Fréttablaðið - 18.01.2007, Qupperneq 79
n n TÓNLEIKAR
c 21.00 Hljómsveitirnar Mammút og
Slugs leika á Café Amsterdam.
n n OPNANIR
c 17.00 Stephan Stephensen, öðru
nafni President Bongo, opnar sýn-
ingu í 101 Gallerý við Hverfisgötu.
n n SÝNINGAR
c 11.00 Færeysku listmálarnir
Edward Fuglø, Astri Luihn, Sigrun
Gunnarsdóttir, Torbjørn Olsen,
Eyðun av Reyni og Ingálvur av
Reyni sýna verk sín í menningar-
miðstöð Hafnarfjarðar í Hafnarborg.
Listamennirnir á sýningunni Sýningin
stendur til 4. febrúar.
c 11.00 Sýningin Frelsun litarins/
Regard Fauve í Listasafni Íslands
geymir verk frönsku expressjónist-
anna frá upphafi 20. aldar. Sýningin
kemur frá Musée des beaux-arts í
Bordeaux í Frakklandi, 52 verk eftir
þrettán listamenn, þar á meðal
meistarana Renoir og Matisse.
c 13.00 Myndlistarmennirnir Jóhann
Torfason og Hlynur Helgason
sýna verk sín í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu. Sýningarnar standa til
28. janúar.
c 15.00 Listasafninu á Akureyri
standa yfir tvær sýningar. Annars
vegar á verkum Jóns Óskars, sem
kallast Les yeux de l‘ombre jaune
eða Augu Gula-Skuggans og hins
vegar innsetning eftir bandaríska
listamanninn Adam Bateman
en sýning Bateman ber heitið
Tyrfingar.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JANÚAR
15 16 17 18 19 20 21
Fimmtudagur
Hjónin Stefán Höskuldsson flautu-
leikari og Elizaveta Kopelman
halda tónleika í Salnum í Kópa-
vogi á morgun á vegum Tíbrár-
tónleikaraðarinnar. Á efnisskrá
kvöldsins eru verk eftir Bach,
Fauré, Debussy og Prokofiev.
Árið 2004 var Stefán tilnefndur
annar flautuleikari við Metropo-
litan-Óperuhljómsveitina í New
York sem er undir stjórn James
Levine. Stefán er eini Íslendingur-
inn sem hefur hlotið stöðu við þá
hljómsveit. Auk þessa er Stefán
meðlimur í Metropolitan-Kamm-
erhljómsveitinni sem kemur
árlega fram í Carnegie Hall. Á
Íslandi hefur Stefán haldið fjölda
einleikstónleika og konserta með
hljómsveit; sem dæmi má nefna
einleikstónleika í Listasafni
Íslands og tónleikaröð Ýmis. Árið
2003 spilaði Stefán „La Notte“-
flautukonsert eftir Vivaldi með
Kammersveit Reykjavíkur og í
júní 2006 frumflutti hann á Íslandi
svo eftirminnilega flautukonsert
eftir Lowell Liebermann með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands.
Elizaveta er margverðlaunaður
hljóðfæraleikari, hefur komið
fram sem einleikari í Bretlandi,
Evrópu, Bandaríkjunum og Suður-
Ameríku og spilað debut-tónleika
og almenna tónleika við frægustu
tónlistarhús heims. Á Tíbrár-tón-
leikum í nóvember frumflutti hún
allar prelúdíur og fúgur Dímítríj
Sjostakovitsj. Saman hafa þau
hjónin komið fram víðs vegar um
Evrópu og hlotið lof fyrir framm-
stöðu sína enda eru þau listafólk á
heimsmælikvarða.
Tónleikarnir í Salnum hefjast
kl. 20.
Samstilling í Salnum
ELIzAVETA KOPELmAN OG STEFáN
HöSKuLdSSON Hafa leikið saman víðs
vegar um Evrópu.
Það er fjör í kórum. Í vor mun kór-
inn Vox academica flytja Ein
deutsches Requiem eftir J.
Brahms í fyrstu viku maí ásamt
liðlega 40 manna sinfóníuhljóm-
sveit og einsöngvurum. Kórinn
hefur ævinlega leitast við að fá til
samstarfs við sig afbragðs tónlist-
armenn og í Ein deutsches Requi-
em munu Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran og Kristinn Sigmundsson
syngja einsöng í verkinu, auk
félaga úr Jón Leifs Camerata sem
leika undir stjórn hljómsveitar-
stjórans Hákonar Leifssonar.
Þetta er semsagt alvöru dæmi.
Vox academica hefur undan-
farin ár skapað sér nafn og sess í
íslensku tónlistarlífi og á nú
traustan hóp áheyrenda, enda er
kórinn skipaður söngfólki með
víðtæka reynslu af tónlist og legg-
ur áherslu á metnaðarfulla og fjöl-
breytta dagskrá. Kórinn heldur að
jafnaði þrenna tónleika á ári og
hefur lagt áherslu á að flytja að
minnsta kosti eitt stórt kórverk
með hljómsveit ár hvert. Meðal
klassískra kórverka sem kórinn
hefur flutt má nefna Requiem
eftir Fauré, Chichester Psalms e.
Bernstein, Gloria e. Vivaldi,
Carmina burana eftir Orff og
Requiem e. Mozart og Christ lag
in Todesbande e. Bach. Meðal
samtímaverka má nefna Lincoln
Mass eftir Úlfar Inga Haraldsson,
African Sanctus eftir David
Fanshawe og Hjörturinn skiptir
um dvalarstað eftir Hróðmar Inga
Sigurbjörnsson svo fátt eitt sé
nefnt. Á síðustu aðventu flutti
kórinn jóla þáttinn úr Messíasi
eftir Händel, og Magnificat eftir
Bach og hlaut mjög góðar viðtök-
ur.
Þar sem Deutches Requiem er
rómantískt verk og útheimtir
stærri kór getur Kammerkórinn
Vox academica boðið nýju söng-
fólki til þáttöku í þessum fyrir-
hugaða flutningi verksins. Ein-
göngu er verið að leita að kórvönu
fólki sem hefur einhverja reynslu
af tónlistariðkun eða tónlistar-
námi. Kóræfingar eru í Melaskól-
anum í Reykjavík á þriðjudags-
kvöldum frá 19:30 – 22:15 og fyrsta
mánudag í hverjum mánuði frá
18:30 – 22:30. Hér gefst því kór-
fólki gott tækifæri til að taka þátt
í merkilegum flutningi. Stjórnandi
og stofnandi Vox academica er
Hákon Leifsson, en frekari upp-
lýsingar má finna á www.habil.is/
vox. -pbb
Raddir vantar í kór
TÓNLIST Vox Academica vantar fleiri raddir til að syngja stórvirki í vor.
FIMMTUDAGUR 18. janúar 2007 43
DJAMMIÐ UM HELGINA:
Allt um djammið
TÓNLISTARVEISLA
Á GRAND ROKK
Fimmtudagskvöld:
SOUTH RIVER BAND
Laugardagskvöld:
LAY LOW