Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 74
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig!
Viltu breyt’eikkurru?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
50MB frítt
myndasvæði!
Búðu til myndaalbúm
á síðunni þinni!
Ný útlit í viku
hverri!
Búðu til eigið útlit
eða veldu tilbúið!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Í mínum bókum þýðir
vetrartíð á borð við
þá sem hefur ríkt í
Reykjavíkinni
undanfarna daga að
fólki beri að leggjast
undir feld, telja á sér
tærnar og bíða þess að
hún líði hjá. Þar sem ég
bý hins vegar svo vel að geta
hreinlega klætt mig í feldinn og
tekið hann með mér hefur mér
gefist færi á að fylgjast með brölti
borgarbúa í sköflunum. Athuganir
mínar hafa leitt það í ljós sem mig
hefur alltaf grunað: heimskauta-
refurinn á ekki séns í íslenska
kvendýrið hvað varðar titilinn
harðgerasta skepna í heimi.
Ég er yfirlýstur aumingi og
lítil keppnismanneskja, svo ég er
stikkfrí í baráttunni um titilinn
þann. Sem kuldaskræfa hef ég
heldur ekki mikinn skilning á afl-
inu sem drífur kynsystur mínar
áfram, íklæddar hámark þremur
flíkum í gaddinum. Það spaugileg-
asta finnst mér nú samt að fylgj-
ast með þeim skakklappast í gegn-
um skaflana á tíu sentímetra
háum hælum. Ég er ekki frá því
að of háir hælar séu skaðræðustu
tískumistök sem konur geta gert.
Það má vel vera að þeir lengi leggi
og ýti réttum stöðum á líkaman-
um fram og öðrum út, en það
kemur bara ekki að neinum notum
ef göngulagið líkist einna helst
blindfullum elg. Og trúið mér, það
er alls ekki óalgengt.
Þeim sem mig þekkja á væntan-
lega eftir að finnast það áhuga-
vert, svo ekki sé meira sagt, að ég
taki hér að mér að útdeila tísku-
ráðum. Sérstaklega í ljósi þess að
síðustu daga hef ég iðulega farið
út úr húsi með hárið í bendu, ómál-
uð og í fötum sem var aldrei ætlað
að hittast - allt með hlýindi og sem
minnsta fyrirhöfn að leiðarljósi.
Ég þramma áfram í að meðaltali
fjórum peysum, með húfu, vett-
linga, risatrefil og íklædd feld á
stærð við rúmteppið mitt á hverj-
um snjóþungum degi. Ég viður-
kenni að ég er kannski ekki yfir-
gengilega smart, en ég næ að fóta
mig. Það er eina tískuráðið sem ég
get gefið: fótfesta er grundvöllur
lekkerheita.
stuð milli stríða Harðgerasta skepna heims
sUnnA Dís MásDóTTIR tekur ekki þátt í baráttunni um titilinn
Takk fyrir
kvöldið Maggi
minn, ég
skemmti mér
stórkostlega.
Ég skemmti
mér sömuleiðis
frábærlega vel,
við verðum að
gera þetta sem
fyrst aftur.
Já og enn og aftur
takk fyrir matinn! Ég
þori ekki einu sinni að
hugsa til þess hvað
kostar að láta fljúga
með ekta taílenskan
mat alla leið frá
Taílandi.
Allt fyrir
þig Fjóla
mín!
Jæja hættið nú! Það er
fólk að reyna að sofa
hérna ... Jesús!
Stærðfræði!
Dönskustíll!
Skólaball!
Afmælisdagur
Pálínu!
Líffræði-
próf!
Líffræði-
próf!
Fundur! Eftirseta!
Samfélags-
fræði!
Þú ert hálffölur,
Palli minn.
Svona líta menn
út þegar dauðar
endur ofsækja
þá!
Og sigurvegarinn
fyrir óhugnanlegasta
búninginn er ....
Mikið væri ég til í
að vita hvað hann
gerir þegar ég er
ekki hér ...
Hvað meinarðu að þú sért
ólétt, ég er ólétt!
Ég er líka ólétt!
Hvenær komstu
að þessu?
Í síðustu
viku!
Sama hér, hvað
ertu komin langt
á leið?
Átta vikur!
Sama hér!
Við eigum eftir að
tútna út saman!
Það verður
æði að vera
ekki ein að
standa í
þessu!