Fréttablaðið - 16.02.2007, Blaðsíða 40
| sirkus | 16. FEBRÚAR 2007BLS. 8
Hafsteinn Þórólfsson syngur
lagið Þú tryllir mig sem er eitt
sigurstranglegasta lagið í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
en úrslitin koma í ljós á
morgun. Hafsteinn, sem er
nýfluttur frá London, stofnaði
fótboltalið fyrir homma þegar
hann kom heim en liðið
stefnir á EM um páskana.
Hafsteinn sendi lagið í
keppnina í gríni en er núna að
þessu í fullri alvöru og stefnir
á sigur.
Ég er algjört Eurovision-fan og hef mest gaman af stigagjöfinni auk þess sem það er gaman að
sjá allt sjóvið í kringum þetta og alla
þessa ólíku menningarheima koma
saman,“ segir Hafsteinn Þórólfsson
sem syngur lagið Þú tryllir mig, eitt
laganna sem keppa til úrslita í
Söngvakeppni Sjónvarpsins annað
kvöld. Hafsteinn viðurkennir fúslega
að hann hafi afar gaman af keppn-
inni, bæði forkeppninni hér heima og
svo þeirri stóru úti. „Ég elska að
hvetja íslenska lagið áfram og ég
gleymi aldrei þegar All out of Luck,
sem er uppáhalds íslenska Eurovisi-
onlagið mitt, keppti fyrir Íslands hönd
á afmælisdaginn minn. Aldrei hefur
fallið verið svona hátt en þetta var
ógeðslega gaman,“ segir Hafsteinn
brosandi.
Tók íþróttirnar fram
yfir tónlistina
„Ég kem úr mikilli tónlistarfjöl-
skyldu og lærði á klarinett í fimm ár
þegar ég bjó í Bandaríkjunum auk
þess sem ég söng og lærði á píanó,“
segir Hafsteinn og bætir við að
honum hafi boðist að ganga í
úrvalskór og hljómsveit Minniapolis-
borgar þegar hann var aðeins 12 ára.
„Ég hafði hins vegar ekki áhuga á því
og vildi frekar eyða tímanum í
íþróttum.“
Eftir fimm ár í Bandaríkjunum
fluttist Hafsteinn til Íslands og hefur
síðan búið á Seltjarnarnesi fyrir utan
fjögur ár sem hann dvaldi í Mennta-
skólanum á Laugarvatni. „Í skólanum
ákvað ég að verða tónlistarmaður en
menningar- og tónlistarlífið var mjög
blómlegt á Laugarvatni á þessum
tíma. Ég tók þátt í sýningum og
keppti í söngvakeppnum og tók þarna
þá ákvörðun að fara í söngnám,“ segir
Hafsteinn, sem stundaði söngnám í
London í þrjú ár.
Fótboltalið fyrir homma
Í London gekk Hafsteinn til liðs við
fótboltalið samkynhneigðra knatt-
spyrnumanna og stofnaði lið fyrir
homma þegar hann kom heim til
Íslands aftur. „Strákafélagið Styrmir
var stofnað síðasta sumar. Mér fannst
leiðinlegt að geta ekki haldið áfram
að æfa þegar ég kom heim frá London
svo ég stofnaði bara mitt eigið lið. Í
dag eru liðsmenn líklega um 50-60 en
að jafnaði mæta 20-30 strákar á
æfingar. Þetta er ótrúlega skemmti-
legt og þarna eru strákar á öllum aldri
með mismikla reynslu í boltanum,“
segir Hafsteinn og bætir við að liðið
hafi keppt á Norðurlandamóti í
september. „Við lentum í neðsta sæti
en stóðum okkur samt vel enda voru
flestir í liðinu að keppa í fyrsta
skiptið. Næsta mót er um páskana og
þá munum við standa okkur enn
betur því við erum komnir með hörku
lið.“
Erfitt að vera samkynhneigður
íþróttamaður
Aðspurður af hverju samkynhneigð-
ir þurfi á sérstöku íþróttaliði að halda
segir hann enn þá mikla fordóma
innan íþróttanna. „Það er mjög erfitt
fyrir íþróttamenn að koma út úr
skápnum og sér í lagi þegar um
hópíþróttir er að ræða. Margir telja að
þeir muni eyðileggja móralinn innan
liðsins eða að þeir fari með möguleika
sína á að komast í atvinnumennsku.
Þetta fótboltalið er líka félagasamtök
enda vantaði félagasamtök fyrir
homma á Íslandi eins og sést á
þátttökunni,“ segir Hafsteinn, sem er
29 ára, laus og liðugur.
Laglínan kom á leiðinni
heim af djammi
Hafsteinn hefur aldrei áður tekið
þátt í söngvakeppninni og bjóst í
rauninni ekki við að komast áfram.
„Ég er alveg rosalega ánægður með að
vera kominn áfram en ég og Hannes
Páll Pálsson, besti vinur minn,
sömdum textann saman og hann er
einnig stílistinn á bak við atriðið. Eins
og ég hef sagt áður þá fékk ég
laglínuna í hausinn eina nóttina á leið
heim af djammi í London. Við
Hannes hittumst svo yfir hvítvíns-
flösku eitt laugardagskvöldið og
sömdum textann eftir að hafa
ákveðið að taka þátt í keppninni. Í
fyrstu vorum við að þessu í gríni en
núna þegar við erum komnir í úrslit
erum við í þessu af fullri alvöru.“
Keppnin er stökkpallur
inn í sviðsljósið
Hafsteinn vildi semja lag sem
myndi virka á dansgólfinu og hann
sjálfur hefði gaman af. „Mér finnst
þessi tegund tónlistar mjög skemmti-
leg en ég er alæta á tónlist og elska
Eurovision,“ segir Hafsteinn sem tók
þátt í Eurovision-sýningu á Broadway
fyrir fjórum árum. Áður en hann hélt
til London hafði hann stimplað sig
almennilega inn í íslenskt tónlistarlíf.
„Þetta er fyrsta lagið sem ég sem en
ég söng Gay pride-lagið „Ég er eins og
ég er“ á sínum tíma, hef sungið með
Sigur Rós og á plötu Bjarkar Medullu
og hef tekið þátt í uppsetningum á
nokkrum óperum. Ég get ekki sagt að
þetta sé beint skemmtilegra en þetta
er allt öðruvísi en upp á síðkastið hef
ég verið að hallast meira að dægur-
lagapoppinu. Það var margt í gangi
hjá mér áður en ég fór út en núna er
ég svolítið dottinn út en vona að
keppnin verði einhvers konar
stökkpallur inn aftur án þess að vera
að taka þátt með einhverjum
formerkjum. Það er margt sem mig
langar að gera og ég er að semja mína
eigin tónlist og er þegar kominn með
nokkur lög.“
Með Dr. Gunna á heilanum
Aðspurður hvort hann færi til
Finnlands fyrir Íslands hönd segist
hann meira en til í það. „Það væri
æðislegt að fara til Finnlands, Finnar
eru svo skemmtilegir,“ segir hann og
bætir við að honum lítist ágætlega á
lögin sem hann keppi við. „Það eru
mörg skemmtileg lög þarna á milli en
flest þeirra eru í hægari kantinum.
Mér finnst lagið hans Dr. Gunna
frábært og er búinn að vera með það
á heilanum síðan ég heyrði það fyrst.
Eins finnst mér lög Jónsa, Friðriks
Ómars og Helga Rafns mjög góð.“
Silvía Nótt gekk of langt
Hafsteinn fylgdist að sjálfsögðu
með Silvíu Nætur-ævintýrinu á
síðasta ári og segir lagið hafa verið
gott. „Mér fannst lagið skemmtilegt
og atriðið gott en held að hún hafi
gengið aðeins of langt, annars var
þetta geggjað hjá henni. Við
Íslendingar erum alltaf jafn vissir um
að taka þessa keppni og verðum alltaf
jafn hissa að standa ekki uppi sem
sigurvegarar. Ef ég kæmist áfram yrði
ég ánægður með viðtökurnar hér
heima og allt annað yrði bara plús.“
Fer ekki í karakter
Atriðið sem Hafsteinn býður upp á í
söngvakeppninni vakti mikla athygli
og salurinn var greinilega á hans
bandi ef marka má fagnaðarlætin sem
brutust út þegar ljóst var að lagið
hefði ratað í úrslit. Aðspurður hvort
karakterinn sem hann býður upp á í
atriðinu sé eitthvað líkur honum
sjálfum segir hann svo vera. „Hann er
allavega hluti af mér en ég og
stílistinn reyndum að gera þetta í
samhengi við textann,“ segir
Hafsteinn og bætir við að hann ætli að
vera hann sjálfur að mestu leyti. „Ég
ætla ekki að fara í neinn karakter, ég
ætla bara að gera þetta þannig að ég
fíli það sjálfur án þess að búa eitthvað
til, vera með uppgerð eða skapa
einhverja persónu. Ég er bara eins og
ég er.“ indiana@frettabladid.is
„ÉG ER BARA
EINS OG ÉG ER“
SIGURVISSIR Hafsteinn segir Íslendinga alltaf jafn vissa um að vinna Eurovision og verða alltaf jafn hissa að standa ekki uppi sem
sigurvegarar. „Ef ég kæmist áfram yrði ég ánægður.“ SIRKUSMYND/VALLI FÖRÐUN/ELÍN REYNISDÓTTIR TÖKUSTAÐUR/HNEFALEIKAFÉLAG REYKJAVÍKUR FAXAFENI
8
„Ég ætla ekki að fara í
neinn karakter, ég ætla
bara að gera þetta þannig
að ég fíli það sjálfur.“
HAFSTEINN ÞÓRÓLFSSON TRYLLIR
ÍSLENSKU ÞJÓÐINA Í ÚRSLITUM
EUROVISON