Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 70

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 70
 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR34 nám, fróðleikur og vísindi 1999 2003 2005 80 5 1. 08 1 90 7 62 5 2001 Háskólinn í Reykjavík brautskráir 258 nemendur næstkomandi laugardag. Flestir útskrifast frá viðskiptadeild, 130 manns. Þá ljúka 111 nemendur prófi frá tækni- og verkfræðideild og 17 brautskrást frá lagadeild. Brautskráningin verður síðasta embættisverk dr. Guð- finnu S. Bjarnadóttur, sem verið hefur rektor skólans frá stofnun hans. Svafa Grönfeldt, nýr rektor skólans, tekur við í kjölfarið og verða formleg skipti á úskriftinni sjálfri. Við brautskráninguna flytur formaður háskólaráðs, Bjarni Ármannsson, erindi og verðlaun frá Viðskiptaráði verða veitt fyrir besta náms- árangur í hverri deild. Útskriftin fer fram í Háskólabíói og hefst klukkan 13. n Brautskráning Síðasta embættisverk rektors Í Hafnarfjarðarkirkju er staðið fyrir öflugri fullorðinsfræðslu og þar eru oft spennandi námskeið í boði. Nú er í þriðja sinn sett á laggirnar námskeið þar sem sannleiksgildi Da Vinci lykilsins verður rannsakað. Fyrri námskeið um þetta efni hafa verið gríðarlega fjöl- sótt enda Da Vinci lykillinn afar vinsæl bók. Námskeiðið er sett upp sem eins konar leynilögreglu- námskeið. Stóru spurningarnar sem koma fram í bókinni verða til umræðu og þátttakendur bregða sér í leynilög- regluferð aftur í tímann til að leita að sönnunargögnum. Uppruni Nýja testamentisins verður skoðaður og teknar fyrir spurningar á borð við þær hvort Jesús gæti hafa verið giftur. Nánari upplýsingar má finna á www.hafnarfjardar- kirkja.is. n Námskeið Leyndardómar Da Vinci lykilsins Útskrifuðum tölvunarfræð- ingum hefur fækkað stór- lega undanfarin ár. Eftir- spurn eftir tölvumenntuðu fólki hefur aukist á sama tíma. Útskriftarnemar fá fjölda atvinnutilboða án þess að leita nokkuð, segir sviðsstjóri hjá Háskólanum í Reykjavík. Útskrifuðum tölvunarfræðingum á Íslandi hefur fækkað um fimm- tíu prósent undanfarin þrjú ár. Á sama tíma hefur eftirspurn eftir tölvunarfræðingum á atvinnu- markaðnum aukist. Árið 2004 útskrifuðust 153 með BS-gráðu í tölvunarfræði eða hug- búnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykja- vik. Útskrifaðir með sömu gráður árið 2006 voru 72. Útlit er fyrir að á þessu ári verði enn færri útskrif- aðir. „Tölvunarfræðin er háð sveifl- um í tæknigreinum um allan heim og það er kannski að fæla nemend- ur frá,“ segir Ebba Þóra Hvann- berg, deildarstjóri tölvunar- fræðideildar Háskóla Íslands. „Eftir aldamótin var talsverð- ur samdráttur, þegar internetból- an svokallaða sprakk og eftir- spurn eftir tölvunarfræðingum dróst saman í kjölfarið. Síðustu tvö árin hefur vinnumarkaðurinn verið að taka vel við sér og eftir- spurnin er orðin mun meiri.“ Hún segist sjá fyrir uppsveiflu hjá tölvunarfræðinemendum á næstu árum vegna eftirspurnar- innar, enda auðvelt fyrir fólk að fá vinnu í þessum geira í dag. Yngvi Björnsson, sviðsstjóri tölvunarfræðisviðs hjá Háskólan- um í Reykjavík, tekur undir orð Ebbu. „Ásókn í tölvunarfræðinga hefur aldrei verið meiri. Þeir sem útskrifuðust hjá okkur síðast voru allir komnir með vinnu við útskrift og margir höfðu fengið 4-5 atvinnutilboð án þess að leita nokkuð.” Hann segist ekki vita almenni- lega hvers vegna svo fáir leggi stund á nám í tölvunarfræði í dag. „Það er kannski einhver nörda- stimpill á þessu, ég veit það ekki. Tölvukennsla hefur líka farið minnkandi í framhaldsskólum síðan námsáætlunin var endur- skoðuð í kringum aldamótin,“ segir hann. „Krakkar hafa ekki jafn mikil tækifæri til að kynnast tölvunar- fræðinni öðru vísi en að einfald- lega nota tölvu. Þá verður þetta ekki jafn framandi og kemst ekki í tísku.“ „Ég get tekið undir það að það mættu vera fleiri að útskrifast í þessu fagi,“ segir Torfi Markús- son, starfsmannastjóri hjá TM Software. „Það er vont fyrir fagið að það séu svona miklar sveiflur í fjölda útskrifaðra.“ salvar@frettabladid.is Ekki nógu margir tölvunarfræðingar að Störfum Ebba Þóra Hvannberg, deildarstjóri tölvunarfræðideildar Háskóla Íslands, segist sjá fyrir uppsveiflu hjá tölvunarfræðinemendum á komandi árum. Auðvelt sé fyrir fólk að fá vinnu í þessum geira í dag. Mikið hefur breyst á undanförnum áratugum hvað varðar móttöku útlendinga sem koma hingað til lands til að vinna eða stunda nám, segir Paolo Turchi, skólastjóri Málaskólans Lingva. Hann hefur ákveðið að bjóða áhugasömum upp á grunnnámskeið í íslensku fyrir útlendinga í mars, þeim að kostn- aðarlausu. Turchi þekkir móttöku útlend- inga hér á landi af eigin reynslu, en hann fluttist hingað til lands frá Ítalíu fyrir rúmum tveimur ára- tugum og hefur starfað sem tungu- málakennari og kennt Íslending- um ítölsku. „Mér hefur fundist umræðan um innflytjendur á frekar lágu plani hér á landi undanfarið, svo mig langaði aðeins að rífa upp umræðuna. Mig langar að leggja mitt af mörkum,“ segir Turchi. Um er að ræða vikunámskeið sem kennir nemendum grunninn í mannlegum samskiptum í íslensku; að heilsa, þakka fyrir sig og fleira í þeim dúr. Námskeiðið fer fram 12.-15. mars næstkomandi og er pláss fyrir 30 nemendur. Hægt er að skrá sig á www.lingva.is. „Mér finnst stundum vegið að útlendingum hér á landi, þegar þeir eru fengnir til að vinna alla daga fram á kvöld, og fá svo skít- kast af því þeir tala ekki íslensku. Hvernig getur fólkið lært íslensku strax? Ég var þrjú ár í háskóla áður en ég gat tjáð mig almenni- lega,“ segir Turchi. Námskeiðið sem boðið verður upp á í Lingva verður með sama hætti og námskeið sem fjölmargir Íslendingar hafa sótt í erlendum tungumálum, en Turchi leggur meira upp úr því að ná grunnfærni frekar en málfræði, og lætur nem- endur gjarnan endurtaka setning- ar til að ná tökum á þeim. „Auðvitað býð ég líka upp á málfræðitíma, en þetta er aðferð sem hentar vinnandi fólki sem vill alltaf læra allt strax. Þetta er hag- nýtt nám, við köllum þetta örnám- skeið, það tekur bara viku. Síðan geta menn komið aftur og lært meira,“ segir Turchi. - bj Skólastjóri tungumálaskóla býður upp á ókeypis íslenskunámskeið: Vill taka vel á móti útlendingum PaoLo turchi „Mig langar að leggja mitt af mörkum.“ FRéttBlAðið/HöRðUR Kvennaskólinn í Reykjavík er einn allra elsti skóli landsins. Hann var stofnaður árið 1874 af hjónunum Þóru og Páli Melsteð og var, eins og nafnið gefur til kynna, eingöngu ætlaður konum. Á þeim árum var litla menntun að fá fyrir stúlkur og var Kvennaskólinn fyrsta mennta- stofnunin sem bauð stúlkum upp á formlega menntun. Í upphafi voru nemendurnir tíu og kennararnir þrír sem kenndu launalaust þar til Alþingi samþykkti að veita skólan- um styrk. Allt fram til ársins 1977 var skólinn eingöngu ætlaður stúlkum en það haust hóf fyrsti pilturinn nám við skólann. Skólinn varð framhaldsskóli árið 1979 og fyrstu stúdentarnir útskrifuðust árið 1982. Frá árinu 1909 hefur skólinn verið til húsa að Fríkirkjuvegi 9 en skólinn býr við fremur þröngan húsakost. Nemendur skólans eru um 550 talsins og starfsmenn eru 55. n Skólinn Kvennaskólinn í reykjavík > Fjöldi barna í leikskólum sem nutu sérstaks stuðnings Kjarni málsins Það eru líklega ekki margir á Íslandi sem geta kallað sig kínverskukennara. Það getur Magnús Björnsson hins vegar gert enda lætur hann sér ekki nægja að kenna Kín- versku hjá Símenntun Mímis heldur kennir hann einnig við Asíuver Íslands í Háskóla Íslands og á Akureyri. „ég er nú bara að kenna einn kúrs sem er hluti af námi í kínverskum fræðum. Kúrsinn heitir Viðskipti við Kína og þarna er fjallað um Kína í við- skiptafræðilegu ljósi,“ segir Magnús og bætir því við að menning og saga landsins komi vissulega einnig við sögu. Viðskipti við Kína hafa aukist á undan- förnum árum og Magnús er ekki í vafa um að Kína sé orðið land tækifæranna. „Það er ekki spurning að það verður sífellt meiri þörf fyrir fólk með þekkingu á þessu sviði. Námskeiðið sem ég kenni er góður grunnur. Þarna er fjallað um hvernig best sé að kom- ast inn á þennan stóra markað og hvernig best sé að hegða sér í samskiptum við Kínverja,“ segir Magnús og bætir því við að fólk úr ýmsum deildum hafi áhuga fyrir námskeiðinu. „ég kenni í Háskóla Íslands og flestir nemendur koma þaðan en svo er einnig stór hópur á Akureyri sem fylgist með í fjarkennslu.“ Magnús er með MA-gráðu í alþjóðastjórnmálum frá Kínverska þjóðarháskólanum í Peking. „ég bjó í Kína í fimm og hálft ár og tala fína kínversku í dag þótt hún hafi verið stremb- in í fyrstu. Síðustu tvö árin eða svo hef ég kennt kínversku hjá Mími og það er mjög skemmtilegt,“ segir Magnús, sem kennir bæði byrjendum og lengra komnum. „Það er auðvitað takmarkað hve mikið hægt er að læra á svona námskeiði en þetta gengur bara ljómandi vel. Kínverskan er erfið og þetta er svolítið eins og að læra tvö tungumál í einu því það er strembið að læra inn á ritmálið og læra öll táknin,“ segir Magnús, sem vinnur við ýmislegt annað samhliða kennslunni. „ég er að sýsla bæði í viðskiptum og ferðaþjónustu við Kína og svo hef ég líka haft nóg að gera við þýðingar.“ KeNNariNN: MAGNÚS BJöRNSSoN KÍNVERSKUKENNARi Ekki svo flókið að kenna kínversku Næstkomandi þriðjudag, 23. janúar, verður haldinn fræðslufundur á vegum skólaþróunarsviðs við Háskólann á Akureyri. Þar flytur dr. Þóroddur Bjarnason, prófessor við HA, erindi sem hann nefnir Svæðisbundinn munur á félagslegri þátttöku grunnskólanema af erlendum uppruna. Unglingum af erlendum uppruna hefur fjölgað talsvert hér á landi á undan- förnum árum. Rætt hefur verið um að þessi hópur standi höllum fæti í samfé- laginu en lítið hefur þó verið rannsakað í þeim efnum. Í Erindi Þórodds verða málefni þessara unglinga skoðuð í ljósi viðamikillar könnunar á heilsu og lífs- kjörum skólanema sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk á Íslandi vorið 2006. Fræðslufundurinn verður í stofu 16 í Þingvallastræti 23 og hefst kl. 16.30. Að erindi loknu gefst fundarmönnum tækifæri til fyrirspurna og umræðna. n fræðslufundur félagsleg þátttaka grunnskólanema Sú breyting er nú á námi í leiklistardeild listaháskólans að tekið verður inn á þrjár brautir deildarinnar annað hvert ár. teknir verða inn allt að tíu nemendur í leikaranám, tíu í fræði og framkvæmd og sex í dansnám. Sem fyrr verður leikaranámið fjögurra ára nám til BFA-gráðu, fræði og fram- kvæmd, þriggja ára nám til BA-gráðu og í stað eins árs diplómabrautar í dansi verður boðið upp á þriggja ára BA-nám í dansi. Með tilkomu dansbrautar og námsins í fræðum og framkvæmd fækkaði umsóknum í leikaranámið og þess vegna var brugðið á það ráð að breyta inntökuferlinu á þennan hátt. Þeir sem hugðu á inntökupróf vorið 2007 verða því að bíða um sinn. n Listaháskólinn Breytingar á inntöku í leiklistardeild Heimild: Hagstofa Íslands

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.