Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 72

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 72
 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR36 kevin costner er 52 ára í dag „Ef þú gerir þér ekki grein fyrir eigin takmörkunum muntu aldrei ná langt í lífinu.“ Leikarinn góðkunni sem kom hingað til lands fyrir nokkrum árum fæddist þennan dag árið 1955. merkisatburðir 1642 Abel Tasman er fyrsti Evrópubúinn sem kemur til Nýja-Sjálands. 1865 Þrælahald er afnumið í Bandaríkjunum. 1894 Konur í Suður-Ástralíu eru þær fyrstu í landinu til að fá kosningarétt og kjörgengi á Alþingi. 1930 Hótel Borg tekur til starfa með opnun veitingasala. Gistihúsið var tekið í notk- un í maí. 1969 Leigubílstjóri finnst myrtur í Reykjavík. Við tók umfangsmikil rannsókn, án þess þó að nokkur væri fundinn sekur um glæpinn. 1969 Á Korpúlfsstöðum verður eldsvoði þannig að miklar skemmdir verða á húsum og hluti af Skjalasafni Reykjavíkur brennur inni. Á þessum degi fyrir fjörutíu árum var Albert DeSalvo, sem sagðist vera hinn frægi Boston- kyrkjari, dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bandaríkjun- um fyrir rán, líkamsárás og kynferðisbrot. DeSalvo sagðist hafa myrt þrettán einhleypar konur í Boston á árunum 1962 til 1964. Ollu morðin mikilli skelfingu í borginni. Konunum, sem voru á aldrinum 19 til 85 ára, var nauðgað og síðan kyrktar til bana á heimilum sínum. Í sumum tilfellum sáust för eftir einhvers konar borða á hálsum þeirra. Hinn 35 ára DeSalvo var ekki dæmdur fyrir neitt morðanna því engin sönnunargögn þess efnis höfðu fundist. Við réttarhöldin, sem stóðu yfir í viku, reyndi lögfræðingur DeSalvo að sýna fram á að skjólstæðingur sinn væri sekur um morðin en ætti einnig við geðræn vandamál að stríða. Þess vegna ætti hann að afplána dóm sinn á hæli. DeSalvo var aftur á móti dæmdur heill heilsu og ekki sekur um morðin. Árið 1973 var DeSalvo myrtur af öðrum fanga. þetta gerðist: 18. jANúAR 1967 „Boston-kyrkjarinn“ í lífstíðarfangelsi albert desalvo Fjörutíu ár eru liðin síðan DeSalvo var dæmdur í lífstíðarfangelsi. FRéTTABLAðið/GETTyimAGES Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar, Ari Huynh veitingamaður, andaðist 15. janúar á Landspítalanum Fossvogi. Jarðarförin verður auglýst síðar. Margrét Huynh og börn hins látna. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þórir Guðmundsson bifreiðastjóri, Brekkubæ 33, sem andaðist fimmtudaginn 11. janúar, verður jarð- sunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 19. janúar kl. 15.00. Hlíf Samúelsdóttir Hreggviður Óskarsson Hafdís G. Halldórsdóttir Guðmundur Þórisson Sigrún Jónsdóttir Elsa Þórisdóttir Daníel H. Skúlason Samúel Þórisson Margrét Kristjánsdóttir Björgvin Þórisson María G. Þórisdóttir Ingi B. Erlingsson afabörn og langafabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, Þóra Kristín Eiríksdóttir Efstaleiti 12, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 14. janúar verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 23. janúar kl. 15. Tómas Árnason Eiríkur Tómasson Þórhildur Líndal Árni Tómasson Margrét Birna Skúladóttir Tómas Þór Tómasson Helga Jónasdóttir Gunnar Guðni Tómasson Sigríður Hulda Njálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Sigurlaug Gísladóttir áður til heimilis að Sóltúni 12, Keflavík, sem lést sunnudaginn 14. janúar, verður jarðsett föstudaginn 19. janúar kl. 14 frá Keflavíkurkirkju. Sigurður Gíslason Ólafsson Guðbjörg Ingimundardóttir Sigurbjörn Björnsson Þóra Þórhallsdóttir Halldór Björnsson Hulda Harðardóttir Gísli Grétar Björnsson Guðrún Jónsdóttir Lilja Björnsdóttir Símon Björnsson Guðmundur M. Björnsson Halldóra Birna Gunnarsdóttir Ísleifur Björnsson Ingigerður Guðmundsdóttir Hrönn Björnsdóttir Friðrik Steingrímsson Friðbjörn Björnsson Guðrún Helgadóttir Ómar Björnsson Viggó Björnsson Evelyn Eikemo Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, Óskar Ragnarsson húsasmíðameistari, Lagarfelli 9b, Fellabæ, Egilsstöðum, sem lést laugardaginn 13. janúar, verður jarðsunginn frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 20. janúar kl. 14.00. Þröstur Elvar Óskarsson Hulda Kristín Guðmundsdóttir Hrönn Björnsdóttir Hörður Gunnarsson barnabörn og barnabarnabarn. Elskulegur bróðir okkar og frændi, Sigurður Kristján Vilhelmsson Sævarlandi, sem lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 7. janúar síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Hvammskirkju, Laxárdal, laugardaginn 20. janúar kl. 11. Systkini hins látna og aðrir vandamenn. Ástkær bróðir okkar og frændi, Kristján Kristjánsson (Danni) lést á elliheimilinu Grund 12. janúar. Útförin fer fram í Árbæjarkirkju föstudaginn 19. janúar kl. 11.00. Fyrir hönd vandamanna, Kristján Helgason Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Ársæll Guðsteinsson rafvirki, Dalvegi 16c, Kópavogi, lést á líknardeild Landakotsspítala þriðjudaginn 9. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju fimmtudaginn 18. janúar kl. 13.00. Pálína K. Pálsdóttir Sigurður Ársælsson Anna Dóra Guðmundsdóttir Vilborg Ósk Ársælsdóttir Finnbogi G. Kristinsson Páll H. Ársælsson Guðrún H. Ársælsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. 50 ára afmæli Margrét Jónsdóttir þroskaþjálfi , Spóahólum 20, 111 Reykjavík. Í dag þann 18. janúar 2007 er hún 50 ára og fagnar deginum með fjölskyldu sinni. Í tilefni þess býður hún ætting j- um og vinum til veislu laugardaginn 20. janúar 2007 á Sportbarnum, Hverfi sgötu 46, 101 Reykjavík. Veislan hefst kl. 18.55. timamot@frettabladid.is KRiSTiNN péTuRSSON:gefurútfyrstubloggbókíslands Á fullt erindi á pappír Kristinn Pétursson undir- býr útgáfu fyrstu bloggbók- ar Íslands. „Ég veit að Beta rokk gaf út einhverja svona bloggbók,“ sagði Kristinn, „en þetta verður örugglega ein fyrsta íslenska bókin með efni sem hefur allt verið birt á netinu áður,“ sagði hann. Það eru þó ekki skrif Kristins sjálfs sem munu rata í bókina, heldur færslur bloggarans og Norð- firðingsins Jóns Knúts Ásmundssonar. Jón Knútur, sem er búsettur á Egilsstöð- um, hafði þó lítið um málið að segja. „Ég blogga bara. Ég á í sjálfu sér ekkert að vera meðvitaður um þetta,“ sagði Jón Knútur, sem kvaðst hafa orðið var við að hann ritskoðaði sjálfan sig eftir að bókarút- gáfan barst í tal. „Þetta verður bara blogg á bók, það er ekkert plott í þessu eða söguþráður,“ sagði Jón, sem hefur verið iðinn við blogg- ið frá árinu 2003. Útgefandinn Kristinn er með fingurna í ýmsum verk- efnum og heldur úti nokkr- um vefjum undir merkjum Mínervu miðlunar og útgáfu. Bloggbókin verður þó fyrsta verkefnið sem hann sendir frá sér í bókar- formi. „Ég er búinn að vera með það lengi á teikniborð- inu að gefa út ferðahand- bækur fyrir Íslendinga, en það er seinlegt þegar maður er að stússast í því að skrifa sjálfur. Þegar einhver annar er tilbúinn með efni sem manni líkar og vill að fleiri fái að lesa er bara um að gera að slá til,“ sagði Kristinn. Hann er þó ekki frá því að blogg- bókin geti að ein- hverju leyti fall- ið undir ferðasöguhatt- inn. „Allir prósa- textar eru náttúr- lega ferðasögur í gegnum eitt eða tvö andartök eða daga,“ sagði Krist- inn. „Textar Jóns eru margir minn- ingabrot, skemmtisög- ur, sjálfskrufning með þægilegum jón knútur Höfundur bloggbókarinnar lætur yfir- vofandi útgáfu lítið á sig fá.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.