Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 8
Eistneska þjóðþingið
samþykkti í gær „Lög um bannað-
ar byggingar“, en framfylgd
þeirra mun þýða flutning á
umdeildu minnismerki um sigur
Rauða hersins í síðari heimsstyrj-
öld frá þeim áberandi stað sem
það nú stendur á í miðborg Tallinn
inn í kirkjugarð.
Reyndar boðaði Toomas
Hendrik Ilves, forseti landsins, að
hann myndi beita synjunarvaldi
gegn lögunum, sem hann segir
brjóta í bága við stjórnarskrána.
Lögin munu þrátt fyrir það
vafalaust koma niður á tengslum
Eistlands og Rússlands, enda
hefur Rússlandsþing þegar sam-
þykkt einróma ályktun þar sem
Eistar eru eindregið varaðir við
því að stíga þetta skref.
Minnismerkið sem um ræðir
var sett upp árið 1947, en frá því að
Eistar endurheimtu sjálfstæði sitt
árið 1991 hefur það verið þyrnir í
augum þeirra flestra - fyrir utan
hinn fjölmenna rússneskumælandi
minnihluta í landinu - enda þykir
það stöðug áminning um þjáning-
arnar sem innlimun landsins í
Sovétríkin kallaði yfir þjóðina.
Sergei Lavrov, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði samþykkt
laganna „alvarleg mistök, guð-
spjöll sem ekki er hægt að sætta
sig við í Evrópu nútímans“.
Bæjarstjórnin í Sand-
gerði hefur hafnað því að
Landsnet leggi raflínur á
landsvæði sveitarfélagsins að
fyrirhuguðu álveri í Helguvík.
Raflínurnar komi í veg fyrir að
sveitarfélagið geti ráðstafað
landinu í tengslum við uppbygg-
ingu alþjóðaflugvallar á Reykja-
nesi auk þess sem umhverfis-
spjöll sem línurnar muni valda
séu óásættanlegar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, segir tvær tillögur
standa eftir. Í þeim er gert ráð
fyrir að raflínurnar verði jarðar í
jörð eða í sjó, sem er töluvert
dýrara segir Árni.
Hafnar raflín-
um Landsnets
Hugo Chavez,
forseti Venesúela, sakar stjór-
markaði og matvælabirgja í
landinu um að hamstra matvæli
og þrýsta upp verði. Hefur hann
hótað að þjóðnýta öll slík fyrir-
tæki í einkaeigu um leið og þau
gefi honum tilefni til þess.
„Ef þau halda áfram að vinna
gegn hagsmunum fólksins,
stjórnarskránni og lögunum, þá
mun ég taka matvælageymslur,
kjörbúðir, stórmarkaði og
þjóðnýta. Þannig að verið þið
undirbúin,“ sagði Chavez í
sjónvarpsávarpi.
Margir stórmarkaðir hafa hætt
sölu á kjöti, mjólk og sykri
undanfarið eftir að einni keðju
var lokað tímabundið fyrir að
verðleggja kjöt hærra en
viðmiðið sem stjórnvöld hafa
gefið út.
Chavez hótar
þjóðnýtingu
Hvað heitir framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins?
Hvað heitir nýja íslenska
vikuritið sem kom út í fyrsta
skipti í gær?
Í hvaða á á Suðurlandi er
fyrirhugað að Landsvirkjun
reisi þrjár nýjar virkjanir?
„Ráðherrann tekur sér
stöðu með bönkunum en ekki neyt-
endum. Hann fer undan í flæm-
ingi og segist ætla að fylgjast með
þegar fyrir liggur og staðfest er
að hér hefur viðgengist glæpsam-
legt bankaokur.“
Þetta segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir Samfylkingunni um við-
brögð Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra við áskorun hennar
um að ráðherrann beiti sér fyrir
lagasetningu sem brjóti upp sam-
eiginlegt eignarhald bankanna á
Reiknistofu bankanna og greiðslu-
kortafyrirtækjum.
Í umræðum utan dagskrár á
Alþingi í gær sagði Jóhanna okur
og græðgi bankanna yfirgengileg
og hefðu þeir í raun kverkatak á
lántakendum. Sagði hún allt hafa
hækkað, hvort heldur væru vextir
eða gjöld, og að samstilling á verð-
lagningu væri augljós. Tortryggði
hún sameign bankanna á tölvu-
kerfum í gegnum Reiknistofu
bankanna og eins sameign þeirra í
greiðslukortafyrirtækjum. Kvað
hún Samkeppniseftirlitið hafa
beint því til bankanna að endur-
skoða þessi mál en þeir hefðu í
engu orðið við því. Beindi hún því
orðum sínum til viðskiptaráðherra
og hvatti hann til að setja lög til að
brjóta upp þetta sameiginlega
eignarhald.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagðist ekki telja ástæðu til
lagainngripa á þessu stigi en full
ástæða væri til að vera vel á verði.
Sagðist hann treysta Samkeppnis-
eftirlitinu til að framfylgja sam-
keppnislögum. Ýmis mál er vörð-
uðu bankana væru til athugunar á
vettvangi þess. Jón sagði áfram
kappkostað að fylgjast með og
undirbúa eftir atvikum reglur eða
lagafrumvörp eftir því sem málum
vindur fram. „Alveg sérstaklega
ef kemur í ljós, sem háttvirtur
þingmaður nefndi, að viðskipta-
bankarnir séu tregir eða láti undir
höfuð leggjast að bregðast við
ábendingum Samkeppniseftirlits-
ins.“
Tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokks voru einnig gagnrýnir á
bankana. Sagði Ásta Möller
fákeppni ríkja á bankamarkaði og
vitnaði til skýrslu Samkeppniseft-
irlitsins frá í ágúst en í henni segði
að frá samkeppnissjónarmiði virt-
ust afkomutölur benda til að bank-
arnir gætu boðið verulega betri
kjör og samt skilað hagnaði.
Pétur Blöndal gagnrýndi að
markaðsstarf bankanna skyldi
beinast að ungmennum og telur
boð um lán til handa ungu fólki
ósiðleg. Telur hann yfirdráttarlán
jafnframt ósiðleg þar sem yfir-
dráttur sé í eðli sínu gjaldfallinn á
hverju einasta augnabliki.
Hér viðgengst bankaokur
Jóhanna Sigurðardóttir vill brjóta upp sameiginlegt
eignarhald bankanna á greiðslukortafyrirtækjum og
Reiknistofu bankanna. Þar skapist vettvangur til sam-
ráðs. Viðskiptaráðherra telur ekki ástæðu til inngripa.
Ráðherrann tekur sér
stöðu með bönkunum
en ekki neytendum.