Fréttablaðið - 16.02.2007, Qupperneq 63
Ein forvitnilegasta bókin í jóla-
bókaflóðinu síðasta var „Hern-
aðarsaga Íslands 1170-1581“.
Höfundur hennar er ungur
sagnfræðingur, Birgir Lofts-
son.
Í bókinni er rakin hlið á
Íslandssögunni sem óhætt er að
segja að hafi verið afskipt í
ritun hennar fram til þessa.
„Verkið greinir m.a. frá vopna-
búnaði landsmanna, hernaðar-
mannvirkjum, herútboðum,
landvörnum, hersköttum, her-
skipulagi, hernaðaraðferðum,
þróun og eðli hernaðarátak-
anna, samfélagslegum áhrifum
og síðast en ekki síst er atburða-
sagan rakin,“ segir í káputexta.
Umfjöllunartímabilinu, 1170-
1581, er skipt niður í tvö undir-
tímabil; Sturlungaöld 1170-1262
og síðan tímabil höfðingjaskæra
á 15. og 16. öld. Lok síðara tíma-
bilsins, árið 1581, er miðað við
svonefndan vopnadóm Magnús-
ar prúða Jónssonar, sem mælti
fyrir um vopnabrot, þ.e. eyð-
ingu vopna í fórum íslenzkra
bænda.
Í lok bókarinnar eru raktar
tilraunir á öldum áður og fram
á okkar daga til að setja á fót
íslenzkan her. Eru slíkar til-
raunir sagðar hafa náð einna
lengst á síðari hluta níunda ára-
tugar átjándu aldar, en í ljósi
þess að þá stóðu Móðuharðindin
hæst er ekki að undra að þau
skyldu ekki hafa náð lengra en
á undirbúningsstig.
„Haf og fjarlægð voru ekki
lengur skjöldur og verja lands-
ins,“ segir svo í kafla um stofn-
un herlauss íslenzks lýðveldis
árið 1944 og fráhvarfið frá hlut-
leysisstefnu millistríðsáranna.
Bókinni lýkur á umræðu um
hugmyndir Björns Bjarnasonar
um stofnun íslenzks hers til að
annast varnir landsins eftir
brotthvarf Bandaríkjahers
héðan, sem Björn reifaði fyrst
árið 1995 en ítrekaði árið 2001.
Þessi lokakafli stingur lítið
eitt í stúf við meginkafla bókar-
innar, enda sjónarhornið annað
og pólitískara í lokakaflanum. Í
meginköflunum er viðfangsefn-
inu gerð góð skil samkvæmt
viðtekinni aðferðafræði sagn-
fræðinnar, enda á sá texti upp-
tök sín í sagnfræðiritgerð sem
höfundur skrifaði hjá Gísla
Gunnarssyni, sagnfræðipróf-
essor við Haskóla Íslands.
Gagnrýna má að fagmann-
legar mætti standa að mynda-
vali, myndvinnslu, kortagerð og
hönnun, svo og uppsetningu og
frágangi texta.
Forvitnileg hernaðarsaga
13 14 15 16 17 18 19
Sýningin er opnin virka daga frá kl. 11 -17 og um helgar frá kl. 13 - 16
Gerðuberg • sími 575 7700
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
RÚRÍ Tími - Afstæði - Gildi
Sýning frá glæstum listferli
Vetrarhátíð í næstu viku:
Föstudagur 23. febrúar kl. 9-16.30
Menningardagar eldri borgara í Breiðholti
Kynning á félagsstarfinu í Gerðubergi
Safnanótt
Slagverkshópurinn BENDA flytur gjörning
Rúrí verður með leiðsögn um sýningu sína
Tími - Afstæði - Gildi
Sjónþing, ritþing og tónleikaskrár seld
í kílóavís á Safnanótt!
Laugardagur 24. febrúar kl. 13-18
Heimsdagur barna
Listsmiðjur fyrir börn og unglinga
frá öllum heimsins hornum!
Sjá spennandi dagskrá á www.gerduberg.is
Unaðslegar
stundir
Rauða Húsið · Sími: 483-3330
Búðarstíg 4 · 820 Eyrarbakkka
www.raudahusid.is
með spennandi fjögurra
rétta kvöldverði á aðeins
3.900.- allar helgar
í janúar, febrúar og mars
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
F
í
t
o
n
/
S
Í
A