Fréttablaðið - 18.01.2007, Síða 91
54 18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
ÍþRóTTIR Fréttablaðið fjallaði á
dögunum um launamál formanns
KSÍ og kom fram í þeirri umfjöll-
un að fjórir einstaklingar réðu
launum Eggerts Magnússonar,
formanns KSÍ, og að aðeins sex
vissu hversu há launin væru enda
kostnaður vegna formannsins ekki
sundurgreindur í ársreikningi
sambandsins og hans ekki heldur
getið í fjárhagsáætlunum.
Fréttablaðið fór á stúfana í kjöl-
farið og aflaði sér upplýsinga um
launakjör formanna hinna stóru
boltagreinanna - handbolta og
körfubolta - ásamt upplýsingum
um kjör forseta ÍSÍ. Eggert Stein-
grímsson, gjaldkeri KSÍ, sagði í
samtali við Fréttablaðið á dögun-
um að hann hefði alltaf litið á málið
þannig að formaður KSÍ og forseti
ÍSÍ væru með svipuð laun.
Ekki hvílir nein leynd yfir laun-
um forseta ÍSÍ. Allt síðan árið 1996
hefur kostnaður vegna forseta ÍSÍ
verið sundurgreindur í ársreikn-
ingum sambandsins. Starf forseta
ÍSI er ekki skilgreint sem launað
starf eða fullt starf.
Forseti, framkvæmdastjórnar-
menn og nefndarmenn innan starf-
semi ÍSÍ sinna sínum störfum í
sjálfboðaliðavinnu en ÍSÍ telur
rétt að greiða forsetanum risnu og
útlagðan kostnað vegna álags sem
fylgir starfinu.
Laun forseta ÍSÍ eru 120 þús-
und krónur á mánuði sem eru
greiddar í formi risnu. Greiðsl-
an kemur til vegna símanotkun-
ar, fatnaðar og ýmissa atriða
sem tengjast því að vera í emb-
ætti forseta ÍSÍ. Af þessari
greiðslu er síðan dregin stað-
greiðsla.
Guðmundur Ingvarsson, for-
maður HSÍ, sagðist ekki þiggja
nein laun fyrir sína vinnu í þágu
handboltans. Hann er með um
5.000 króna dagpeninga er hann
ferðast erlendis á vegum sam-
bandsins. Guðmundur sagði að
allur gangur væri þó á því hvort
hann þæði dagpeninga og stund-
um ferðaðist hann á vegum HSÍ
án þess að taka nokkuð fyrir.
Hannes Jónsson, formaður
KKÍ, kemur á annan hátt að
starfi síns sambands en Guð-
mundur en Hannes tekur virkan
þátt í rekstri sambandsins og
eyðir drjúgum tíma á skrifstofu
sambandsins þar sem hún er
undirmönnuð að þeirra mati.
Fyrir þá vinnu þiggur Hannes
50 þúsund krónur á mánuði.
Hannes þiggur ekki dagpeninga
ef hann ferðast erlendis í erinda-
gjörðum KKÍ. „Við höfum ein-
faldlega ekki efni á að greiða
mér né landsliðsmönnum dag-
peninga,“ sagði Hannes.
KSÍ er langstærsta sérsam-
band Íslands eins og sést á veltu-
tölum sem fylgja fréttinni og
rekstur þess sambands að mörgu
leyti ólíkur hinum samböndun-
um enda býr KSÍ við allt annað
umhverfi en hin samböndin,
meðal annars vegna þeirra háu
styrkja sem sambandið fær frá
UEFA og FIFA.
henry@frettabladid.is
Aðeins hvílir leynd yfir launum
formanns Knattspyrnusambandsins
Ekki hvílir nein leynd yfir launum formanna HSÍ og KKÍ sem og forseta ÍSÍ þar sem kostnaður vegna
forsetans hefur verið sundurgreindur síðan 1996. Formaður HSÍ fær ekkert greitt en formaður KKÍ fær 50
þúsund krónur í mánaðarlaun. Forseti ÍSI fær greidda mánaðarlega risnu sem er 120 þúsund krónur.
eggertmagnússon,formaðurKsíGefur ekki upp laun sín hjá KSÍ, ólíkt kolleg-
um sínum í íþróttahreyfingunni. fréttablaðið/e.ól.
veltasambandanna:
Ksí:
2005: 462,2 milljónir króna
2004: 457,6 milljónir króna
2003: 342,9 milljónir króna
ísí:
2005: 350 milljónir króna
2004: 379 milljónir króna
2003: 344 milljónir króna
Hsí:
2005: 76,8 milljónir króna
2004: 84,3 milljónir króna
2003: 70,7 milljónir króna
KKí:
2005: 56,8 milljónir króna
2004: 39,5 milljónir króna
2003: 40,8 milljónir króna
1 daguríHmíÞýsKalandi
HAnDbolTI „Þetta er að bresta
á. Við fljúgum snemma
morguns til Frankfurt og þar
tekur rúta á móti okkur. Við
munum keyra í fjóran og
hálfan klukkutíma til Magde-
burg,“ sagði Einar Þorvarðar-
son hjá HSÍ þegar Fréttablaðið
hafði samband við hann í gær
en hann er fararstjóri í
ferðinni. Liðið kemur til
Þýskalands í dag. Einar sagði
að allt væri gott að frétta af
hópnum og stemningin innan
hans væri góð.
Reiknað er með að íslenska
liðið taki æfingu í kvöld en
fyrsti leikur liðsins á HM
verður á laugardag. Keppnin
sjálf hefst hinsvegar á
föstudag. Ástralía verður
fyrsti mótherji Íslands á
mótinu en á sunnudag verður
leikið gegn Úkraínu. Nánar er
fjallað um mótið í sérstöku
aukablaði sem fylgir Frétta-
blaðinu í dag. -egm
Íslenska landsliðið:
Mætir í dag til
Þýskalands
eyjólfur Héðinsson, leikmaður fylkis, gæti
verið á leið í sænsku úrvalsdeildina en lið
GaiS hefur mikinn áhuga á að kaupa hann
frá Árbæjarliðinu. roland Nilsson er þjálfari
GaiS og sagði hann við fjölmiðla þar í landi
að eyjólfur hefði heillað sig þann tíma
sem hann æfði með liðinu. eyjólfur var við
æfingar hjá GaiS í síðustu viku og leist vel
á félagið.
„Þetta virðist vera fínt félag og maður hefur
alltaf stefnt á það að komast út. Þetta
virkar mjög spennandi og það er fínt að
vera í Gautaborg. Svo tel ég allar líkur á því
að maður fái að spila mikið þarna og það
er náttúrlega mikilvægt. Þetta félag getur
verið góður stökkpallur í enn sterkari deild
síðar,“ sagði eyjólfur við fréttablaðið í gær
en hann á fjölmarga landsleiki að baki fyrir
yngri landslið Íslands og var einn af betri
leikmönnum fylkis síðasta sumar, hann lék
alla leiki liðsins Í landsbankadeildinni.
„Mér gekk vel á þessum æfingum þarna
úti og nú er bara að leggja höfuðið í bleyti
og hugsa,“ sagði eyjólfur, sem var greini-
lega spenntur fyrir því að reyna fyrir sér í
sterkari deild og mæta leikmönnum á borð
við Henrik larsson. Þá segir hann að það
skemmi ekki fyrir að íslenskur leikmaður sé
fyrir hjá GaiS en með liðinu leikur Jóhann
birnir Guðmundsson.
„Svo eru líka fleiri íslenskir leikmenn
þarna í Gautaborg eins og raggi félagi
minn og Hjálmar sem er með honum í liði,
þannig að manni ætti ekki að leiðast þarna.
Svo fer kærastan mín örugglega með mér
líka þannig að þetta ætti bara að vera stuð.
ég er opinn fyrir þessu en þetta mun skýrast
betur á næstu dögum,“ sagði eyjólfur.
Varnarmaðurinn
ragnar Sigurðs-
son, sem lék með
eyjólfi hjá fylki,
gerði samning við
Gautaborg í október
en í Gautaborgarliðinu
er einnig lands-
liðsmaðurinn
Hjálmar
Jónsson.
eyjólfurHéðinsson: er Á óSKaliSta SæNSKa liðSiNS GaiS SeM Hefur Hafið Viðræður Við fylKi
Mér ætti ekki að leiðast í Gautaborg
>Heiðargeirtilsvíþjóðar
Sóknarmaðurinn Heiðar Geir Júlíusson hefur verið
lánaður frá fram til sænska liðsins Hammarby í eitt
ár. Heiðar er nítján ára gamall sóknarmaður sem
leikið hefur fyrir öll yngri landslið Íslands. Þar með
þynnist enn í hópi sóknarmanna
hjá fram, sem er þessa dagana
í leit að framherja fyrir
landsbankadeildina í
sumar. Heiðar vildi ekki tjá
sig um félagaskiptin í gær
að beiðni umboðsmanns
hans.
HAnDbolTI Ísland mætir Úkraínu
á sunnudaginn kemur í HM í
Þýskalandi. Fyrir fram má áætla
að leikurinn sé gríðarlega mikil-
vægur upp á framhald íslenska
liðsins á mótinu. Ef Ísland tapar
gæti róður liðsins reynst þungur
í kjölfarið.
Ekki er mikið vitað um lið
Úkraínu en liðið lék æfingaleik
gegn þýska úrvalsdeildarliðinu
Eintracht Hildesheim í fyrradag.
Úkraína vann, 36-31.
Lars Walther, þjálfari Hildes-
heim, sagði í samtali við Frétta-
blaðið í gær að úkraínska liðið
hefði komið sér á óvart.
„Ég bjóst við sterkara liði.
Þeir spiluðu illa, voru hægir og
litu út fyrir að vera mjög þreytt-
ir. Ég held að Ísland muni ekki
lenda í neinum vandræðum með
Úkraínu á HM,“ sagði Walther,
sem er danskur og lék eitt sinn
með KA. Alfreð Gíslason lands-
liðsþjálfari hringdi í Walther í
gær og fékk upplýsingar um lið
Úkraínu.
„Skytturnar beggja megin
léku vel, sem og markverðirnir.
Leikstjórnandinn lék vel fyrir
liðið en skýtur ekki mikið á mark-
ið.“
Walther segir enn fremur að
hann hafi litið á leikinn sem
æfingaleik fyrir sig og því notað
alla sína leikmenn og prófað ýmis
afbrigði af leikstíl liðsins. „Úkra-
ína keyrði hins vegar á sömu átta
mönnunum næstum allan leik-
inn,“ bætti hann við.
Hann býst við miklu af lönd-
um sínum og segir Dani eiga góða
möguleika á verðlaunsæti. „Ég
held að Frakkar verði sterkastir,
svo Danir og Króatar. Þýskaland
og Ísland gætu svo einnig bland-
að sér í toppbaráttuna. Þá ber
einnig að fylgjast með Túnis, sem
er með öflugt lið ef leikmenn
forðast meiðsli.“ -esá
Þjálfari Hildesheim eftir æfingaleik gegn Úkraínu í fyrradag:
Úkraína engin fyrirstaða fyrir Ísland
waltHerlars Walther, til vinstri, berst
við Stefan lövgren, leikmann Kiel, er
hann lék með Göppingen fyrir tveimur
árum. Nordic pHotoS/Getty