Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 83

Fréttablaðið - 18.01.2007, Side 83
 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR46 maturogvin@frettabladid.is VÍNVIÐURINN Einar Logi Vignisson F í t o n / S Í A Margir hafa kynnst kókosmjólk á síðustu árum, enda er hún skemmti- leg viðbót við matargerðina. „Í Taílandi er hún til dæmis notuð í karrírétti og súpur og til þess að búa til desert,“ sagði Ning de Jesus hjá Sælkerabúðinni á Suðurlands- braut og Nings. Hann ætti að vita ýmislegt um málið, því í Sælkera- búðinni má fá allt frá mjólkinni og kókosdufti til eftirréttagerðar, til fersks kókoskjöts. „Ég sel nánast allt nema tréð,“ sagði Ning hlæj- andi. Afurðir kókoshnetunnar eru almennt taldar búa yfir nokkrum lækningamætti. Nýlegar rann- sóknir sýna að í kókoshnetuolíu sé að finna sýrur sem vinni á HIV- veirunni. Þessar sýrur, sem einnig er að finna í móðurmjólk, virka vel á fjöldann allan af veiru- og bakteríusýkingum, og að sögn Nings, gallsteina. „Við seljum kókoshnetusafa sem margir Íslendingar, og Asíu- búar, kaupa við gallsteinum. Marg- ir hafa losnað við steina eftir að drekka hann,“ sagði hann. Hægt er að kynna sér lækningamátt kókoshnetuolíu á netinu, en Ning bendir á að hún sé jafnframt notuð sem fegrunarmeðal. „Asíubúar og Indverjar bera hana oft í hárið. Það gerir hárið mýkra og gefur því glans,“ sagði hann. „Svo er líka búið til krem úr kókosmjólkinni,“ bætti hann við. Kraftur kókoshnetunnar NINg dE jEsUs Í Sælkerabúðinni hjá Ning má fá nánast allt kókostengt, nema tréð sjálft. fréttablaðið/hari kRaftmIkIL kókoshNEta afurðir kókoshnetunnar eru taldar búa yfir ýmiss konar lækningamætti. Athugaðu... ...að avókadó þroskast mun hraðar ef það er sett í poka ásamt epli eða banana. Það er því engin ástæða til að örvænta þó að allar lárperurnar í búðinni séu grjótharðar. Lífrænt ræktuð vín og hollusta eru þema janúarmánaðar. Í næstu viku ætla ég að kíkja á hitaeiningarnar sem fylgja blessuðu alkóhólinu en áður er vert að klára umfjöllunina um lífrænt ræktuðu vínin. Fyrst aðeins um ofnæmi sem ég fjallaði um í fyrsta pistil ársins. Ég hef fengið fyrirspurnir frá mígrenisjúklingum sem segjast þola hvítvín betur en rauðvín og spyrja um ástæður þess. Um þetta er afar lítið vitað en talið tengjast því að engin tannín (eða barkarsýra) eru í hvítvíni. Þetta er efnið sem myndast þegar hýðið og jafnvel steinarnir er látið gerjast með safanum eins og í rauðvínsframleiðslu. Virka efnið í barkarsýrunni binst mjög auðveldlega öðrum efnum og getur þannig virkað sem ofnæmishvati. Þess ber að geta að efnið er ekki alslæmt því þessu sama efni eru þökkuð heilsusamleg áhrif rauðvíns á æðakerfið. Lífrænt ræktuð vín hafa verið í mikilli sókn undanfarin ár, bæði hjá þeim sem vilja forðast aukefni í mat og eins þeim sem vilja að mann- kynið gangi sómasamlega um jörðina. Þessa miklu vitundarvakningu hafa margir matvælaframleiðendur spilað inn á og lífræni bransinn er orðinn stórbissness sem stundum snýst meira um ásýnd en innihald. Í víngeiranum voru minni háttar framleiðendur sem fókuseruðu meira á aðferðina en gæðin áberandi í byrjun en það hefur breyst mikið. Jafnframt hafa æ fleiri framleiðendur sem stunda lífræna ræktun fengið sér vottun enda er hún orðin mikilvægt markaðstæki. Vottunin kostar hinsvegar töluverða fjármuni og því hafa margir minni fram- leiðendur ekki enn útvegað sér hana. Einn slíkur er ítalska vínhúsið Fontodi sem gerir alveg prýðilegt chianti classico vín (1.890 kr.). Lífræn ræktun hefur náð mikilli útbreiðslu í Bandaríkjunum og þarlend fyrirtæki taka fyrirbærið alla leið eins og sjá má á umbúðum og framsetningu Bonterra-vínhússins. Hér fæst í vínbúðum Bonterra Cabernet Sauvignon (1.990 kr.), fágað og skemmtilegt vín. Von er á fleiri vínum frá Bonterra í vínbúðir á næstunni og bíð ég sérstaklega spenntur eftir framúrskar- andi víni þeirra úr þrúgunni viognier. Bonterra er í eigu hins þekkta framleiðanda Fetzer sem hefur gefið út að fyrirtækið stefni að því að gera alla framleiðslu sína lífræna á næstu árum. Í nýjasta hefti Gestgjafans er Dominique Plédel Jónsson með vandaða umfjöllun um lífrænt ræktuð vín. Vínið frá Bonterra fær fjórar stjörnur hjá henni og það gera líka t.d. frönsku vínin frá Chapoutier og Pujol sem margir vínunnendur kannast við. Besta umsögn, fjóra og hálfa stjörnu og titilinn vín mánaðarins, fær Domaine d’Aupilhac Montpeyroux (2.200 kr.) sem er lítill fram- leiðandi í Languedoc. Þar ræður hugsjónin eins og hjá Fontodi þótt vottunina vanti. Á botNINN hVoLft: lífrænt ræktuð matvæli eru oft dýrari en önnur matvæli og gildir það sama um vínin. Kosta oft um 2.000 kr. en sum eru ódýrari eins og Domaine d’aupilhac lou Maset (1.600 kr.) sem er fínt að byrja á áður en ráðist er á stóra bróður, Montpeyroux. Góð lífrænt ræktuð vín Sóley Tómasdóttir vara- borgarfulltrúi er ekki hrifin af uppskriftum. Hún hefur engu að síður mjög gaman af því að elda. „Uppskriftir eru ekki mín sterk- asta hlið, ég elda bara eftir tilfinn- ingu,“ segir Sóley, sem kvaðst hafa átt í þó nokkrum erfiðleikum með að setja saman þessa upp- skrift. „Ég sá þetta einhvern tíma í matreiðsluþætti Jamie Oliver og gerði svona eftir minni,“ segir Sóley, enda heitir brauðið góða Jamie-brauð á heimili hennar. Sjónvarpskokkurinn geðþekki er í þó nokkru uppáhaldi hjá Sóleyju. „Ég horfði alltaf mikið á Eldað eftir tilfinningu LÍtIÐ fyRIR UppskRIftIR Sóley tómasdóttir er afar hrifin af hugmyndafræði sjón- varpskokksins Jamie Oliver, og fer frekar eftir henni en uppskriftum. fréttablaðið/róSa hvaða matar gætirðu síst verið án? líklega epla. ég er nánast háð þeim. Þau geta komið í stað flest alls annars. besta máltíð sem þú hefur fengið: Það var á sveitaveitingastað í gömlum kvennaskóla í Norður-Þýskalandi. ég var rétt komin holdvot og vindbarin frá túr út í frísnesku eyjarnar og okkar beið ferskur aspas í forrétt, kálfalund í aðalrétt og nýtínd jarðaber í eftirrétt. Með kjötinu voru bara kartöflur, ekkert annað. Einfalt, úr góðu hráefni og því fullkomið. Er einhver matur sem þér finnst vondur? Eiginlega finnst mér allur matur góður en ég finn þó fyrir minnkandi spenningi fyrir stórsteikum. Leyndarmál úr eldhússkápnum: Ostar. Það er alltaf hægt að rigga upp góða máltíð ef maður á osta. hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Það fer eftir því af hverju vanlíðanin stafar. Ef ég er orkulaus langar mig í fitu, til dæmis sviðasultu. hvað áttu alltaf til í ísskápnum? G-mjólk í kaffið. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tækirðu með þér? baunir. Þær geymast vel og standa lengi og vel með manni. hvað er það skrítnasta sem þú hefur borðað? líklega ostrur. ég hafði þráð að smakka þær allt frá því ég las Önnu Karenínu sem unglingur. Pantaði þær svo við fyrsta tækifæri á góðum fiskréttastað í london en brá í brún þegar ég áttaði mig á því að þær voru bornar fram lifandi. En með hjálp sítrónunnar, og minninganna, lét ég mig hafa það. matgæÐINgURINN sVaNfRÍÐUR jóNasdóttIR bæjaRstjóRI Dreymdi um ostrur á unglingsárum JamiE-brauð Deig: 450 g hveiti 20 g salt 300 ml ylvolgt vatn 1 bréf þurrger 1 msk sykur Kryddolía: 1/2 dl ólífuolía Handfylli af fersku kryddi 2-4 hvítlauksrif Fylling: 1 pk parmaskinka 100 g ferskur mozzarella-ostur 80 g rifinn ferskur parmesanostur 4 harðsoðin egg skorin í 4 báta búið til deigið. blandið sykri og geri út í vatnið og bíðið þar til gerið hefur blandast vel. blandið saman hveiti og salti og setjið vökvann út í. hnoðið og látið deigið hefast í 20-30 mínútur. blandið saman innihaldi krydd- olíunnar og látið standa á meðan deigið hefar sig. fletjið deigið út í ca 80 sm langa og 10-15 sm breiða lengju. Skvettið hluta af kryddolíunni á deigið og raðið skinku, osti og eggjabátum eftir lengjunni. lokið svo lengjunni eins og umslagi, með því að klemma endana saman eftir endilöngu utanum innihaldið. Skvettið restinni af kryddolíunni yfir og bakið í ofni við 180°C í 15-20 mínútur, eða þar til brauðið er orðið hæfilega dökkt. hann og varð fyrir miklum inn- blæstri af matreiðslubókunum hans, þó að ég hafi aldrei fylgt uppskriftunum beint,“ segir Sóley, sem eldar frekar eftir hugmynda- fræði að eigin sögn. „Það sem mér finnst frábært við Jamie Oliver er hugmyndafræðin – að nota ferskt hráefni og vinna með það,“ segir hún. „Aðrir matreiðsluþættir eru ekki það sama. Það vantar ein- hvern veginn ferskleikann,“ bætir hún við. Sóley segist vera dugleg að elda heima við. „Það er bara dekur að elda góðan mat. Þá hefur maður það ofsalega huggulegt,“ segir hún. Kökur eru þó ekki ofarlega á vinsældalistanum hjá henni. „Ég held að það sé af því að get ekki farið eftir uppskrifum, ég hef enga tilfinningu fyrir kökum. Ég bý frekar til salöt og eitthvað dótarí,“ segir Sóley, sem bendir á að fyll- ingunni í Jamie-brauðinu megi auðveldlega skipta út eftir tilfinn- ingu og smekk hvers og eins. Kryddi í olíunni má eins skipta út, en Sóley mælir með rósmaríni og timjani. sunna@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.