Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 64
Leeds-sveitin Kaiser Chiefs hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að fyrsta platan hennar Employment kom út fyrir tveimur árum. 26. febrúar kemur önnur platan hennar, Yours Truly, Angry Mob, í verslanir. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn. „Hvað sem þið gerið, ekki breyt- ast í Coldplay.“ Þessa setningu heyrði Nick Hodgson, trommu- leikari og forsprakki bresku hljómsveitarinnar Kaiser Chiefs, áhorfanda hrópa í lok tónleika í London á síðasta ári. Og hann getur ekki gleymt henni. Eftir velgengni fyrstu Kaiser Chiefs plötunnar Employment, sem kom út fyrir tveimur árum og er búin að seljast í um þremur milljónum eintaka, þá var sveitin komin í þá aðstöðu að geta gert það sem henni sýndist. Og meðlimum Kaiser Chiefs er mikið í mun að bregðast ekki aðdáendum sínum. Hljómsveitin er búin að spila mikið á tónleikum síðustu tvö ár. Hún hitaði meðal annars upp fyrir U2 á Evróputónleikaferð og síðasta sumar þræddi hún nokkr- ar helstu tónlistarhátíðirnar. Hún var eitt stærsta nafnið á Iceland Airwaves 2006 þar sem hún spil- aði við mikinn fögnuð í Hafnar- húsinu á laugardagskvöldinu. Og svo var hún að klára nýja plötu. Yours Truly, Angry Mob kemur út eftir rúma viku og hún líkist Coldplay ekki neitt. Það er oft talað um að það sé erf- itt að fylgja eftir frumsmíð sem slær í gegn. Álagið er mikið. „Við höfum heyrt margar af þessum plötum númer tvö undanfarið þar sem hljómsveitin hefur svo mikl- ar áhyggjur að lögin sjálf eru rusl, en menn eru búnir að kalla til alls konar auka hljóðfæraleik- ara og gospelsöngvara,“ segir Ricky Wilson, söngvari Kaiser Chiefs, þegar hann er spurður út í þetta. „Við gerðum það ekki. Þetta erum ennþá bara við að spila, þó að hljómurinn sé miklu stærri.“ Employment þykir besta brit- pop-plata síðustu ára. Á henni heyrði maður áhrif frá bresku poppi allt frá The Kinks og The Who til pönksveitarinnar The Jam og Blur og Supergrass. Styrkur plötunnar lá meðal ann- ars í því að hún var full af melód- ískum og grípandi lögum. Hvergi dauður punktur: Everyday I Love You Less and Less, I Predict A Riot, Na Na Na Na Naa, Modern Way, Team Mate ... Nýja platan Yours Truly, Angry Mob er sömu- leiðis hlaðin smellum. Maður er aðeins lengur að falla fyrir henni. Hún er ekki alveg eins gáskafull og eins og Ricky segir er hljóm- urinn feitari, en hún er stútfull af grípandi popplögum: Ruby, The Angry Mob, Thank You Very Much, I Can Do It Without You, My Kind Of Guy ... Yours Truly, Angry Mob var tekin upp í Hook End Manor hljóðverinu í Oxfordshire undir stjórn Step- hen Street, en hann er þekktastur fyrir að hafa tekið upp Blur og The Smiths. Þó að lögin séu skrif- uð á alla meðlimina fimm þá er trommarinn Nick Hodgson hik- laust tónlistarlegur leiðtogi Kaiser Chiefs. Hann stjórnar ferðinni og hefur líka samið alla stærstu smellina. Hann mætir með þá á æfingu og svo klárar sveitin þá í sameiningu. Kaiser Chiefs var stofnuð vorið 2003, en meðlimirn- ir voru þá búnir að vera saman í annarri hljómsveit allt frá árinu 1997. Hún hét fyrst Runston Parva sem síðar var stytt í Parva. Parva spilaði bílskúrsrokk og fékk litla athygli. Það er öruggt að streðið með Parva hefur styrkt meðlimi Kaiser Chiefs og gert þá tilbúnari til að takast á við velgengnina sem beið þeirra þegar sveitin var búin að endurfæðast með nýtt nafn og breytta tónlistarstefnu. Þess má að lokum geta að Skjár 1 sýnir tónleika með Kaiser Chiefs annað kvöld klukkan 21.25. Samkvæmt tillögum samgöngumálaráðherra verður 105 milljörðum varið til samgöngumála hérlendis til ársins 2010. Til samanburðar verður þremur milljörðum veitt í aukaframlög til Háskóla Íslands á þessum tímabili. En hversu miklu er eiginlega eytt í menningu af hálfu ríkis- stjórnar Íslands? Fyrir viku síðan birtist í DV greinin Menning er stóriðja framtíðarinn- ar eftir Valgeir Örn Ragnarsson. Þar vitnaði Valgeir í rannsókn Ágústs Einarssonar, rektors Viðskiptaháskólans á Bifröst, frá árinu 2004 þar sem sagði meðal annars að menning hefði skilað meiru til þjóðarbúsins árin 2002 til 2003 en til dæmis álframleiðslugeirinn. Einnig kom þar fram sú merkilega staðreynd að við menningu störfuðu um fimm þúsund manns, samanborið við um sex þúsund manns í öllum fiskiðnaðinum. Út frá þessum staðreyndum ættu flestir því að spyrja sig hverju íslenska ríkisstjórnin eyðir í þennen ört vaxandi menningariðnað sem er greini- lega að skila miklu af sér. Fyrir stuttu síðan sagði forsætisráðherra frá því að einfalda ætti skattkerfið og meðal annars að afnema ætti skatt á söluhagnað fyrir- tækja. Hvenær á hins vegar að lækka virðisaukaskatt á tónlist? Hversu lengi á hinn íslenski neytandi að láta bjóða sér að hér sé ekki eingöngu hæsta, heldur langhæsta verð á geisladiskum miðað við þjóðir Evrópu og annars staðar? Í Noregi, þar sem bjór, gos og bensín eru til dæmis dýrara en hérlendis, kostar nýr diskur samt sem áður nær aldrei yfir 1.500 krónum, yfirleitt er diskurinn rétt yfir þúsundkallinum. Og hvað með Tónlistarhúsið? Verður það reist í samvinnu við alla aðila geirans eða á það eingöngu að þjóna snobbaðri elítu og Sinfóníuhljóm- sveitinni og á endanum eftir að verða stór glerhrúga sem hafvindar veðra til hnignunar? Ganga þarf úr skugga um að þar verði salur sem rúmi 1.500 til 2.000 manns, en slíkt húsnæði hefur íslenskt tónlistarlíf sárlega vantað, og að þangað verði allir angar íslenskrar menningar velkomnir. Ríkisstjórnin þarf að sýna fram á hvað hún gerir gott fyrir íslenska menningu. Nú vil ég fara að sjá almennileg kosningaloforð, loforð sem verða efnd! Ég er orðinn þreyttur á því að finnast Icelandair, Landsbank- inn og Hr. Örlygur vera þeir einu sem styðja við bakið á íslenskri tónlist. Er ríkisstjórnin á móti menningu? Tekur upp á ensku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.