Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 72
 Það er skammt stórra högga á milli hjá Alfreð Gíslasyni handboltaþjálfara. Um leið og HM lauk tóku við æfingar hjá Gummersbach. Ekkert frí var gefið í þýsku deildinni heldur var fyrsti leikur liðsins sex dögum eftir síðasta leik Íslands á HM. Álagið á leikmenn sem spiluðu á HM er því gríðarlegt, sem og fyrir þá landsliðsþjálfara sem einnig þjálfa í þýsku deildinni. Það hefur verið mikið um meiðsli hjá Gummersbach í vetur og hópurinn hjá Alfreð oftar en ekki þunnskipaður. Staðan var aðeins skárri fyrir leikinn síðasta föstudag en þá kom Rússinn Zakh- arov aftur í hópinn en hann sleit krossbönd eftir að hafa aðeins spilað í nokkrar mínútur og verð- ur því ekki meira með í vetur. „Það var hrikalegt að lenda í þessu. Við erum að vinna í því að fá Pungartnik strax frá Hamburg en það er ekki líklegt að það fáist í gegn,“ sagði Alfreð og átti þar við slóvenska landsliðsmanninn Roman Pungartnik sem gengur í raðir Gummersbach næsta sumar. Það hefur gengið á ýmsu í her- búðum Gummersbach síðustu vikur og útlit fyrir mikil fjárhags- vandræði og jafnvel gjaldþrot um áramótin. Staðan er þó betri í dag eftir að Hans Peter Kramer sneri aftur sem stjórnarformaður en hann er þegar búinn að semja við tvo nýja styrktaraðila. Hann er að ganga frá stórum samningi við rússneskt olíu- og gasfyrirtæki en sá samningur gæti hæglega tryggt rekstrargrundvöll Gummersbach næstu árin. Sama fyrirtæki hefur sett mikinn pening í knattspyrnu- liðið Schalke. „Kramer er mjög öflugur en hann fór um áramótin út af valda- baráttu sem var í gangi. Hann er kominn aftur og öflugri en nokkru sinni fyrr og veitti ekki af enda virtist allt vera á leið til andskot- ans. Ef þetta gengur upp þá get ég farið að kaupa einhverja leikmenn og veitir ekki af,“ sagði Alfreð sem hefur augastað á lærisvein sínum í landsliðinu, Alexander Petersson. Hornamaðurinn á ár eftir af samningi sínum en ekki er loku fyrir það skotið að hann fáist laus í sumar og ef ekki verður að kaupa hann. „Það hafa margir áhuga á Alex og ekki að ástæðu- lausu. Ég er einn þeirra enda Alex stórkostlegur leikmaður sem hefur staðið sig frábærlega. Hann gæti fengið góðan samning hvar sem er.“ Mikið var rætt og ritað um myndband sem Alfreð sýndi lands- liðinu fyrir leikinn mikilvæga gegn Frökkum á HM. Eins og allir ættu að vita spilaði íslenska lands- liðið hugsanlega sinn besta lands- leik í sögunni gegn Frökkum og komst í milliriðil með tvö stig. Mikil leynd hefur hvílt yfir innihaldi myndbandsins enda ákvað hópurinn að hafa það út af fyrir sig. Alfreð er tilbúinn að tjá sig um myndbandið þar sem mótið er liðið. „Ég hef margoft verið með svona ruglmyndbönd,“ sagði Alfreð hlæjandi en hvernig eru þessi myndbönd hans nákvæm- lega? „Ég blanda saman efni með taktík andstæðinganna við alls konar óskylt efni sem inniheldur þó boðskap sem maður vill koma áleiðis. Meðal efnis í þessu mynd- bandi voru klippur úr samúræ- myndum. Svo detta textabrot inn á ákveðnum tímum með boðskap sem ég vil koma á framfæri. Ég hef verið að gera þetta síðan árið 2001. Það skemmtilega er að þetta skilar oftar en ekki árangri. Mynd- böndin eru misgóð en ég skal alveg viðurkenna að þetta myndband var djöfulli gott hjá mér,“ sagði Alfreð léttur en hann telur nauð- synlegt fyrir þjálfara að brjóta svolítið upp formið. „Fundirnir hjá mér eru um 30- 40 mínútur og að þeim tíma liðn- um þá hætta leikmenn oft að taka við þeim boðskap sem maður er að miðla. Ef maður er alltaf að sýna það sama þá er hætt við að hugur leikmanna verði ekki alveg við efni. Ef maður brýtur upp formið og kemur mönnum á óvart við og við þá er líklegra að leikmenn fylgist betur með því sem er að gerast því þeir vita ekki hvað kemur næst. Þá eru þeir vakandi allan tímann,“ sagði Alfreð Gísla- son. Handboltaþjálfarinn Alfreð Gíslason tjáir sig í fyrsta skipti um innihald myndbandsins sem fékk strákana okkar til að blómstra gegn Frökkum í eftirminnilegum leik. Hann segist hafa beitt slíkum meðulum síðan 2001. Alfreð segist enn fremur hafa áhuga á að fá Alexander Petersson til Gummersbach. Það verður mikil boxveisla í Reykjanesbæ um helgina þegar vösk sveit frá Írlandi mætir íslenskum boxurum í 23 bardög- um. Veislan fer fram í Sundhöll- inni í Keflavík þar sem hnefa- leikafélagið BAG fékk nýverið úthlutað húsnæði fyrir starfsemi sína. „Það er alger bylting að fá þessa að aðstöðu og við munum koma 300-400 áhorfendum fyrir á staðnum. Þetta verður alveg meiriháttar. Okkur veitir ekki af aðstöðunni enda hefur orðið alger sprengja í hnefaleikaiðkun í bænum og alls æfa 115 krakkar box hjá okkur í dag,“ sagði hnefa- leikafrömuðurinn Guðjón Vilhelm en hann stýrir málum hjá BAG. Ballið byrjar klukkan tvö um daginn en þá munu krakkar á aldr- inum 12-15 ára berjast. Þetta er í fyrsta skipti sem svo ungir krakk- ar berjast við erlenda mótherja í keppni hér á landi. Alls fara fimmtán unglingabardagar fram á milli tvö og sex. Eftir það verður tekið hlé til klukkan átta þegar stóru strákarn- ir byrja að keppa en alls fara átta bardagar fram um kvöldið. Írafár í Keflavík Það er um fátt annað talað innan NBA þessa dagana en samkynhneigð eftir að Bretinn John Amaechi kom út úr skápnum en hann er fyrrum leikmaður í deildinni. Tim Hardaway, fyrrver- andi NBA-stjarna og einn þeirra sem KR Bumban hefur reynt að fá til liðs við sig, fékk fá vinsælda- stig þegar hann tjáði sig í útvarps- þætti i á miðvikudag og lýsti því yfir að hann hataði samkyn- hneigða. „Ég hata samkynhneigt fólk og skammast mín ekkert fyrir það. Mér líkar ekki við samkynhneigt fólk og mér líkar ekki að vera í kringum samkynhneigða. Ég er með hommafælni og hommar ættu ekki að vera í Bandaríkjunum eða í heiminum yfir höfuð,“ sagði Hardaway í útvarpsþættinum en stjórnandi þáttarins spurði hann í kjölfarið hvernig hann myndi haga sér í kringum liðsfélaga sem væri samkynhneigður. „Fyrst af öllu þá myndi ég ekki vilja slíkan mann í mínu liði. Ef hann aftur á móti væri í mínu liði myndi ég halda eins mikilli fjar- lægð og mögulegt væri vegna þess að þetta er ekki rétt hegðun fyrir mér. Hann ætti ekki að vera í bún- ingsklefanum á sama tíma og við,“ sagði Hardaway og bætti við að hann myndi farið fram á að leik- maður yrði rekinn úr félagi sínu ef hann væri samkynhneigður. Eins og búast mátti við varð allt vitlaust í kjölfarið og Hardaway baðst afsökunar á orðum sínum í útvarpsviðtali daginn eftir en dró þau ekki til baka. Hardaway hatar samkynhneigða Elísabet önnur Englands- drottning mun bjóða leikmönnum og starfsmönnum Arsenal í te í Buckingham-höllinni á næstunni. Upphaflega átti hún að vera viðstödd opnun nýs leikvangs félagsins, Emirates Stadium, en þurfti að afboða sig vegna bakverkja. Eiginmaður hennar fór í hennar stað. Drottningu mun hafa þótt það leitt og ákveðið því að bjóða liðinu heim til sín í teboð. Starfs- menn og leikmenn munu fá að skoða höllina áður en þeir hitta sjálfa drottninguna. Býður Arsenal í te í höllinni Vladimir Romanov, meirihlutaeigandi skoska úrvalsdeildarliðsins Hearts, er enn á ný kominn í fréttir vegna umdeildra ummæla sinna. Í þetta sinn sagði hann í viðtali við rússneskt íþróttablað að stórliðin Rangers og Celtic mútuðu bæði leikmönnum og dómurum. „Ef tvö lið eru jöfn að getu getur dómarinn haft áhrif á úrslit leiksins,“ sagði Romanov. Brian Quinn, stjórnarformaður Celtic, var æfur vegna ummæl- anna. „Ef hann sagði þetta mun ég sækja rétt okkar fyrir dómstólum.“ Sakar dómara um mútuþægni Breski klám- og fjöl- miðlajöfurinn David Sullivan hefur enn áhuga á því að kaupa West Ham einn daginn. Fyrir ári síðan þótti hann líklegur til að kaupa félagið en fannst það of dýrt. Á endanum keyptu Björgólf- ur Guðmundsson og Eggert Magnússon félagið. Sullivan á helmingshlut í Birmingham og hefur sagt að sá hluti sé til sölu fyrir rétt verð. Hann er þó ánægður með komu Íslendinganna því hann átti hlut í félaginu sem hann gat selt með vænum gróða. „Kannski rennur sá dagur upp að ég geti keypt félagið,“ sagði Sullivan, sem á sínum tíma lék með unglingaliði félagsins. Vill enn kaupa West Ham
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.