Fréttablaðið - 16.02.2007, Síða 1
Bakar syndsamlega
góða köku
63%
40%
31%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Föstudagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
70
Smáauglýsingasími55
Þegar þessi grein kemur fyrir almenningssjónir eru
Krónikurnar trúlega að gæða sér á súkkulaðibombu
blaðamannsins Brynhildar Björnsdóttur.„Ég bý við það að maðurinn minn er einstaklega góður
kokkur og þykir gaman að elda svo hann tekur meirihluta
matreiðslunnar,“ segir Brynhildur þegar hún er innt eftir
afrekum sínum í eldhúsinu. Kveðst líka alin upp við að karl-
maðurinn á heimilinu eldi því pabbi hennar hafi eldað meira
en mamma. En auðvitað lumar Brynhildur á góðum lausn-
um í eldamennskunni sem öðru. „Ég geri stundum bara ein-
falda súpu þar sem ég hendi því grænmeti sem til er í pott
með smá olíu og smá vatni, dós af niðursoðnum tómötum og
slettu af sýrðum rjóma. Þetta verður hin prýðilegasta súpa
sem endist í mörg mál. Ef maður vill hafa hana veitinga-
húsalega þá maukar maður hana, setur smá rjóma ofan á og
grein af kryddjurt.Svo til að hafa mótvægi við þessa heilnæmu súpu baka
ég súkkulaðiköku sem er alveg syndsamlega góð. Fékk upp-
skriftina frá tengdamömmu minni. Reyndar er hægt að
hafa hana holla líka með því að nota lífrænt súkkulaði, hrá-
sykur og heilhveiti, nú eða bara heiðarlega súkkulaðiköku
sem er eins óholl og hún lítur út fyrir. Útgáfurnar eru eigin-
lega tvær.“
Þessa köku var Brynhildur einmitt að baka og hugðist
bera hana fyrir félaga sína á Krónikunni til að fagna útgáfu
fyrsta tölublaðsins. „Ég á fastlega von á að lesendur Frétta-
blaðsins fari út í búð að kaupa sér efni í köku og Króniku í
leiðinni. Svo gæða þeir sér á hvorutveggja um helgina,“
sagði hún kankvís.Uppskrift á síðu 2.
F
A
B
R
I K
A
N
Jói
Fel
Fjölskyldum einstakra
starfsmanna Barnaverndarnefndar Reykja-
víkur hefur verið markvisst hótað og ógnað. Á
síðasta ári komu upp fyrstu mál þessarar teg-
undar, að sögn Halldóru Drafnar Gunnarsdótt-
ur, starfandi framkvæmdastjóra Barna-
verndarnefndar. Þrjú mál fóru til rannsóknar
hjá lögreglunni í Reykjavík.
„Brennivínsvandi foreldra er eitthvað sem
nánast heyrir sögunni til, en fjölþættur vímu-
efnavandi þeirra er kominn í staðinn. Síðar-
nefndi vandinn er flóknari að takast á við.
Þegar fólk er á kafi í vímuefnum er viðbúið að
það tengist inn í hóp eða starfsemi afbrota-
manna. Þetta er ekki umhverfi fyrir börn til að
alast upp í.“
Starfsmenn Barnaverndarnefndar fóru
lengi vel einir á vettvang þegar um bráðatilvik
var að ræða. Nú fara þeir tveir eða fleiri saman
eða í fylgd með lögreglu þurfi þeir að fara inn
á heimili vegna vímuefnaneyslu, að sögn Hall-
dóru.
„Starfsmennirnir sjálfir hafa fengið lífláts-
hótanir,“ segir hún. „En það er nýtt að börnum
þeirra sé hótað og þá jafnvel meiðingum. Þá er
það einnig nýtt að í einstökum tilvikum sé
fylgst með starfsmönnum heima við. Það er
jafnvel sagt við þá að viðkomandi viti hvar þeir
eigi heima, hvar börnin þeirra séu í skóla eða
leikskóla og að starfsmaðurinn og fjölskylda
hans skuli passa sig.“
Hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar er
starfandi áreitninefnd. Að sögn Halldóru fara
mál af þessum toga í ákveðið ferli. Óskað er
eftir rannsókn lögreglu ef málin eru komin í
þann farveg að um hótanir og jafnvel beint
áreiti er að ræða á fjölskyldu starfsmanns.
„Þetta er nýtt af nálinni og er ekki látið við-
gangast viðbragðalaust.“
Börnum starfsmanna ógnað
Starfsmenn Barnaverndarnefndar Reykjavíkur hafa þrisvar leitað til lögreglu eftir að fjölskyldum þeirra
hafði verið markvisst ógnað. Þeir fara ekki lengur einir þegar fara þarf inn á heimili vegna fíkniefnaneyslu.
www.si.is
Sjá nánar á
Auglýst er eftir umsækjendum
um styrki til viðbótarnáms á sviði
húsgagna- og innréttingasmíði
en frestur rennur út 1. mars nk.
Nám
styrkir
stoðir
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Í DAG ER
FÖSTUDAGUR!
si
rk
us
Jude Law missti af Bessastöðum
Breski hjartaknús-arinn Jude
Law kom
degi of seint
til landsins til
að geta verið
viðstaddur
matarboð
sem forsetafrúin og góðvinkona hans, Dorrit Moussaieff, hugðist halda fyrir hann.
BLS. 4 & 10
16. febrúar 2007
Auðkýfingar með einkabílstjóra
Íslenskir milljarðamær-ingar eru með einkabíl-stjóra í fullri vinnu við að keyra þá sjálfa, starfs-menn þeirra og erlenda gesti um höfuðborgar-svæðið. Bílarnir sem boðið er upp á eru einvörðungu glæsikerrur sem kosta hátt á annan tug milljóna. BLS. 2
Hafsteinn Þórólfsson tekur þátt í úrslitum Eurovision„ÞÚ TRYLLIR MIG“
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/V
AL
LI
Gefur út bók með
veiðisögum sínum
Karlmaður reyndi að
nauðga þrítugri finnskri konu í
porti á Vesturgötu aðfaranótt
föstudagsins í síðustu viku. „Ég
vaknaði við öskur um þrjúleytið,
fór út á svalir og sá hvar maður
stóð yfir stúlku í porti við húsið
mitt, hélt henni kverkataki og
barði hana. Ég kallaði á manninn
ofan af svölunum og hann hljóp í
burtu. Ég hljóp niður stigann hjá
mér, út á götu og á eftir manninum
en missti af honum á Tryggva-
götunni,“ segir íbúi við Vesturgötu
sem varð vitni að árásinni. Vitnið
segir að konan hafi verið blóðug,
marin og skelfd.
Konan var á leiðinni heim til
sín af skemmtistað í miðborginni
og hafði maðurinn veitt henni
eftirför áður en hann réðst á hana.
Að sögn Björgvins Björgvinsson-
ar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá
Lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu, voru áverkarnir konunnar
aðallega á höfði.
Björgvin segir að lýsing kon-
unnar á manninum hafi verið
borin saman við myndir úr eftir-
litsmyndavélum en ekki hafi tek-
ist að hafa hendur í hári árásar-
mannsins. Konan þekkti manninn
ekki og virðist árásin hafa verið
tilefnislaus. Hún hefur lagt fram
kæru á hendur manninum, sem
talið er að sé íslenskur. Lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu vinnur að
rannsókn málsins.
„Það er ófrágengið og
verður ekki gengið frá því að svo
stöddu,“ segir
Grétar Mar
Jónsson,
varaþingmaður
Frjálslynda
flokksins, sem í
gær gekk á
fund Jóns
Baldvins
Hannibalssonar.
Umræðuefnið
var meðal
annars hugsan-
legt framboð
Jóns Baldsins
til Alþingis.
Grétar segir
enga niðurstöðu
hafa fengist í
málinu: „Hann
er heldur alls
ekki að útiloka
afskipti af
pólitík. Þetta
skýrist á næstu
dögum.“
„Við Grétar Mar erum gamlir
kunningjar. Hann var í Alýðu-
flokknum og þar að auki fóstraði
hann fyrir mig hund einu sinni,“
segir Jón Baldvin en vísar öllum
sögum um framboð á bug: „Þetta
er allt saman tómt bull.“
Er allt saman
tómt bull