Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 18.01.2007, Blaðsíða 68
 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR32 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] icex-15 6.845 -0,59% Fjöldi viðskipta: 537 Velta: 7.731 milljónir HLUtAbréF Í úrVALSVÍSitÖLU: 365 4,57 -2,14% ... Actavis 70,10 -0,99% ... Alfesca 4,92 -0,61% ... Atlantic Petroleum 548,00 +0,37% ... Atorka 6,94 +0,29% ... Bakkavör 63,60 +0,16% ... Eimskipafélagið 33,10 +0,00% ... FL Group 28,90 +0,70% ... Glitnir 24,90 +0,00% ... Kaupþing 905,00 -0,22% ... Landsbankinn 29,00 -2,36% ... Marel 75,00 +0,00% ... Mosaic Fashions 14,70 -1,34% ... Straumur-Burðarás 18,00 -1,10% ... Össur 112,50 -0,44% MEStA hæKKUn FL Group +0,70% Atlantic Petroleum +0,37% icelandair +0,35% MEStA LæKKUn Landsbankinn -2,36% tryggingamiðstöðin -2,19% 365 -2,14% Fjárfestahópur sem samanstend- ur af Baugi Group, fjárfestingar- félagi Skotans Toms Hunter og Halifax Bank of Scotland, vinnur að því að taka yfir bresku garðvörukeðjuna Blooms of Bressingham, að sögn Financial Times. Þetta er sami hópur og tók yfir Wyevale Garden Centres í apríl í fyrra fyrir fjörutíu milljarða króna. Tilboðið myndi hljóða upp á 85 pens á hlut, sem svarar til fjögurra milljarða króna fyrir allt félagið. Stjórn Blooms greindi frá því í fréttatilkynningu til Kaup- hallarinnar í Lundúnum að hún ætti í viðræðum við fjárfesta en þær væru á frumstigi. Stjórnendur félagsins voru nokkuð sáttir við söluna síðustu tvo mán- uði ársins 2006. Veltan jókst um 19,4 prósent á milli ára, þar af um 7,5 prósent að öllu óbreyttu. - eþa Vilja eignast blóma- keðjuna Blooms bætA Við SiG bLómUm Baugur skoðar yfirtöku á Blooms ásamt fjárfestum. Stork-fyrirtækjasamstæðunni í Hollandi hefur verið meinað að verja stjórn fyrirtækisins falli á hluthafafundi með því að beita atkvæðarétti nýútgefinna hluta- bréfa á hluthafafundi í dag. Dómur þar að lútandi féll í Amsterdam í Hollandi síðdegis í gær. Í dómnum kemur fram að sett verði í gang rannsókn á því hvort stjórn Stork hafi brotið lög um stjórnarhætti. Fundurinn í dag er haldinn að beiðni stærstu hluthafa í sam- stæðunni, bandarísku fjárfest- ingasjóðanna Paulson og Cen- taurus, en þeir hafa deilt við stjórnina um stefnu. Sjóðirnir vilja selja jaðarstarfsemi frá samstæðunni en stjórnin hefur sett sig upp á móti því. Sjóðirnir kærðu jafnframt stjórn Stork fyrir að ætla að gefa út og beita hlutabréfum í deil- unni. Í október samþykkti hluthafa- fundur með 87 prósentum atkvæða að skipta félaginu upp, en stjórnin hefur ekki viljað fara að vilja hluthafanna. Matvælavinnsluvélafyrir- tækið Marel, sem einnig á hlut í Stork, hefur áhuga á að kaupa Stork Food Systems og hafa með dómnum í gær heldur aukist lík- urnar á því að af því geti orðið. - óká Vopn slegin úr hönd- um stjórnar Stork Kaupþing er talið upp með stærstu fyrirtækj- um í vali fjármálafyrir- tækja á bestu lántakend- um heims. Bankinn er í þriðja sæti yfir bestu lántakendur í hópi fjármálafyrirtækja og í sjötta til níunda sæti yfir þá lántakendur sem staðið hafa sig hvað best. Viðskiptaritið EuroWeek stendur fyrir valinu. Kaupþing hlýtur góða einkunn í yfirferð nýútkomins tölublaðs við- skiptaritsins EuroWeek á síðasta ári og er ofarlega á blaði í vali á bestu lánþegum í hópi fyrirtækja og stofn- ana. Hjá Kaupþingi eru menn í sjö- unda himni yfir árangrinum. Bankinn er þannig í þriðja sæti yfir bestu lánþega í flokki fjármála- fyrirtækja (Best financial institution borrower) og kemur þar á eftir ING Groep sem er í öðru sæti og skoska bankanum HBOS. Þá er Kaupþing í sjötta til níunda sæti yfir þá lántakendur í heim- inum sem þykja hafa staðið sig hvað best (Most impressive borrower of 2006). Þar deilir Kaupþing sætinu með Eksportfinans, General Elect- ric Capital Corp og HBOS). Í þeim flokki trónir í efsta sæti Evrópski fjárfestingabankinn. Guðni Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri fjárstýringar Kaup- þings, segir að þar á bæ séu menn bæði stoltir og glaðir yfir árangrin- um. „EuroWeek spyr útgefendur og fjárfestingabanka hverjir þeir telji að hafi skarað fram úr, bæði sem fjárfestingabanka og einnig sem útgefendur skuldabréfa,“ segir hann og telur ekki lítið afrek að hafa skorað jafnhátt sem skulda- bréfaútgefandi í flokki þar sem allt sé undir, hvort sem það eru þjóðríki, bankar, tryggingafélög eða annað. „Þarna er í raun allt undir, bæði landið og miðin beggja vegna Atlantshafsins og við auðvitað að keppa við banka, fyrirtæki og stofnanir sem eru margfalt stærri en við.“ Guðni segir erfitt að átta sig á í svipinn hverju valið kunni að skila bankanum, en ljóst sé að með þessu sé vakin athygli á góðum árangri hans á síðasta ári. „Fyrst og fremst er þetta viðurkenning á því að við höfum verið að gera rétta hluti. Við erum enda ekki síst ánægð með þetta í ljósi mótbyrsins sem bankakerfið hér varð fyrir í upphafi síðasta árs. Samt kemur þarna í ljós í kjöri meðal aðila á markaði, bæði kaupenda og seljenda, að við séum þriðji besti bankaútgefandinn og sjötti útgef- andinn yfir heildina sem þykir hafa staðið sig best.“ olikr@frettabladid.is Kaupþing í hópi vin- sælustu lánþega heims HÖFUðStÖðVAr KAUPþiNGS Í reyKjAVÍK Góður rómur er gerður að Kaupþingi í vali útgefenda skuldabréfa og fjárfestingabanka á þeim sem best hafa staðið sig á síðasta ári í nýjasta tölublaði tímaritsins EuroWeek. FréttABLAðið/GVA GUðNi AðALSteiNSSoN Innritun í símum 588-3630 og 588-3730, eða í skólanum að Síðumúla 17, tölvu- póstur: ol-gaukur@islandia.is Í boði er fjölbreytt nám með vönduðu námsefni fyrir alla aldursflokka, bæði byrjendur og þá sem kunna eitthvað fyrir sér. Nánari upplýsingar um skólann og námsleiðir er að fá á heimasíðunni: www.gitarskoli-olgauks.is eða í skólanum á innrit- unartíma, en innritað er alla virka daga kl. 14:00 til 17:00. ww w.g itar sko li-o lga uks .is Hægt að fá leigða HEIMAGÍTARA kr. 3500 á önn INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17 G A U K U R – G U T E N B E R G Heimasíða: www.gitarskoli-olgauks.is 588-3630 588-3730 mArKAðSPUNKtAr... Danól og Ölgerðin Egill Skallagríms- son, sem verið hafa í eigu Einars Kristinssonar og fjölskyldu undan- farin ár, hafa verið seld aðalstjórn- endum fyrirtækjanna, Andra Þór Guðmundssyni og Októ Einarssyni. MP Fjárfestingarbanki ætlar að opna útibú í Vilníus í Litháen á fyrsta fjórðungi þessa árs. Útibússtjóri verður Litháinn Dmitrijus Dutovas, sem hefur mikla reynslu á fjármála- mörkuðum í Eystrasaltsríkjunum og Austur-Evrópu. Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna kaupa verktakafyrirtækisins Björgunar, dótturfélags Jarðborana, á Sæþóri í lok september í fyrra. Vísbending um umræðu í flokknum Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og eigandi talnakönnunar og heims, er glöggur maður og skrifar oft hnyttinn og hittinn texta. hann hefur árum saman haldið úti því merka tímariti Vísbendingu þar sem ýmis hagræn málefni eru krufin. Í nýjasta hefti Vísbendingar skrifar Benedikt athyglisverðan pistil, þar sem hann leggur lóð á vogar- skálar umræðu um evru og krónu. Benedikt gagnrýnir þar með hárfínum hætti viðbrögð við þeirri umræðu sem túlka má sem svo að hann hafi vissar áhyggjur af því hvernig flokksbræður hans í Sjálfstæðisflokknum taki á umræðunni. „Sjálfstæðismenn eiga í ákveðinni tilvistarkreppu vegna evrunnar. Í stað þess að hlusta á rök atvinnulífsins hafa þeir fest sig í gömlum hugmyndum Margrétar thatcher, en hún sá ekkert gott koma frá megin- landi Evrópu,“ segir Benedikt í pistlinum. evran er skynsemi Benedikt gagnrýnir með réttu aðra tilhneig- ingu í umræðunni, sem er að líta á evru sem efnahagsaðgerð í yfirstandandi vanda. „... Evran er ekki lausn á neinum yfirstandandi vanda heldur væru Íslendingar að skipta um efnahagsumhverfi tækju þeir hana upp.“ Þarna er kjarni málsins og hafa ekki aðrir orðað það mikið betur. Benedikt tekur fastar á en margir sem hafa verið að feta braut efasemda um krónuna sem framtíðarmynt og klykkir út með því að segja; „Stuðningur við evr- una er ekki trúaratriði heldur einfaldlega skynsemi.“ Peningaskápurinn... Halla Tómasdóttir, framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs Íslands, hlaut FKA-viðurkenninguna 2007, aðal- verðlaun Félags kvenna í atvinnu- rekstri, sem veitt voru við hátíðlega athöfn síðdegis í gær. Þakkarviður- kenningu félagsins fékk svo Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, en hvatningarverðlaun félagsins komu í hlut Guðbjargar Glóðar Logadóttur, eins eigenda Fylgifiska. Halla tók fyrir ári við starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og þykir hafa staðið sig frábærlega í miklum óróa sem í byrjun ársins einkenndi erlenda umfjöllun um íslenskt efnahagslíf. „Halla einhenti sér í það verkefni að mennta alþjóð- lega fjölmiðla, fjármálagreinendur og fjárfesta um íslenska hagkerfið, en svokölluð Mishkin-skýrsla Við- skiptaráðs og alþjóðleg kynning og dreifing á henni var lykilþáttur í þeim viðsnúningi sem varð í nei- kvæðri umræðu síðastliðið vor,“ sagði Margrét Kristmannsdóttir, formaður félagsins, í ræðu sinni áður en hún afhenti Höllu verðlaun- in. Þá veitti FKA verðlaun í nýjum flokki, svokallað Gæfuspor, en það verður eftirleiðis veitt fyrirtæki sem verið hefur óhrætt við að ráða konur í stjórnunarstöður og gerir konum hátt undir höfði. Þau verð- laun hlaut að þessu sinni Atorka, sem á og rekur fimm fyrirtæki, en í fjórum af þeim fimm fyrirtækjum eru konur framkvæmdastjórar. - óká FKA verðlaunar konur VerðLAUNAAFHeNDiNG Birna Einarsdóttir, Margrét Kristmannsdóttir, Jón Sigurðsson, Guðrún Erlendsdóttir, halla tómasdóttir, Guðbjörg Glóð Logadóttir og Þorsteinn Vilhelms- son við afhendingu verðlauna Félags kvenna í atvinnurekstri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.