Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 6
Þrír piltar á aldrin-
um fimmtán til sautján ára játuðu
á miðvikudagskvöld að hafa unnið
skemmdir á fjórða tug bifreiða, á
vinnuvélum og hesthúsum í
Hafnarfirði nóttina áður. Þá brutu
þeir rúður í heimahúsum. Þeir voru
látnir lausir eftir yfirheyrslur.
Að sögn Geir Jóns Þórissonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglu
höfuðborgarsvæðisins, er hægt að
sækja piltana til saka fyrir brot
sín. Þeir hafa allir náð sakhæfis-
aldri. Ekki sé þó hægt að krefja þá
um greiðslu fyrir skemmdirnar.
„Það verða örugglega gerðar bóta-
kröfur en þeir eru ekki fjárráða.
Og það er heldur ekki hægt að
ganga á foreldrana. En það getur
vel verið að þeir grípi til þess að
bæta tjónið. Ég get ekkert fullyrt
um það.“ Geir Jón segir lögregl-
una áður hafa þurft að hafa
afskipti af piltunum vegna mála af
þessu tagi.
Pétur Már Jónsson, forstöðu-
maður tjónaþjónustu VÍS, segir
eigendur og tryggingarfélög sitja
uppi með kostnað vegna skemmd-
arverkanna. „Ef þetta eru rúðu-
brot þá nær bílrúðutrygging yfir
það. Hún greiðir tjónið af rúðum
utan við tíu prósenta sjálfsábyrgð.
Ef skrokkur á bifreið er skemmd-
ur til viðbótar og er ekki í kaskó,
situr eigandi uppi með tjónið ef
ekki er hægt að fá fébætur frá
gerenda. Ef viðkomandi bifreið
eða vinnuvél er með kaskó- eða
vinnuvélatryggingu þá ná þær
hins vegar yfir skemmdirnar.“
Heimdallur, félag ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík,
var 80 ára í gær. Afmælinu var
fagnað í Valhöll, flokksheimili
sjálfstæðismanna.
Meðal gesta var formaður
Sjálfstæðisflokksins, Geir H.
Haarde forsætisráðherra, en
heiðursgestur Heimdellinga í gær
var Kjartan Gunnarsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
flokksins. Erla Ósk Ásgeirsdóttir,
formaður Heimdalls, flutti ávarp.
Í stefnuskrá Heimdalls frá
árinu 1931 segir að grundvöllur
stefnunnar sé fullkomið frelsi
þjóðar og einstaklings, séreign og
jafn réttur allra þjóðfélagsborg-
ara.
Kjartan var
heiðursgestur
Jón Ásgeir Jóhannes-
son, forstjóri Baugs Group og einn
ákærðu í Baugsmálinu, sagði að
Baugur hefði líklega tapað um 260
milljörðum króna vegna húsleitar
ríkislögreglustjóra 28. ágúst 2002.
Þessu hélt hann fram í skýrslutök-
um yfir sér fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur en þeim lauk í gær.
Hann sagði að 29. ágúst hefði
átt að skrifa undir yfirtökusamn-
ing Baugs á verslunarkeðjunni
Arcadia. Húsleitin hefði spillt
yfirtökunni, og sá sem tók fyrir-
tækið að lokum yfir, kaupsýslu-
maðurinn Phillip Green, hefði
hagnast um að andvirði 260 millj-
arða króna á tveimur árum vegna
Arcadia-kaupanna.
Fjallað var um síðasta ákæru-
liðinn sem Jón Ásgeir tengist
þegar aðalmeðferð í málinu hélt
áfram í réttarsalnum í gær. Þar
eru þeir Jón Ásgeir og Tryggvi
Jónsson, fyrrverandi forstjóri
Baugs, sakaðir um fjárdrátt með
því að hafa látið Baug greiða sam-
tals rúmlega 32 milljónir króna til
að fjármagna eignarhlutdeild
Fjárfestingarfélagsins Gaums í
skemmtibátnum Thee Viking, og
greiða kostnað vegna bátsins.
Sækjandi spurði Jón Ásgeir
náið út í kaupin á bátunum. Jón
Ásgeir sagði ljóst að Jón Ger-
ald Sullenberger, einn
ákærðu, hefði átt bátinn,
en Gaumur hefði lánað fé
til að kaupa og reka bát-
inn. Á einhverjum tíma-
punkti hefði verið rætt um að
Gaumur fengi hlutdeild í bátnum
upp í skuldirnar, en af því hefði
ekki orðið.
Sækjandi vitnaði talsvert í
skýrslu sem Jóhannes Jónsson,
faðir Jóns Ásgeirs, gaf við réttar-
höld í Bandaríkjunum, en þar
sagði Jóhannes að Gaumur hefði
greitt af bátum á Flórída, og þeir
hefðu átt hlutdeild í þeim.
Einnig vitnaði sækjandi í yfir-
heyrslur yfir Tryggva Jónssyni,
sem sagði að feðgarnir Jóhannes
og Jón Ásgeir hefðu verið að kaupa
bát með Jóni Gerald. Við það
kannaðist Jón Ásgeir ekki.
Jón Ásgeir sagði að skrif-
legir samningar hefðu verið
gerðir vegna lánveitinga
Gaums til bátakaupa
Jóns Geralds, það hafi
verið handsalað. Ekki
hefði heldur verið inn-
heimt fyrr en löngu eftir að bát-
arnir voru keyptir, árið 2002, en á
móti hefðu hann og fjölskylda sín
fengið að nota bátana.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, spurði umbjóðanda sinn
út í samskipti hans við Jón Gerald,
og hvernig upphaf Baugsmálsins
væri tilkomið. Vitnaði hann meðal
annars í fréttir Fréttablaðsins þar
sem sagt var frá tölvupóstsam-
skiptum Styrmis Gunnarssonar,
ritstjóra Morgunblaðsins, og Jón-
ínu Benediktsdóttur, þar sem rætt
var að Jón Gerald væri illur út í
Jón Ásgeir og Jóhannes, og „lang-
aði mest að kála þeim“.
Gestur las upp úr tölvupósti frá
Jóni Gerald til Jóns Ásgeirs frá
byrjun júlí 2002, sem hann sagði
hafa mikla þýðingu fyrir málið.
Þar sakar Jón Gerald Jón Ásgeir
um að hafa reynt að komast yfir
eiginkonu sína. Jón Ásgeir svaraði
og sagði viðskiptum þeirra lokið.
Jón Ásgeir sagði að hann og
Tryggvi hefðu talið að samningar
hefðu náðst í byrjun júlí 2002 um
að greiða Jóni Gerald fyrir það
tjón sem hann sagðist hafa orðið
fyrir vegna þess að Baugur hætti
viðskiptum við hann. Í ljós hefði
svo komið að á sama tíma hefði
verið byrjað að leggja á ráðin um
það sem Jón Ásgeir kallaði „aðför-
ina að Baugi“.
Segir Baug hafa tap-
að 260 milljörðum
Jón Ásgeir Jóhannesson var spurður út í ásakanir um fjárdrátt vegna skemmti-
báta á Flórída í réttarsal í gær. Hann ræddi einnig tölvupósta Styrmis Gunnars-
sonar og Jónínu Benediktsdóttur, og upphaf Baugsmálsins við lok skýrslutöku.
Arngrímur Ísberg,
dómsformaður í Baugsmálinu,
ákvað í gær að takmarka þann
tíma sem sækjandi í málinu fengi
til að spyrja Jón Ásgeir Jóhannes-
son, einn sakborninga, út í mála-
vexti. Sækjandi mótmælti þessum
takmörkunum.
Reiknað var með að skýrslutök-
um yfir Jóni Ásgeiri fyrir dómi
lyki um hádegi á miðvikudag. Á
þriðja tímanum í gær sagðist Sig-
urður Tómas Magnússon, settur
ríkissaksóknari, eiga um þrjár
klukkustundir eftir.
Dómsformaðurinn ákvað í
framhaldinu að sækjandi myndi
fá 75 mínútur til viðbótar, en því
næst kæmust verjendur að. Kalla
yrði Jón Ásgeir fyrir aftur síðar ef
spyrja þyrfti frekar.
Sigurður Tómas mótmælti
þessu og sagði það geta stefnt
sönnunarfærslu sinni í voða ef
skýrslutökur yfir Jóni Ásgeiri
yrðu slitnar í sundur með þessum
hætti. Í samtali við Fréttablaðið
sagðist hann ekki vita til þess að
tími sækjanda hefði áður verið
takmarkaður með þessum hætti í
héraðsdómi. Þetta sé afar óvenju-
legt, en af því verði ekki stór
skaði.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, segir nauðsynlegt að
halda sig við áætlunina í svo
flóknu máli. Dómarans sé að
stjórna og saksóknara að koma
með tímaáætlun.
Stöðvaður í miðri spurningu
BAUGS M Á L I Ð
Sigurjón Þórðarson,
alþingismaður Frjálslynda
flokksins, mun skipa fyrsta sæti á
framboðslista hans í Norðaustur-
kjördæmi í
komandi alþing-
iskosningum.
Sigurjón var
kjörinn á þing
sem annar þing-
maður Frjáls-
lyndra í
Norðvestur-
kjördæmi í
síðustu
kosningum, en
Guðjón Arnar Kristinsson,
formaður flokksins, mun leiða
lista hans þar sem fyrr.
Frjálslyndi flokkurinn fékk
ekki þingmann kjörinn í Norð-
austurkjördæmi í síðustu
kosningum.
Færir sig um
kjördæmi
Borgarráð samþykkti í
gær tillögu Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
sonar borgarstjóra um að Reykja-
vík verði Skákhöfuðborg heimsins.
Í þessu tilgangi ætlar borgin að
leggja fram þrjár milljónir króna
af tuttugu milljóna króna stofnfé í
Skákakademíu Reykjavíkur.
Er það sjálfseignarstofnun sem
á að efla skáklistina í Reykjavík
þannig að borgin verði orðin
Skákhöfuðborg heimsins árið 2010.
Samstarf verður við Skáksamband
Íslands, skákfélögin í Reykjavík,
grunnskóla, félagasamtök,
einstaklinga og fyrirtæki. Leita á
þátttöku annarra til að fá stofnféð
upp í milljónirnar tuttugu.
Reykjavík verði
skákhöfuðborg
Hélst þú upp á Valentínusar-
daginn?
Ætlar þú að halda konudaginn
hátíðlegan?