann ekki. Við
leikum um þriðja sætið og vinnum
auðveldlega.
Hanna Guðrún steFánsdóttir,
leikMaður Hauka: Fimmta til
sjöunda sæti, við gerum kröfur. Pet-
ersson verður stjarnan og svo munu
Óli og Guðjón Valur standa fyrir sínu.
þorsteinn GuðMundsson, Grín-
isti: Felix Bergsson verður stjarna
mótsins og Ísland mun hafna í 75.
sæti.
andri snær MaGnason, rit-
HöFundur: Ég hef ekki fylgst með
handbolta í 70 ár og get því ekki
svarað.
loGi ólaFsson, FótBoltaþjálFari:
Engin spurning að það verður nafni
minn Geirsson sem stelur senunni
og ég spái því að Ísland tapi naum-
lega leiknum um þriðja sætið.
daGur siGurðsson, HandBolta-
þjálFari: Ég vona að Logi Geirs
verði stjarnan og tel 5.-10. sæti
raunhæft.
■■■■ { Strákarnir okkar á HM } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
siv FriðleiFsdóttir, HeilBriGðis-
ráðHerra: Guðjón Valur Sigurðsson
verður stjarnan. Við höfnum í þriðja
sæti og náum vel pússuðu bronsi.