Fréttablaðið - 16.02.2007, Síða 68
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
PAN´S LABYRINTH kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA
LITTLE CHILDREN kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA
LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA
KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
NOTES ON A SCANDAL kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.30, 8 og 10.30
ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ
ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
ROCKY BALBOA kl. 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40
KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 B.I. 12 ÁRA
GHOST RIDER kl. 5.40, 8 og 10.15* B.I. 12 ÁRA
THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 8 og 10.20
DREAMGIRLS kl. 5.40
*KRAFTSÝNING
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
ÓSKARSVERÐLAUNA
TILNEFNING1
HEIMSFRUMSÝNING
SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS
Brit-verðlaunin voru af-
hent í London í fyrrakvöld.
Arctic Monkeys var sigur-
vegari kvöldsins með tvenn
stærstu verðlaunin.
The Arctic Monkeys hlaut verð-
laun sem besta breska hljómsveit-
in og fyrir bestu bresku plötuna,
frumburðinn Whatever People
Say I Am, That´s What I´m Not.
Engin plata hefur selst hraðar í
sögu breska vinsældalistans.
Meðlimir sveitarinnar mættu
ekki á verðlaunahátíðina frekar
en á síðasta ári og sendu í staðinn
skilaboð á myndbandi klæddir
sem persónur í söngleiknum
Galdrakarlinn í Oz og sem með-
limir hljómsveitarinnar The
Village People.
Hljómsveitin The Killers frá Las
Vegas fékk einnig tvenn verð-
laun. Annars vegar sem besta
erlenda hljómsveitin og hins
vegar fyrir bestu erlendu plöt-
una.
Amy Winehouse var kjörin
besta breska söngkonan og James
Morrison besti söngvarinn. „Ég
vil bara segja að ég trúi því ekki
að ég sé hérna. Þessi verðlaun eru
tileinkuð öllum þeim söngvaskáld-
um sem eru enn þá að spila á
börum,“ sagði Morrison er hann
tók á móti verðlaununum.
Strákasveitin Take That, sem átti
frábæra endurkomu á síðasta ári,
fékk verðlaun fyrir bestu bresku
smáskífuna, Patience, og Justin
Timberlake var valinn besti
erlendi söngvarinn. Hin kanadíska
Nelly Furtado var valin besta
erlenda söngkonan. Þá var rokk-
sveitin Muse valin besta breska
tónleikasveitin og skoska indí-
sveitin The Frattellis bestu bresku
nýliðarnir.
Athygli vakti að Lily Allen, sem
hafði verið tilnefnd til fernra Brit-
verðlauna fékk engin, ekki frekar
en Corinne Baily Rae, Snow Patrol
og Gnarls Barkley, sem öll fengu
margar tilnefningar.
Strax í sinni fyrstu mynd, Cronos
frá árinu 1993, sýndi mexíkóski
leikstjórinn Guillermo del Toro að
hann er kvikmyndagerðarmaður
með sérstaka og áhugaverða sýn.
Þrátt fyrir glappaskotið Mimic
árið 1997 hefur honum gengið
ágætlega í Hollywood en nýtur sín
þó óneitanlega betur á móðurmál-
inu, eins og Hornsteinn djöfulsins
(El Espinazo del diablo) frá 2001
og nú Völundarhús Pans ber
glögglega vitni um.
Völundarhús Pans gerist á Spáni
árið 1944 þegar fasistar hafa náð
landinu á sitt vald en andspyrnu-
hreyfingin gerir þeim enn skrá-
veifu í sveitunum. Þangað flytur
Ófelía ásamt móður sinni, sem á
von á barni með Vidal höfuðsmanni.
Hin bókhneigða Ófelía hverfur auð-
veldlega á vit eigin hugarheims og
meðan bardagar geisa milli hersins
og skæruliða vitjar skógarpúki
hennar kvöld eitt og felur henni
þrjár þrautir til að leysa.
Auk þess að leikstýra skrifar del
Toro handritið að myndinni og er
skemmst frá því að segja að þetta
er hans langbesta mynd til þessa;
áhrifamikið og ljúfsárt ævintýri
fyrir fullorðna. Del Toro er framúr-
skarandi hryllingsmyndagerðar-
maður og stíleinkenni hans eru á
sínum stað (þar með talinn mikill
áhugi hans á skordýrum). Töfraver-
öldin undursamleg og útfærð af
mikilli hugvitssemi, hvort sem um
ræðir skógarpúka, risakörtur eða
forynjur sem éta börn og minnir á
að klassísku ævintýrin voru upp-
haflega hrylllingssögur síns tíma.
Leikstjórinn er ekki síður í essinu
sínu þegar kemur að raunheimum
og hryllingur stríðsins er nístandi;
ofbeldið er mikið og dansar stund-
um á mörkum splattersins án þess
þó að fara yfir strikið.
Hin unga Ivana Baquero er frá-
bær í hlutverki Ófelíu og Sergei
Lopez er traustur að vanda í hlut-
verki Vidals höfuðsmanns; þar er
líklega komið eitt eftirminnileg-
asta ómenni kvikmyndasögunnar.
Með Völundarhúsi Pans hefur
Guillermo del Toro mögulega gert
sitt meistaraverk, að minnsta kosti
reist sér veglegan bautastein og
skipað sér í fremstu röð innan
sinnar stéttar.
Hryllilega heillandi
Ivana Baquero, Serg-
ei Lopez,
Fyrrum félagar Robbie Williams í
strákasveitinni Take That hafa
óskað Robbie alls hins besta í með-
ferðinni sem hann skráði sig í á
dögunum og vonast til að hann
jafni sig sem allra fyrst.
Meðlimir Take That, sem átti
frábæra endurkomu í fyrra, hafa
verið gagnrýndir í Bretlandi fyrir
að minnast ekki á Robbie þegar
þeir tóku á móti Brit-verðlaunun-
um fyrir besta smáskífulagið,
Patience. „Við þökkuðum Robbie
ekki fyrir vegna þess að þetta er
hans einkamál. Það er ekki við
hæfi að við tjáum okkur um það,“
sagði Jason Orange úr Take That.
Gary Barlow bætti við: „Við
viljum þakka honum vegna þess
að ef það væri ekki fyrir frama
hans þá hefði áhuginn á okkur
ekki verið nægilegur til að koma
okkur aftur á kortið.“
Robbie
þakkað fyrir