Fréttablaðið - 18.01.2007, Page 78
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR42
Leikfélag Selfoss frumsýnir og frumflytur á Íslandi
safn einþáttunga og smásagna eftir Anton Tsjekov,
undir yfirskriftinni Hnerrinn, annað kvöld.
Hnerrinn er 66. verk Leikfélags Selfoss, en félag-
ið hefur starfað óslitið frá árinu 1958 og hefur alla
tíð verið einn af máttarstólpum menningarstarf-
semi í sveitarfélaginu.
Hörður Sigurðarson leikstýrir verkinu og þýddi
hann einnig enska leikgerð Michaels Frayn. Frayn
hefur þýtt fjölda verka Tsjekovs auk þess að vinna
leikgerðir úr smásögum leikskáldsins sem þekktur
er fyrir lúmskan húmor sinn og glöggar mannlýs-
ingar. Fimm þeirra sagna setti Frayn saman í eitt
verk sem ber nafn sögunnar um hnerrann.
Áhorfendur mega því eiga von á skemmtilegri
kvöldstund með persónum Tsjekovs, þeir kunna að
mæta uppáþrengjandi rithöfundum, sorgmæddum
trúðum, þunglyndum ekkjum og fleiri furðukarakt-
erum í sönnum rússneskum sagnaanda.
Sýningar leikhópsins fara fram í Litla leikhúsinu
við Sigtún á Selfossi. - khh
Furðusögur frá Rússlandi
Tsjekovskar kenjar Leikfélag Selfoss sýnir Hnerrann,
leikgerð byggða á smásögum Antons Tsjekov.
Óseldum miðum er tekið
að fækka á sýningar San
Francisco-ballettsins sem
kemur hingað á Listahátíð
í vor og verður með sjö
sýningar í Borgarleikhús-
inu. Þar er sextíu manna
flokkur á ferð og verða ein-
vörðungu verk eftir Helga
Tómasson á dagskránni. Á
blaðamannafundi í gær var
tilkynnt að Landsbankinn
yrði aðalkostandi heimsókn-
arinnar en Flugleiðir leggja
sitt til, hingað flígur Helgi
með sínu fríða föruneyti til
sýninganna í þeirra boði.
Heimsóknin boðar upphaf
afmælisárs San Francisco-
dansflokksins sem á að baki
75 ára sögu.
Helgi er að koma heim og nú verð-
ur okkur löndum hans í fyrsta sinn
boðið upp á heila dagskrá af döns-
um hans: þeir eru allir frá síðustu
árum en Helgi hefur stýrt San
Francisco-ballettinum í rúma tvo
áratugi. Enginn íslenskur svið-
slistamaður hefur átt annan eins
feril og Helgi Tómasson og hann
myndar á sinn sérstaka hátt glæsi-
legan boga sem á upptök sín aftur
í bláupphafi ballettsins á Íslandi
til þessa dags.
Saga hans er böðuð ævintýra-
ljóma: snemmsumars 1947 sneri
Friðbjörn Björnsson heim til
Íslands og dansaði með litlum hópi
dansara frá Konunglega danska
Ballettinum í Iðnó og fór að auki
heim til Vestmannaeyja. Þar sá
ungur drengur ballett í fyrsta sinn
og heillaðist: þetta vildi hann gera.
Hann var á sjötta ári. Tíu ára var
Helgi kominn til Reykjavíkur og í
nám í Listdansskóla Þjóðleikhúss-
ins. Þar lenti hann undir verndar-
væng Erik Bidsted og Lisu konu
hans. Hann fékk því sinn stranga
skóla í klassískri hefð Bournon-
ville-skólans en um leið sinn skerf
af pantómímunni sem Bidsted
kunni svo vel.
Fimm árum og mörgum sýn-
ingum síðar tóku þau hann með
sér til Hafnar til starfa í Tívolí.
Tækifæri Helga kom fáum árum
seinna þegar Ballet USA undir
stjórn Jerome Robbins kom til
Reykjavíkur 1959. Robbins var
snöggur að lesa hina fullkomnu
byggingu hins unga dansara og
útvegaði honum styrk til náms í
School of American Ballet: tvítug-
ur var Helgi ráðinn til Robert
Joffrey-flokksins og fór í fyrstu
sýningarferð flokksins til Sovét-
ríkjanna. Hann var ráðinn til
Harkness tveim árum síðar og
varð helsti dansari flokksins
næstu sex árin. Hann var kepp-
andi fyrir hönd Bandaríkjanna á
Alþjóðlegu danskeppninni í
Moskvu 1969 en varð að lúta í
lægra haldi fyrir Baryshnikov -
heimamanni. Segja sumir að þar
hafi tekist á tvö heimsveldi.
Árið eftir varð hann aðaldans-
ari New York City Ballet og var
um fimmtán ára skeið: hann var
með afbrigðum fjölhæfur túlk-
andi, bæði verk Robbins og Bal-
anchine voru honum töm. Allir
helstu danshöfundar heimsins
vildu semja fyrir hann verk. Ferill
hans til þessa tryggði honum sess
í danssögu heimsins á 20. öld en
1985 sneri hann kvæði sínu í kross
og tók við stjórn San Francisco-
ballettsins þar sem hann hefur
setið á friðarstóli síðan. Úrvinnsla
hans á hefðbundnum aðferðum
klassíska dansins nýtur alþjóð-
legrar viðurkenningar og aðdáun-
ar.
Helga hefur skort þá fram-
hleypni að glæsilegur ferill hans
er fáum kunnur: í dansheiminum
íslenska er nafn hans logagyllt:
það er því mikill happafengur að
Landsbankinn, Flugleiðir, Lista-
hátíð, Leikfélag Reykjavíkur og
San Francisco-ballettinn skuli
leggjast á eitt að fá hann hingað
heim með flokk sinn og verk.
Sigurjón Árnason bankastjóri
var að vonum upp með sér á blaða-
mannafundi í gær að geta lagt
þessu lið. Efnt verður til sögusýn-
ingar á vegum Leikminjasafns
Íslands um sögu Helga og hans
glæsilega feril og um leið sögu
San Francisco-ballettsins. Ferill
þessa glæsilega listamanns er á
enda kominn: Helgi verður 65 ára
í haust. Hann getur brátt hætt að
stjórna því stórfyrirtæki sem
Ballettinn í San Francisco er.
Dansar hans eru víða fluttir og lík-
lega getur hann, kæri hann sig
um, fylgt þeim áfram og styrkt
enn yfirburðastöðu sína í sögu
ballettsins sem danshöfundur og
sá meistari sem hann er. Raunar
er furðulegt að íslensk stjórnvöld
hafi ekki hlutast til um að ævifer-
ill hans væri skráður á bók - sú
bók væri til útgáfu á þremur
tungumálum: ensku, dönsku og
íslensku - svo einstakur sem þessi
kurteisi og virti listamaður er.
Helgi kemur heim í vorið
LisTdans Helgi Tómasson balletdansari
og danshöfundur í síðustu heimsókn
sinni hingað. Sjö ár eru frá síðustu
heimsókn San Francisco-ballettsins en
Landsbankinn styrkir heimsóknina nú.
LisTdans Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, og Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, ganga frá samn-
ingi um tilstyrk bankans við heimsókn San Francisco Ballet. Framkvæmdastjóri flokksins, Robert Russo, fylgdist með.
„DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“
DAGUR VONAR