Fréttablaðið - 18.01.2007, Qupperneq 95
18. janúar 2007 FIMMTUDAGUR58
Hrósið …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁrÉTT
2 örverpi 6 kyrrð 8 eyða 9 keyra
11 tveir eins 12 dans 14 slúta
16 bardagi 17 tugur 18 niður
20 karlkyn 21 nabbi.
LóðrÉTT
1 slabb 3 í röð 4 stjórnmál 5 mál
7 galli 10 einkar 13 lítið býli
15 bæta við 16 flana 19 tveir eins.
LAUsN
LÁrÉTT: 2 urpt, 6 ró, 8 sóa, 9 aka,
11 ll, 12 polki, 14 slota, 16 at, 17 tíu,
18 suð, 20 kk, 21 arða.
LóðrÉTT: 1 krap, 3 rs, 4 pólitík, 5 tal,
7 ókostur, 10 all, 13 kot, 15 auka,
16 asa, 19 ðð.
Leiðsögumaðurinn og neminn
Guðmundur Atli Ásgeirsson er á
forsíðu nýjasta tölublaðs breska
veiðitímaritsins Trout and Salm-
on.
Blaðamaður frá tímaritinu var
staddur hér á landi síðasta haust
ásamt ljósmyndara til að gera
grein um íslensk vatnasvæði og
var Guðmundur Atli leiðsögumað-
ur þeirra. Ferðuðust þeir um
Steinsmýrarvötn, Eldvatnsbotna
og Varmá.
„Þeir voru mjög sáttir. Þeir
lentu reyndar í brjáluðu veðri og
fengu alvöru íslenskt haustveður,
rok og rigningu. En þeir veiddu
líka risastóra bleikju, sjö til átta
punda, og það stóð upp úr,“ segir
Guðmundur Atli.
Trout and Salmon er vinsælasta
tímarit sinnar tegundar á Bret-
landseyjum og er því ljóst að um
góða landkynningu er að ræða
fyrir Ísland, enda er farið lofsam-
legum orðum um vatnasvæðin
þrjú í greininni.
Guðmundur, sem hefur starfað
sem leiðsögumaður í um átta ár,
segist alltaf hafa jafngaman af
veiðimennskunni.
„Maður læknast ekkert af
þessu. Það er verst hvað þetta er
orðið dýrt. Veiðileyfin hafa hækk-
að um 20 til 30 prósent á ári og
eins og með laxveiðina er þetta
orðið algjört bull. Núna fæst einn
dagur fyrir sama verð og fyrir
þrjá daga fyrir þremur árum,“
segir hann. - fb
Á forsíðu bresks veiðitímarits
gUðmUNdUr ATLi ÁsgeirssoN
Guðmundur Atli er á forsíðu breska
veiðitímaritsins Trout and Salmon.
fréTTAblAðið/AnTon
Þekktur breskur raddþjálfari,
Neil Swain, þjálfaði nýverið leik-
hópinn Vesturport fyrir upp-
færslu hans á leikritinu Pétri
Gauti í London í lok febrúar.
Skaust hann hingað til
lands á milli jóla og nýárs og
er væntanlegur aftur um
mánaðamótin. Í millitíðinni
verður hann upptekinn við að
þjálfa Johnny Depp vegna
hlutverks hans í nýjustu mynd
Tims Burton, sem er
byggð á söngleiknum Sweeney
Todd.
Björn Hlynur Haralds-
son segir að það hafi
verið frábært að vinna
með Swain. „Ég hef
aðeins kynnst honum
áður því hann hjálp-
aði okkur með Rómeó
og Júlíu. Hann vann í
nokkur ár fyrir Royal
Shakespeare
Company og var
mikið að
hjálpa
þegar
amerísk-
ar stjörn-
ur mættu
á West
End. Hann var með Matt Damon
og svoleiðis liði. Svo er hann far-
inn að vinna meira og minna í bíó-
myndum,“ segir Björn Hlynur og
bætir því við að á síðasta ári hafi
Swain m.a. verið raddþjálfari
Robert De Niro og Jude Law.
„Hann er einn af þeim bestu á sínu
sviði í heiminum í dag. Hann er
mikið í því að sameina hreima hjá
fólki. Sumir hjá okkur tala með
amerískum hreim og sumir eru
með harðan íslenskan hreim. Hann
er að sameina þetta,“ segir Björn.
Swain þekkir vel til austurríska
raddþjálfarans Hilde Helgason,
sem hefur starfað síðastliðin 35 ár
í Leiklistarskóla Íslands. „Swain
er póstur sem ekki margir vita af.
Í öllum leikhúsum í Englandi er
svona „voice coach“ en þetta hefur
ekki tíðkast hérna. Það er synd því
þetta er nokkuð sem maður þarf
að halda við eins og öllu öðru.“ - fb
Með sama þjálfara og Johnny Depp
björN HLyNUr
HArALdssoN björn
Hlynur er hæstánægð-
ur með vinnubrögð
raddþjálfarans neil
Swain.
roberT de Niro
Einn virtasti leikari
heims naut
aðstoðar Swain á
síðasta ári.
„Hann hefur í það minnsta stærð-
ina ekki frá mér,“ segir Bubbi
Morthens um son sinn, Hörð
Morthens, sem hefur verið að gera
góða hluti í íslenskum handbolta.
Strákurinn er stór og stæðilegur,
2,03 á hæð, og leikur með yngri
flokkum Gróttu á Seltjarnarnesi.
Bubbi er sjálfur meðalmaður
að hæð. Hörður er þegar far-
inn að banka á dyrnar hjá
meistaraflokknum þrátt
fyrir ungan aldur og
nýlega valinn í unglinga-
landslið drengja fæddra
eftir 1990. Hörður er rétt-
hent skytta, staða sem
íslenska landsliðið hefur
átt í erfiðleikum með und-
anfarin ár.
Hörður var reyndar
ekki farinn að velta fyrir
sér sæti í íslenska
landsliðinu og sagð-
ist ætla að ein-
beita sér að
því að
komast í
meist-
ara-
flokkinn. Hann vildi hins vegar
ekki meina að pabbinn hefði ein-
hverja minnimáttakennd gagn-
vart hæðarmuninum. „Karlinn er
svo ánægður með sjálfan sig,“
segir Hörður og skellir upp úr.
„Ég er líka hættur að
stækka upp á við en
„massinn” frá
pabba kemur
bara seinna,“
bætir hann
við. Hörður
segir að þeir
feðgar ætli
að fylgjast
vel með gangi
mála á HM og
reiknar með að
faðir hans láti
vel í sér heyra
þrátt fyrir að sitja
heima í stofu. „Hann
er hávær og kann að
öskra,“ segir Hörður og
hefur augljóslega gaman
af því að stríða gamla
manninum. „Sjálf-
ur er ég meira
fyrir að klappa
smá en blóta
síðan í laumi,“
útskýrir Hörður,
sem er hæfilega
bjartsýnn á
frammistöðu
landsliðsins á
heimsmeistara-
mótinu í Þýskalandi sem hefst á
laugardaginn.
Bubbi upplýsir að þeir feðgar
hafi ætlað að skella sér til Þýska-
lands og fylgjast með landsliðinu á
heimsmeistaramótinu sem hefst
20. janúar. „Við komumst ekki
vegna anna hjá honum í Verslunar-
skólanum en sjálfur stefni ég
ótrauður á milliriðlana,“ segir
Bubbi, sem hefur sterkar skoðanir
á styrk og veikleika íslenska lands-
liðsins. „Ég vil sjá skytturnar virk-
ari og svo hef ég eðlilega áhyggjur
af meiðslum hjá lykilmönnum á
borð við Ólaf Stefánsson, Alexand-
er Petterson og Guðóni Val Sig-
urðssyni,“ segir tónlistarmaður-
inn.
Bubbi þekkir vel til landsliðs-
þjálfarans Alfreðs Gíslasonar og
segir landsliðið ekki geta verið í
betri höndum, Alfreð sé þjálfari í
fremstu röð. „Ég myndi hins
vegar aldrei fara í hringinn á móti
honum, það væri algjört glap-
ræði,” segir Bubbi og hlær. „Þeir
bræður eru síðustu hálftröll á
Íslandi,“ bætir hann við.
freyrgigja@frettabladid.is
Hörður MorTHEnS: Gnæfir yfir föður sinn
Pabbi gamli ekki með
minnimáttarkennd
HörðUr Þykir
efnileg stórskytta
en hann leikur
með öðrum og
þriðja flokki hjá
Gróttu.
bUbbi feðgarnir
komust ekki á
HM vegna anna
hjá Herði í
Verslunar-
skólan-
um.
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra boðaði fjölmiðlamenn á
sinn fund á mánudag til að ræða
málefni byrgisins. brá frétta-
mönnum nokkuð í brún þegar
þeir skoðuðu boðið en þar kom
fram að Magnús ætlaði að tala til
fréttamanna en ekki ræða við þá.
Ekki síst þótti mönnum það skjóta
skökku við þar sem fjölmiðlafulltrúi
Magnúsar er Þór Jónsson fyrrum
fréttastjóri, sem hefur viljað vera
öðrum mönnum harðari á prinsipp-
um í blaðamennsku. reyndist það
á misskilningi byggt að blaðamenn
mættu ekki spyrja Magnús, sem
þykir háll sem áll í svörum sínum,
en heldur þótti mönnum skrítið
að hafa Þór þar sem eins
konar varðhund valdsins
svo stuttu eftir að
hann sat hinum megin
borðis og lagði áherslu
á að engin linkind dygði
þegar raktar eru
garnir úr stjórn-
málamönnum.
bókaútgefendur rýna nú í sölulista
sem mest þeir mega til að glöggva
sig á stöðu mála. Helsta niðurstað-
an virðist sú að hvað sem tveggja
turna tali líður í stjórnmálunum á
það vel við orðið í forlagsmálum,
því Eddan og JPV útgáfa bera höfuð
og herðar yfir önnur forlög hvað
varðar sölu bóka. Séu helstu sölu-
listar teknir saman er Edda með
21 titil meðal þeirra söluhæstu,
JPV með 16 og næsta forlag ekki
með nema 2. Sjá menn þess merki
að Snæbjörn Arngrímsson hjá
bjarti hefur beint kröftum sínum
á dönsk mið en bjarti hefur oft
vegnað betur. önnur tíðindi eru
að Arnaldur Indriðason virðist
ekki ná sömu hæðum og oft áður.
Telja menn að sala á Konungsbók
hans sé í um 17 þúsund eintökum
meðan Vetrarborg hans í
fyrra seldist í 22 þús-
undum eintaka. Hins
vegar mun kiljuútgáfa
á Konungsbók hífa
sölutölur eitthvað
upp. - jbg
FrÉTTir AF FóLki
... fær hin búlgarska Tanja
Tzoneva sem búið hefur hér á
landi í tólf ár en talar íslensku
betur en margir barnfæddir
Íslendingar.
Gnoðavogi 44, s. 588 8686. Opið alla laugardaga 11-14
SÚR HVALUR
SÚRT RENGI
HARÐFISKUR
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is