Fréttablaðið - 16.02.2007, Page 67
X-factor er kominn á fljúgandi
ferð. Þeir níu keppendur sem eftir
eru etja kappi í kvöld og má búast
við því að nokkur hiti sé farinn að
færast í leikinn. Í síðustu viku var
sönghópurinn Fjórflétta sendur
heim og fækkaði þar með enn í
herbúðum Páls Óskars. Ellý hefur
hingað til bara misst einn
keppanda úr sínum hópi en Einar
er ennþá með fullt hús. Það kemur
í ljós í kvöld hvort eitthvað
fækkar í því húsi.
Níu atriði eftir
Katrín Ósk Vilhjálmsdóttir,
unnusta Gylfa Víðissonar
keppanda í X-Faktor, vaknaði
upp við vondan draum í Vetr-
argarði Smáralindar á föstu-
daginn fyrir viku. Katrín var
þar stödd til að styðja
við bakið
á sínum
manni
þegar
hún veitti
því
athygli að
trúlofun-
arhringur-
inn sem Gylfi gaf
henni um jólin var
horfin af baugfingri
hennar.
„Ég veit ekki hvernig þetta
gat gerst,“ segir Katrín, sem
fann ekki hringinn aftur
þrátt fyrir þó
nokkra leit.
Katrín
þurfti þó
ekki að vera
baugslaus
lengi. „Það
vill svo
heppilega til
að góður
vinur hans
Gylfa er gull-
smiður og smíðaði annan hring
handa mér daginn eftir. Gylfi gat
ekki hugsað sér að ég yrði án trú-
lofunarhrings lengi.“
Þrátt fyrir að hafa týnt hringn-
um þetta kvöld var það huggun
harmi gegn að Gylfi flaug öruggur
áfram í keppninni og Katrín er
hæstánægð með sinn mann. „Hann
er auðvitað langbestur þarna og
ég er viss um að hann fer alla leið
og vinnur þetta,“ segir Katrín,
sem flýgur suður frá Akureyri um
hverja helgi til að stappa stálinu í
Gylfa.
Týndi trúlofunarhringnum í Smáralind