Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 44
| sirkus | 16. FEBRÚAR 2007BLS. 12
B ritney Spears hlýtur heiðurinn að þessu sinni. Engin önnur
manneskja kemst með hælana þar
sem Britney er með tærnar. Þú veist
hvenær þú ert í vandræðum þegar
Paris Hilton er byrjuð að líta út eins
og engill við hliðina á þér.
Litli bjáninn Britney Spears var að
skemmta sér í New York á dögunum
til klukkan hálf fjögur um morguninn
þegar lífverðir hennar drógu hana út
af skemmtistaðnum. Tveggja barna
móðirin hefur fengið sér aðeins of
mikið að drekka þetta kvöldið því
hún gerði sér lítið fyrir og ældi inni í
bílnum sínum. Smart, Britney. Mjög
smart.
K atie Holmes, eiginkona Tom Cruise og barnsmóð-
ir, mætti í veislu ásamt
eiginmanni sínum sem
haldin var af Will Smith og
eiginkonu hans. Þar hitti
Tom Cruise Opruh
Winfrey. Þau hafa ekki hist
mikið síðan hann eyði-
lagði næstum því sófann
hennar, en eins og flestir
muna þá buðu Tom og
Katie Opruh ekki í
brúðkaupið sitt. Bömmer
fyrir hana. En Oprah
virðist ekki ætla að taka
þessu illa og spjallaði við
parið. Eða Oprah talaði,
Tom hlustaði og svaraði og
Katie sat og hlustaði á og
skildi örugglega hvorki
upp né niður í neinu.
ÉG SKIL EKKI NEITT!
UM HVAÐ ER ÞESSI KONA AÐ TALA? Katie
Holmes virðist ekki skilja upp né niður í því
sem Oprah er að tala um.
FYRRVERANDI
LÍKAMSRÆKT-
ARTRÖLL
Arnold
Schwarzenegg-
er, ríkisstjóri
Kaliforníu, er
ekki alveg eins
sléttur og hann
einu sinni var.
SLÆM Á SELLUNNI
Fatahönnuðurinn
Donatella Versace
er með appelsínu-
húð úti um allt.
MATARGAT
Franski leikarinn
Gerard
Depardieu elskar
að borða. Það er
alveg á hreinu.
Fræga fólkið
er líka með
SKVAP
MALLA-
KÚTUR
Leikkonan
Tara Reid
er með
krumpaðan
maga.
Hvaðan
kemur
þetta?
ALLT Í PLATI
Nicky Hilton er
ekki svo grönn
þótt hún líti út
fyrir það á
rauða
dreglinum.
E ins sorglegur og dauðdagi Önnu Nicole Smith er, þá eru eftirmál
dauða hennar enn sorglegri.
Faðernisdeila milli Howards K.
Stern, kærasta Önnu, og Larry
Birkhead er í algleymingi þessa
dagana, en svo bættist eiginmaður
Zsa-Zsa Gabor við. Frederic Prinz
von Anhalt segist hafa átt í ástar-
sambandi við Önnu í mörg ár og að
Dannielynn sé dóttir hans. Nú hefur
fjórði maðurinn, Alexander Denk,
bæst við, en kappinn er lífvörður
Playboy-bombunnar. Hvaða rugl er
þetta? Nú bíðum við spennt eftir
fleiri karlmönnum sem segjast vera
feður litlu stúlkunnar. Þessir
karlmenn eru pottþétt ekki á eftir
peningum blondínunnar. Nei, alveg
örugglega ekki. Velferð litlu
stúlkunnar er í fyrirrúmi. Einmitt.
Howard K. Stern segist vera faðir Dannielynn og hann er skráður
faðir hennar á fæðingarvottorði hennar. Howard var lögfræðingur
Önnu og vinur í mörg ár og einnig unnusti hennar fram að dauðdaga.
Frederic Prinz von Anhalt kom fram
eftir dauða Önnu Nicole og sagðist vera
pabbinn. Pottþétt á eftir peningunum.
PABBI 4 Lífvörður Önnu Nicole Smith,
Alexander Denk, hefur núna stigið
fram og sagt að hann sé faðir
Dannielynn. Alexander segist hafa átt í
tveggja ára ástarsambandi við Önnu.
HVAÐA RUGL ER Í GANGI MEÐ DÓTTUR
ÖNNU NICOLE SMITH?
SEGJAST VERA
BARNSFAÐIRINN
Larry Birkhead er
fyrrverandi kærasti
Önnu Nicole. Hann
ásamt móður Önnu
heldur því fram að
hann sé pabbinn.
Og smekklegasta
manneskjan er...
NAMM! Takk fyrir þetta, Britney. Virkilega
yndislegt af þér að deila þessu með okkur.
DJAMMARI DAUÐANS Britney fær bara
ekki nóg af skemmtistöðunum. Ætli
börnin hennar séu byrjuð að kalla
fóstruna mömmu?
S tjörnutal í hæsta veldi. Hér sjáum við Jennifer Lopez, Evu
Longoria og Drew Barrymore að
spjalla saman í veislu haldinni til
heiðurs Donatellu Versace. Um hvað
ræða svona skvísur? Þær eru ekki
vinkonur, ætli þær upplifi sig eins og
við í leiðinlegum kokkteilboðum þar
sem við þekkjum engan?
STJÖRNUTAL Jennifer
Lopez tjáir sig við
Drew Barrymore og
Evu Longoria.
Rapparinn Kanye West
situr beint fyrir aftan
þær. Ætli hann hafi
verið að hlusta?
UM HVAÐ
ræða stjörnur?
2
1
3 4