Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 12
Ráðamenn í Kópa-
vogi vilja gjarnan fá höfuðstöðvar
lögreglunnar í sitt sveitarfélag og
sama má segja um Hafnfirðinga.
Það er því ekki öruggt að nýjar
fimmtán þúsund fermetra höfuð-
stöðvar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu verði byggðar í
Reykjavík eins og Jón Kristinn
Snæhólm, aðstoðarmaður Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar borgar-
stjóra í Reykjavík, hélt fram í
Fréttablaðinu á mánudaginn.
„Nei, það er ekkert gefið að
höfuðstöðvarnar verði í Reykja-
vík,“ segir Böðvar Jónsson,
aðstoðarmaður Árna Mathiesen
fjármálaráðherra, sem sendi for-
svarsmönnum Reykjavíkurborg-
ar, Garðabæjar, Kópavogs og
Hafnarfjarðar fyrirspurn í lok
janúar þar sem hann biður þá að
kanna hvort þeir eigi lóð fyrir
nýju höfuðstöðvarnar. Í bréfinu
kemur fram að höfuðstöðvarnar
þurfi að vera miðsvæðis á höfuð-
borgarsvæðinu og í tengslum við
helstu umferðaræðar.
Að sögn Böðvars hafa sveitar-
félögin ekki haft samband við
hann vegna málsins frá því að
hann sendi þeim bréfið en hann
býst við að fá svör í þessari viku
eða þeirri næstu. Lögregluemb-
ættin þrjú á höfuðborgarsvæðinu
sameinuðust í byrjun árs undir
nafninu Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu og þykir heppilegra að
nýja embættið hafi einar höfuð-
stöðvar þar sem einnig verði
gæsluvarðshaldsfangelsi og hús-
næði fangelsismálastofnunar.
Ómar Stefánsson, formaður bæj-
arráðs Kópavogs, segir að forsvars-
menn Kópavogsbæjar séu ólmir í að
höfuðstöðvar lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu verði byggðar í
bænum. „Við erum að sjálfsögðu að
skoða þetta mál núna. Það er mikill
metnaður fyrir því að fá lögregluna
hingað, sé möguleiki að finna góða
lóð fyrir hana. Lögreglan á að vera
miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Ómar. Að sögn hans hefur
Kópavogsbær ekki fundið lóð fyrir
lögregluna en býst við að það skýr-
ist á næstu viku.
Að sögn Lúðvíks Geirssonar,
bæjarstjóra í Hafnarfirði, vilja yfir-
völd í bænum að höfuðstöðvar lög-
reglunnar verði byggðar í bænum.
„Við viljum alla góða og öfluga
starfsemi hingað í Fjörðinn. Við
eigum þessa lóð til,“ segir Lúðvík
og bætir við að það muni liggja fyrir
á næstu dögum hvaða lóðir bærinn
bjóði upp á undir húsnæðið.
Ekki náðist í Gunnar Einars-
son, bæjarstjóra í Garðabæ, í gær
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Forsætisráðherra Serbíu, Vojislav
Kostunica, varaði í gær við því að ef
Kosovo-hérað fengi sjálfstæði frá Serbíu
gæfi það „hættulegt fordæmi“ og leiddi til
„ofbeldis gagnvart lýðræðisþjóðum í
Evrópu“.
Á þriðjudaginn hafnaði serbneska þingið
með miklum meirihluta tillögu Sameinuðu
þjóðanna um að Kosovo, þar sem Albanar
eru 90 prósent íbúa, fengi stöðu ríkis undir
alþjóðlegu eftirliti.
Þetta þykir skýrt merki þess að Serbía
muni ekki fallast á málamiðlanir um Kosovo
sem þýðir að Sameinuðu þjóðirnar munu
líklega þurfa að þvinga fram lausn á
deilunni um framtíð héraðsins. Martti
Ahtisaari, höfundur tillögunnar, mun leggja
hana fyrir Öryggisráðið í lok mars.
Áhyggjur eru yfir því að tillagan geti leitt
til einhvers konar uppgjörs á milli Banda-
ríkjanna, sem styðja sjálfstæði Kosovo, og
Rússlands, sem eru helstu bandamenn Serba
en bæði ríkin hafa neitunarvald í Öryggis-
ráðinu. Athisaari sagðist í gær ekki myndu
draga úr því sem lagt er til í tillögunni til að
komast hjá synjun Rússlands.
Tveir létust og tveir særðust alvarlega í
átökum lögreglu og mótmælenda um helgina
þegar þrjú þúsund Albanar brutust gegnum
öryggishlið þegar þeir mótmæltu því að
tillaga SÞ hljóðaði ekki upp á fullkomið
fullveldi Kosovo.
Serbíuþing varar við sjálfstæði Kosovo
Fulltrúar ríkisstjórna
Kóreuríkjanna tveggja hafa
komið sér saman um að hefja á ný
beinar tvíhliða samningaviðræð-
ur á ráðherrastigi síðar í mánuð-
inum. Ákvörðunin er fyrsta
áþreifanlega merkið um slökun á
spennunni í samskiptum Suður-
og Norður-Kóreu, en sú spenna
náði nýju hámarki er N-Kóreu-
menn sprengdu fyrstu tilrauna-
kjarnorkusprengju sína í fyrra.
Forsenda fyrir þessari nýju
lotu tvíhliða viðræðna er sam-
komulagið sem náðist í sexvelda-
viðræðunum svonefndu í síðustu
viku, þar sem N-Kóreumenn
samþykktu að falla frá kjarnorku-
vígbúnaðaráætlun sinni.
Hefja tvíhliða
viðræður á ný
Menn sem
flytja fíkniefni
til landsins eru
hryðjuverka-
menn. Þetta
segja þingmenn
Frjálslynda
flokksins.
Valdimar L.
Friðriksson,
Frjálslynda
flokknum, hélt því fram í síðustu
viku að þekktir hryðjuverkamenn
hefðu verið handteknir við
komuna til landsins. Athugun hjá
lögreglu leiddi í ljós að ekki var
innistæða fyrir þeim orðum.
Frjálslyndir voru inntir
skýringa á málflutningi sínum í
þinginu í gær og héldu því þá
fram að með orðunum hefði verið
átt við fíkniefnainnflytjendur.
Fíkniefnasmygl-
arar eru hryðju-
verkamenn
Geðsvið Landspítala -
háskólasjúkrahúss hefur tekið að
sér að meta þörf fyrrverandi
vistmanna Breiðavíkurheimilis-
ins og Byrgisins fyrir aðstoð.
Þetta er gert að beiðni Land-
læknisembættisins.
Í tikynningu segir að þeir sem
telji sig þurfa á aðstoð að halda sé
bent á að hringja í síma 543 4074
virka daga milli klukkan níu og
fjögur, fyrir 31. mars næstkom-
andi.
Geðsvið metur
þörf fyrir aðstoð
Keppst um lögreglustöðina
Fyrirhugað er að byggja fimmtán þúsund fermetra höfuðstöðvar fyrir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Í
Kópavogsbæ, Hafnarfirði, Reykjavík og Garðabæ er verið að skoða lóðamöguleika að beiðni ráðherra.