Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 56
Nú um helgina halda óperuhús um alla Evrópu upp á fjögurra alda óperuhefð undir yfirskriftinni Óperudagar Evrópu og hér á Fróni gefst áhugasömum tón- listarunnendum tækifæri á að kynna sér starfsemi Íslensku óperunnar. Freyja Dögg Frímannsdóttir, yfirmaður mark- aðssviðs Íslensku óperunnar, segir að þetta sé í fyrsta sinn sem svo víðþætt dagskrá sé skipulögð af þessu tilefni enda séu samtök evrópskra óperuhúsa tiltölulega ný. „Þau hafa þó eflst mjög mikið, sérstaklega undanfarin fimm ár, og nú standa þau fyrir reglulegum ráð- stefnum fyrir meðlimi sína.“ Nú um helgina standa samtökin fyrir stórri ráð- stefnu í París þar sem áhorfendur, óperu- listamenn, óperustjórar, fulltrúar fjöl- miðla og ungt áhugafólk um óperur frá allri Evrópu taka þátt í viðburðum og umræðum um stöðu óperulistarinnar í samfélaginu en þangað fara til að mynda tveir ungir fulltrúar frá Íslandi í boði Samtaka vinafélaga evrópskra óperu- húsa. „En óperuhús um alla Evrópu eru hvött til þess að vera með eigin dagskrá þessa daga og þá er aðalatriðið að opna dyrnar, opna húsin og færa óperuna út til fólksins,“ útskýrir Freyja Dögg og árétt- ar að þar búi til dæmis að baki sú bábilja að óperan sé dauð list. „Það er verið að byggja mikið af nýjum óperuhúsum og þótt verið sé að sýna gömul verk er þetta lifandi listform, mikið af fólki sem kemur að óperustarfinu og margt forvitnilegt í boði.“ Meðal þess sem boðið verður upp á hér er bein útsending frá óperunni Flag- ari í framsókn, The Rake´s Progress, eftir Stravinsky á Rás 1 í kvöld, opin æfing á Gianni Schicchi eftir Puccini á sviði Íslensku óperunnar, Árnesingakór- inn heldur afmælistónleika og ókeypis tónleika ungra og upprennandi söngv- ara. Aukinheldur verður markaður í and- dyri Gamla bíós þar sem munir úr geymslum Óperunnar verða til sölu. „Þar verða alls konar skrýtnir leikmunir og búningar sem notaðir hafa verið gegnum árin. Davíð Ólafsson bassasöngvari verð- ur með létta skemmtidagskrá og Eyjólf- ur Eyjólfsson, sem fer með hlutverk upp- boðshaldarans í Flagara í framsókn, bregður á leik,“ segir Freyja. Markaðurinn hefst kl. 12 í Ingólfs- strætinu og stendur fram eftir degi á morgun og á sunnudag ef allt selst ekki upp. Þá verður boðið upp á leiðsögn um húsið kl. 13 báða dagana þar sem Ingólf- ur Níels Árnason, óperuleikstjóri og fræðslustjóri, leiðir gesti um bygging- una og segir frá starfsemi Íslensku óper- unnar og sögu hússins. „Það er dálítil mótsögn í því að við höfum verið með óperuhús í gömlu bíóhúsi í tuttugu og fimm ár en bæði á húsið sér merkilega sögu og svo er saga óperunnar í húsinu merkileg,“ segir Freyja. Þar leynast líka mörg skúmaskot, leyndardómar og kimar sem forvitnilegt er að kynna sér. „Þá verða líka tónleikar í Sundhöll Reykjavíkur klukkan hálf tólf á morgun – það verður mikið sprell get ég lofað,“ segir Freyja sposk og ýjar að því að sumir hyggist stinga sér eitt og annað. Sundhöllin er þekkt fyrir prýðishljóm- burð en Freyja bendir enn fremur á að staðsetningin hafi fleiri kosti. „Við hugs- uðum um hvert við gætum fært óperuna til Íslendinga. Hvar eru þeir í hádeginu á laugardögum – nú auðvitað í sundi?“ Nánari upplýsingar um dagskrá Óperudaganna er að finna á heimasíð- unni opera.is. John Wesley Hardin sleppt úr fangelsi „Ekki halda fast í frægðina. Rétt eins og peningar er hún bara til láns og einn góðan veðurdag muntu deyja og einhver annar taka við henni.“ MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Reykjavík sími 587 1960 www.mosaik.is LEGSTEINAR TILBOÐSDAGAR allt að 50% afsláttur af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Arnór Friðbjörnsson til heimilis að Fossvöllum 24, Húsavík, lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut miðvikudaginn 14. febrúar sl. Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju fimmtudaginn 22. febrúar kl. 14.00. Guðrún Alfreðsdóttir Sigmar Arnórsson Hafdís Kristjánsdóttir Sigrún Arnórsdóttir Vorsveinn Þórgrímsson Árni Arnórsson Sigríður Sif Grímsdóttir Aðalbjörg Katrín Arnórsdóttir Svavar Aðalsteinsson Ragna Karlsdóttir Guðmundur Alfreð Aðalsteinsson Sigríður Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Laufeyjar Valgeirsdóttur húsfreyju, Bjarnarhöfn, fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 17. febrúar kl. 13. Jarðsett verður í Bjarnarhöfn. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Aðalheiður Bjarnadóttir Jónas Þorsteinsson Hildibrandur Bjarnason Hrefna Garðarsdóttir Sibilla Bjarnason Ásta Bjarnadóttir Bjarni Alexandersson Sesselja Bjarnadóttir Ríkharð Brynjólfsson Jón Bjarnason Ingibjörg S. Kolka Bergsteinsdóttir Karl Bjarnason Jóhanna Karlsdóttir Guðrún Bjarnadóttir Signý Bjarnadóttir Hjálmar Jónsson Valgeir Bjarnason Ingibjörg Elsa Björnsdóttir 40 ára afmæli Kæru landsmenn! Believe it or not! Nú er hann Ingólfur okkar Garðarsson knattspyrnumaður úr FC Old boys Gróttu og FC KFFF orðinn fertugur. Innilegar haming juóskir elsku drengurinn okkar. Ástkær sonur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Bergþór Njáll Guðmundsson verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju, mánudaginn 19. febrúar, kl 13.30. María Magnúsdóttir María Bergþórsdóttir Guðmundur Hjálmarsson Helgi Bergþórsson Kristín Bergþórsdóttir Pétur Þór Lárusson Ingibjörg H. Bergþórsdóttir Guðmundur Kr. Ragnarsson Guðmundur Örvar Bergþórsson Aðalheiður Gísladóttir Rúnar Þór Bergþórsson Albert Valur Albertsson Brynjar Bergþórsson Apríl Eik Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Einar Ólafsson rafvirki, Ársölum 3, Kópavogi, lést á Kanaríeyjum að morgni sunnudagsins 11. febrúar. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Stefánsdóttir Elskulegi faðir okkar, afi, tengdafaðir og fyrrverandi eiginmaður, Gústaf R. Oddsson leigubílstjóri, Espilundi 9, Akureyri, lést á heimili sínu mánudaginn 12. febrúar. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. febrú- ar klukkan 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill. Stella Gústafsdóttir Ingimar Eydal Markús Gústafsson Anna Guðný Guðmundsdóttir Sonja Stelly Gústafsdóttir Ute Stelly Oddsson og barnabörn. Elskulegur sambýlismaður minn, fóstur- faðir okkar, bróðir og mágur, Guðfinnur Stefán Finnbogason Miðhúsum, Strandabyggð, sem lést 10. febrúar, verður jarðsunginn frá Kolla- fjarðarneskirkju laugardaginn 17. febrúar klukkan 14. Arnheiður Guðlaugsdóttir Rakel Guðfinnsdóttir Kristján Garðarsson Ásta Bjarnadóttir Margeir B. Steinþórsson Guðný Finnbogadóttir Ragnar Þorleifsson Sigurbjörn Finnbogason Sigurbjörg Ísaksdóttir Bjarney Ragnheiður Finnbogadóttir Óskar Fannberg Jóhannsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.