Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 50
Strákarnir okkar
10
„Það eru einmitt um tuttugu ár síðan
okkar kjarni tók þátt í þessu í fyrsta
sinn, í Sviss 1986. Það var eftir að
hafa náð ágætis árangri á Ólympíu-
leikunum 1984. Það var mikil eft-
irvænting og spenna, handboltinn
var hærra skrifaður hérna heima
en hann er í dag enda er áreiti á
almenning mun meira núna. Það
var mikið fjallað um þessa keppni
á Íslandi og fyrsti leikur var gegn
Suður-Kóreumönnum en þeirra lið
var óskrifað blað á þessum tíma.
Við höfðum verið að gæla við að
komast langt í keppnina og töldum
Tékka aðalmótherja okkar í riðl-
inum,“ sagði Kristján Arason en
íslensku strákarnir gerðu sig seka
um vanmat í fyrsta leik mótsins.
„Það átti að halda smá Þjóðhátíð
og ganga frá liði Suður-Kóreu. Í
leiknum vissum við hins vegar ekki
hvað var að gerast alveg frá fyrstu
mínútu. Þeir spiluðu okkur sundur
og saman og við töpuðum stórt.
Þeir komu okkur gjörsamlega á
óvart og andrúmsloftið eftir leikinn
var eftirminnilegt. Það vissi eng-
inn hvað ætti að segja og því var
dauðaþögn. Menn geta rétt ímynd-
að sér hvernig ástandið á Bogdan
þjálfara var á þessari stundu.“
Eftir áfallið í fyrsta leik rifu
menn sig upp og lögðu Tékkland
og Rúmeníu. „Þannig náðum við
að komast áfram og höfnuðum í
sjötta sæti. Fyrir utan leikinn gegn
Suður-Kóreu var þessi keppni mjög
vel spiluð af okkar hálfu. Þegar
maður skoðar þann leik sér maður
snerpuna og hraðann sem bjó í
suður-kóreska liðinu og þekkist vel
í handboltanum í dag. Það má segja
að þeir hafi gjörbylt handboltanum,
þeir urðu þess valdandi að hraðinn
varð miklu meiri. Það má segja að
Guðjón Valur sé leikmaður í heims-
klassa í dag vegna þessara breyt-
inga sem urðu eftir þetta,“ sagði
Kristján.
„Á þessum tíma var GSM-væð-
ingin ekki hafin, menn fóru ekki inn
á netið eða neitt heldur fengum við
send skeyti að heiman. Við urðum
alveg varir við stuðning að heiman
og spennan jókst mikið eftir að við
unnum Tékkland. Þá varð áhuginn
gríðarlegur, það er sérstakt að taka
þátt í svona mótum. Ef það geng-
ur vel er hóteldvölin ekkert mál en
ef á móti blæs getur þetta orðið
ótrúlega langur tími. Það er kúnst
hjá þjálfara að fara milliveg, brjóta
upp erfiða stemningu og sjá líka til
þess að menn séu ekkert kærulausir.
Léttleikinn verður að vera til stað-
ar,“ sagði Kristján.
Það var galli á Bogdan að hann
átti það til að læsa menn inn í her-
bergjum. Allir áttu að vera farnir
að sofa klukkan ellefu eftir leik en
það gat enginn sofnað þá. Mikið
adrenalín í gangi og maður lá bara
og taldi kindur. Við höfum síðan
lært það af nágrannaþjóðum okkar
að það skiptir miklu máli að brjóta
upp hótelið og njóta þess að vera í
heimsmeistarakeppni.“
Kristján er spenntur fyrir að
sjá komandi keppni í Þýskalandi.
„Liðið býr yfir gríðarlegum hraða
og það er helsti styrkleiki þess.
Þá þarf varnarleikurinn að skila
sínu og við verðum að ná svona
fimmtán vörðum skotum til að
þetta gangi. Ég tel að ef við spilum
um eitt af átta efstu sætunum sé
það fínn árangur og allt fyrir ofan
sjötta væri frábær árangur,“ sagði
Kristján Arason.
Bogdan læsti menn inni
Kristján Arason er einn besti handknattleiksmaður sem Ísland hefur átt og er Ólafur
Stefánsson sá eini sem hefur skorað fleiri mörk fyrir landsliðið en hann. Kristján segir
HM 1986 eftirminnilegasta mót sem hann hafi tekið þátt í.
Kristján ArAson Einn besti handboltamaður Íslands fyrr og síðar.
■■■■ { Strákarnir okkar á HM } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Guðlaugur Þór Þórðarson, alþing-
ismaður: Ólafur Stefánsson er og
verður alltaf lykilmaður í liðinu og ég
reikna með að Guðjón Valur verði
einnig sterkur. Ég trúi á þetta lið og
spái því 5.-6. sæti á mótinu.
Freyr Eyjólfsson, útvarps- og tón-
listarmaður: Guðjón Valur verður að
öllum líkindum stjarna liðsins, hann
er í fantaformi þessa dagana. Ef við
komumst upp úr riðlinum tel ég að
allt geti gerst.
Patrekur Jóhannesson, handbolta-
maður: Margir koma til greina og
ég spái því að það verði fleiri en ein
stjarna. Ég vona að markverðirnir finni
sig vel. 5.-8. sæti væri frábær árangur.
Alma Guðmundsdóttir, söngkona
Nylon: Ísland hafnar í fimmta sætinu
og Ólafur Stefánsson verður skærasta
stjarnan í íslenska liðinu.
Raggi Bjarna, tónlistarmaður: Við
endum í sjötta sætinu og Einar Örn
Jónsson mun eiga frábært mót.
Sebastian Alexandersson, þjálfari
Selfyssinga: Ég hef trú á því að liðið
hafni í 5.-8. sæti í ljósi meiðsla leik-
manna. Ég held að hornamennirnir
verði bestir í íslenska liðinu.
Strákarnir okkar