Fréttablaðið - 18.01.2007, Qupperneq 52
Strákarnir okkar
12
Benedikt Bóas Hinriksson,
Blaðamaður: Snorri Steinn og
Robbi verða í aðalhutverki hjá
íslenska liðinu, sem hafnar í sjötta
sætinu.
atli eðvaldsson, fótBoltaþjálf-
ari: Guðjón Valur og Óli Stefáns
verða í lykilhlutverki og svo er Snorri
Steinn mjög hæfileikaríkur. Ég held
að við endum í einhverju af átta
efstu sætunum.
jón ólafsson, tónlistarmaður:
Við lendum í níunda sætinu og
Guðjón Valur verður stjarnan.
sigríður arnardóttir (sirrý),
sjónvarpskona: Ég er berdreymin
kona og spái okkur 8. sæti. Ólafur
Stefánsson verður aðalstjarnan enda
fara heimspeki og handbolti vel
saman.
geir sveinsson, framkvæmda-
stjóri íþróttaakademíunnar í
reykjanesBæ: Ég spái því að Alex-
ander Petersson verði stjarnan og
við höfnum í 5.-8. sæti mótsins.
eyþór guðjónsson, leikari:
Óli Stefáns, gamli félagi minn úr
Val, verður stjarna okkar á mótinu.
Ég ætla út með félögum mínum að
kíkja á milliriðilinn og spái liðinu
einu af átta efstu sætunum með
baráttuandann að vopni.
Nýstofnuð samtök stuðnings-
manna handboltalandsliðsins
sem lofa því að styðja Ísland í
blíðu og stríðu hafa gefið út tíu
stuðningsboðorð en markmið
samtakanna er að virkja íslensku
þjóðina til þess að styðja betur
við bakið á íslenska landsliðinu.
Á vefnum www.ibliduog-
stridu.is, þar sem fólk getur einn-
ig skráð sig í samtökin, munu
stuðningsmenn og landsliðs-
mennirnir sjálfir blogga og senda
inn myndir frá lífinu á bak við
tjöldin. Þar er hægt að senda
landsliðsmönnunum skilaboð og
spurningar sem þeir reyna að
svara á síðunni.
Tíu boðorð fyrir stuðningsmennina
áfram ísland Stuðningsmenn íslenska
handboltalandsliðsins. Fréttablaðið/teitur
■■■■ { Strákarnir okkar á HM } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
stuðningsboðorðin 10:
1. Við lítum á okkur sem „stuðningsmenn” – en ekki „áhangendur”.
2. Við vitum að stuðningur okkar er mikilvægur fyrir liðið og getur haft mikil áhrif á árang-
ur þess.
3. Við vitum að stuðningur er ekki síst nauðsynlegur í stríðu – ekki bara í blíðu!
4. Við gerum okkur raunhæfar væntingar.
5. Við teljum það ekki minnimáttarkennd að taka það með í reikninginn að 300 þúsund
manna þjóð er að keppa við milljónaþjóðir. Það er bara viðurkenning á staðreyndum.
6. Við gerum þá kröfu til landsliðsins að það „haldi haus” í mótlæti og skuldbindum okkur
til þess að gera slíkt hið sama.
7. Við heitum því að yfirgefa ekki skútuna ef miður gengur – við heitum því að halda út
allt til enda og sýna „úr hverju við erum gerð“.
8. Jákvæður stuðningur er skemmtilegur og gefandi – ekki bara fyrir landsliðið heldur líka
okkur stuðningsmenn og þjóðarkarakterinn.
9. Við getum ekki öll orðið landsliðsmenn – en við getum orðið stuðningsmenn – í blíðu
og stríðu.
10. Sama hvernig gengur og sama hvernig fer - þá lofum við alltaf einu: Við höfum ánægju
af leiknum.
Þú getur tippað í beinni á HM í Þýskalandi
Og svo eru leikirnir líka á Lengjunni.
Allir sem taka sénsinn 13.–27. janúar eiga möguleika á að fara á leik
Liverpool og everton í Ensku Úrvalsdeildinni 3. febrúar. Allt innifalið!
Taktu sénsinn og gerðu HM í handbolta enn skemmtilegri
Sunnudagur 21.1.
16.50 Ísland – Úkraína
Mánudagur 22.1.
18.50 Ísland – Frakkland
Og svo náttúrulega
milliriðlar og úrslit!
Áfram ísland!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
úrslit leikjanna
stöðuna í hálfleik
fjölda marka í leik
hverjir skora fyrsta markið
... og margt fleira
Tippaðu á: