Fréttablaðið - 16.02.2007, Side 4
Mannréttindanefnd
Reykjavíkur sættir sig ekki við að
fá ekki umbeðnar upplýsingar um
styrkveitingar Nýsköpunarsjóðs
námsmanna fyrr en vorið 2008.
Reykjavíkurborg styrkir
Nýsköpunarsjóð námsmanna um
tólf milljónir króna á ári. Heildar-
framlög í sjóðinn voru á bilinu 32
til 34 milljónir. Marsibil J.
Sæmundsdóttir, formaður Mann-
réttindanefndar Reykjavíkur,
segir nefndina vilja að sjóðurinn
upplýsi hvernig styrkir úr honum
skiptist milli karla og kvenna.
„Það kom gagnrýni, meðal annars
frá fyrrverandi rektor á Bifröst,
um að það væri ójafnvægi milli
kynja í úthlutunum sjóðsins. Við
vitum ekki hvort svo er en við
höfum eftirlitshlutverk gagnvart
því að þeir sem eru styrktir af
Reykjavíkurborg fylgi stefnu
borgarinnar um jafnstöðu kynj-
anna,“ segir Marsibil.
Í svari til mannréttindanefndar
frá Hönnu Maríu Jónsdóttur,
framkvæmdastjóra Nýsköpunar-
sjóðs námsmanna, segir að núver-
andi tölvukerfi ráði ekki við að
gefa upplýsingarnar. Hins vegar
sé verið að endurnýja tölvukerfið:
„Má ætla að hægt verði að taka út
umbeðnar upplýsingar með ein-
földum hætti vorið 2008.“
Mannréttindanefndin segir í
bókun að það sé „með öllu óskilj-
anlegt að Nýsköpunarsjóður ætl-
ist til að nefndin bíði í ríflega ár
eftir því að sjóðurinn eignist tölvu-
kerfi. Mannréttindanefnd tekur
afsakanir þær sem fram koma í
umræddu svari ekki til greina og
fer fram á að Nýsköpunarsjóður
námsmanna útvegi nefndinni
þessi svör hið fyrsta.“
Mannréttindanefndin hefur
ekki ákvörðunarvald um styrkinn
til Nýsköpunarsjóðsins en segist
þó ekki geta mælt með frekari
styrkveitingum til sjóðsins fyrr
en umræddar upplýsingar berist.
„Miðað við bókun mannréttinda-
nefndarinnar lítur út fyrir að hér
sé um þann misskilning að ræða að
Nýsköpunarsjóður námsmanna
heyri undir borgina,“ segir Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir borgar-
fulltrúi, sem situr í stjórn Nýsköp-
unarsjóðs námsmanna fyrir hönd
menntamálaráðuneytisins.
Þorbjörg segir að þegar styrk-
umsóknir berist sjóðnum séu ekki
alltaf strax komin nöfn bakvið
umsóknina. „Það geta verið bæði
konur og karlar og stundum hópar.
Þar af leiðandi sendi sjóðurinn
kurteislegt bréf um að það tæki
mikinn tíma að finna þessar upp-
lýsingar og að það yrði ekki gert
fyrr en tölvutæknin væri orðin
betri.“
Við höldum með þér!
Er ekki kominn tími á ný þurrkublöð?
Þú færð Champion-þurrkublöð með 50%
afslætti ef þú kemur á næstu Olís-stöð og
lætur fylla bílinn af eldsneyti.
50%
afsláttur af Champion-þurrkublöðum
þegar þú lætur fyll’ann!
Karlmaður ruddist
inn í útibú SPRON í Skeifunni á
ellefta tímanum í gær og vildi fá
fyrirgreiðslu: peninga svo að hann
gæti greitt handrukkurum. Hinir
meintu rukkarar voru í för þegar
maðurinn kom inn í bankann.
Fólkið er allt á þrítugsaldri og var
handtekið á staðnum. Hinu meinta
fórnarlambi var sleppt en hitt
fólkið var enn í haldi í gærkvöldi.
Maðurinn var óvopnaður og
beitti ekki ofbeldi. Hann lýsti fyrir
gjaldkerum og öðrum starfsmönn-
um bankans hvers hann ætti von
gæti hann ekki borgað. Að sögn
lögreglu hafði maðurinn verið
tekinn með og var þá kominn með
áverka á öxl og andliti sem talið er
að fólkið hafi veitt honum. Var
honum hótað frekari meiðingum
yrði hann sér ekki úti um fé til að
greiða þá skuld sem fólkið taldi
sig eiga inni hjá honum.
Ólafur Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri SPRON, sagði að
útibúinu hefði verið lokað í um
tvær klukkustundir eftir atvikið:
„Samkvæmt öryggisreglum okkar
lokum við þegar svona mál koma
upp og förum yfir málin með
starfsfólki okkar, sem sumt var
afar skelkað. Maðurinn beitti ekki
neinu ofbeldi heldur var með hót-
anir sem tengdust hans persónu-
legu stöðu. Þegar um er að ræða
aðila sem eru í annarlegu ástandi
og með handrukkara á bakinu þarf
að taka það mjög alvarlega.“ Málið
er í rannsókn.
Þurfti fé fyrir handrukkara
Krefjast svara strax
frá Nýsköpunarsjóði
Nýsköpunarsjóður námsmanna ætlar ekki að svara Mannréttindanefnd Reykja-
víkur um skiptingu styrkja milli karla og kvenna fyrr en vorið 2008. Óskiljan-
legt segir nefndin. Misskilningur hjá nefndinni segir stjórnarmaður í sjóðnum.
Sérsveit hryðju-
verkavarnalögreglu í Frakklandi
hefur handtekið ellefu manns
sem grunaðir eru um aðild að al-
Kaída-tengdum samtökum sem
unnið hafa að því að fá herskáa
múslima til liðs við skæruliða
íslamista í Írak.
Níu manns voru handteknir í
Toulouse og nágrenni í suðvestur-
hluta Frakklands á miðvikudag.
Áður höfðu tveir menn verið
handteknir á Orly-flugvelli við
París, er þeir lentu þar eftir að
hafa verið sendir til síns heima
frá Sýrlandi.
Flestir hinna handteknu eru á
þrítugsaldri, að sögn lögreglu.
Ellefu manns
handteknir
Mælingar á
mengun verða gerðar við
leikskóla
borgarinnar í
samstarfi
mengunarvarna
Umhverfissviðs
og Leikskóla-
sviðs í Reykja-
vík á næstunni.
Stefnt er að enn
viðameiri
mælingum en
áður hafa
tíðkast eftir því sem fram kemur
á vefsíðu borgarinnar.
Á Umhverfissviði hefur verið
unnið að fræðslu og upplýsingum
til almennings um loftmengun og
hefur athyglinni verið beint
sérstaklega að leikskólum.
Gísli Marteinn Baldursson,
formaður Umhverfisráðs, segir
mikilvægt að fá borgarbúa til liðs
við borgina í viðleitni að draga úr
svifryksmengun, til dæmis með
minni notkun nagladekkja, auk
þess sem borgarbúar eru hvattir
til þess að nýta sér almennings-
vagna og reiðhjól.
Meiri mælingar
við leikskóla
Söfnunin Börn hjálpa
börnum fór formlega af stað í
Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Í
söfnuninni, sem er árlegt átak
ABC-barnahjálpar í samstarfi við
grunnskóla landsins, ganga börn í
hús og safna peningum sem renna
til hjálpar börnum í Pakistan,
Kenía og Úganda.
ABC-hjálparstarf sér fyrir
tæplega sex þúsund börnum með
hjálp fósturforeldra, meðal
annars á Indlandi, Filippseyjum, í
Úganda og Pakistan. Samtökin
hafa einnig sett á fót heimavist í
Kenía, vígt skóla í Pakistan og
hafið byggingu heimavistar fyrir
stúlkur í Norður-Úganda, svo
eitthvað sé nefnt.
Safna fé fyrir
börn í neyð
Þrír piltar á
aldrinum 15-19 ára hafa verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald í
viku vegna gruns um að þeir eigi
þátt í allnokkrum innbrotum á
höfuðborgarsvæðinu.
Piltarnir voru teknir á Háa-
leitisbraut nýverið. Í bíl sem þeir
voru á fannst talsvert mikið þýfi
sem hægt var að tengja við innbrot
sem framin höfðu verið að
undanförnu á höfuðborgarsvæðinu,
einkum í Kópavogi og Reykjavík.
Piltarnir eru grunaðir um að eiga
hlut að sjö innbrotum og tveimur
tilraunum til innbrots.
Þrír meintir
þjófar í gæslu