Fréttablaðið - 16.02.2007, Side 70
Sænska úrvalsdeildar-
félagið Djurgården hefur áhuga á
miðjumanni Vals, Húsvíkingnum
Pálma Rafni Pálmasyni. Sigurður
Jónsson tók við stjórnartaumun-
um hjá félaginu á dögunum og hjá
liðinu er Íslendingurinn Sölvi Geir
Ottesen. Boltinn byrjaði að rúlla í
málinu í janúar en það hefur hægst
á honum að undanförnu.
„Ég veit í raun voða lítið um
stöðuna á málinu en það hefur lítið
gerst. Ég geri því ekki ráð fyrir að
nokkuð verði úr þessu eins og
staðan er í dag,“ sagði Pálmi Rafn
við Fréttablaðið í gær. Umboðs-
maður Pálma, Arnór Guðjohnsen,
hefur ekkert heyrt frá sænska
félaginu í nokkurn tíma.
„Ég hef aðallega verið í sam-
bandi við Sigurð og veit að hann
hefur mikinn áhuga á Pálma. Þið
virðist aftur á móti lítið vera að
gerast í augnablikinu og ég hef
ekki hugmynd um hvort félagið
hefur gert Valsmönnum tilboð í
leikmanninn,“ sagði Arnór.
Valsmenn sáu sér ekki fært að‘
svara símtölum Fréttablaðsins í
gær þrátt fyrir tugi tilrauna í
framkvæmdastjórann.
Djurgården vill Pálma Rafn
Norska úrvalsdeildar-
félagið Álasund hefur undanfarn-
ar vikur og mánuði sýnt Guðmanni
Þórissyni, leikmanni Breiðabliks,
áhuga. Óskaði liðið eftir því að fá
Guðmann til reynslu í vikutíma í
síðasta mánuði. Því var aftur á
móti hafnað af forráðamönnum
Breiðabliks.
„Við erum alls ekki að standa í
vegi fyrir því að Guðmann fari út
til Noregs,“ sagði Ólafur Kristj-
ánsson, þjálfari Breiðabliks, um
málið. „Að mínu mati hentaði tíma-
setningin ekki. Ég væri frekar til-
búinn að leyfa honum að fara
þegar lengra er liðið á undirbún-
ingstímabilið hjá okkur. Þá yrði
hann betur í stakk búinn til að
standa sig á æfingum með liðinu.“
Sjálfur var Guðmann svekktur
að fá ekki að fara út að svo stöddu
en ætlar að fara eftir ráðum Blika.
„Ef Breiðablik segir að tíminn
henti ekki nú verð ég að hlusta á
það. Það er auðvitað minn draum-
ur að komast út í atvinnumennsk-
una og vonandi kemur tækifæri til
þess aftur síðar.“
Reidar Vågner er yfirmaður
íþróttamála hjá Álasundi og mun
koma til Íslands aftur um helgina,
meðal annars til að fylgjast með
Guðmanni. „Hann er einmitt sú
tegund af leikmanni sem við telj-
um að myndi henta okkur vel. Við
vildum fá hann út til okkar á
reynslu en félagið neitaði því. Við
virðum þá ákvörðun að sjálfsögðu.
Það er mikilvægast fyrir Guð-
mann að hann haldi áfram að bæta
sig og Breiðablik er gott félag
fyrir hann,“ sagði Vågner.
„Við höfum lengi fylgst með
Guðmanni og munum halda því
áfram þrátt fyrir þetta,“ bætti
hann við.
Haraldur Freyr Guðmundsson
er á mála hjá Álasundi og hefur
gegnt lykilhlutverki í liðinu.
Vågner lýsti yfir ánægju sinni
með hann. „Haraldur hefur staðið
sig frábærlega hjá okkur og er
gríðarlega mikilvægur leikmaður
í okkar liði.“
Norska liðið óskaði eftir því að fá Guðmann til reynslu. Forráðamenn Blika
neituðu. Ólafur Kristjánsson segir koma til greina að hann fari síðar.
Birgir Leifur Hafþórsson
hóf í fyrrinótt leik á opna
Indónesíumótinu í golfi sem er
hluti af Evrópumótaröðinni. Hann
lék fyrsta hringinn á pari
vallarins, 71 höggi. Hann fékk
fjóra fugla, einn skolla og einn
skramba. Hann kom á níundu
holu.
Birgir Leifur lék afar vel í gær
ef frá er talin níunda holan. Hann
var í 38. sæti í gær.
Lék á 71 höggi
Deildarbikarkeppni KSÍ
hefst í dag en fyrsti leikurinn
verður á milli ÍA og Fjölnis í
Akraneshöllinni kl. 19. Keppnin
heitir núna Lengjubikarinn en
íslenskar getraunir eru orðnir
aðalstyrktaraðili hans.
A-deild er skipt í tvo átta liða
riðla og fer lokaumferð þeirra
fram þann 19. apríl næstkomandi.
Eftir það tekur við keppni með
útsláttarfyrirkomulagi sem hefst
með fjórðungsúrslitum. Sjálfur
úrslitaleikurinn fer fram á
Stjörnuvelli þann 1. maí.
Keppni hefst í
dag á Akranesi
Jón Arnór Stefánsson
fékk mikið hrós fyrir frammi-
stöðu sína í sínum fyrsta leik með
ítalska liðinu Lottomatica Roma á
miðvikudagskvöldið.
Jasmin Repesa, þjálfari liðsins
talaði um Jón Arnór á blaða-
mannafundi eftir leikinn. Hann
sagði að Jón Arnór hafi spilað vel
og að hann hafði því notað hann
mikið þrátt fyrir að Jón hafi
aðeins mætt á eina skotæfingu
fyrir leikinn.
Í ítalska blaðinu La Gazzetta er
Jóni Arnóri hrósað og þá sérstak-
lega fyrir varnarleikinn og blaðið
Il Messaggero skrifar að Jón
Arnór hafi borið af þeim þremur
nýjum mönnum sem léku sinn
fyrsta leik. Jón Arnór var með 11
stig, 3 fiskaðar villur og 2 stolna
bolta á þeim 16 mínútum sem
hann spilaði sem voru þær fyrstu
hjá íslenskum leikmanni í
Euroleague, Meistaradeild
körfuboltans.
Jón Arnór fær
mikið hrós
70 konur sóttu um
úthlutun úr afrekskvennasjóði
Glitnis og ÍSÍ sem er nú starf-
ræktur í fyrsta sinn. Fresturinn
til að sækja um rann út 5. febrúar
síðastliðinn og umsóknirnar sem
bárust eru bæði frá konum í
einstaklings- og hópíþróttum.
Stjórn afrekssjóðsins, sem þær
Svafa Grönfeldt, Vanda Sigur-
geirsdóttir og Vala Flosadóttir
skipa, mun á næstu dögum fara
yfir umsóknirnar. Fyrsta úthlutun
úr sjóðnum verður síðan þriðju-
daginn 20. febrúar næstkomandi.
Mikil aðsókn
Steve McClaren, lands-
liðsþjálfari Englands, er hrifinn
af þeirri hugmynd að kalla lands-
liðið saman án þess endilega að
spila vináttulandsleiki.
„Ég vil gjarnan geta stýrt því
hvenær við spilum vináttulands-
leiki. Aðalmálið fyrir mig er að fá
tíma með leikmönnunum. Ef það
þýðir að við hittumst án þess að
spila en náum árangri á æfingum
væri ég hrifinn af því fyrirkomu-
lagi.“ Íslenska karlalandsliðið
hefur átt í miklum vandræðum
með að finna vináttulandsleiki.
Það ætti þó ekki að vera fyrir-
staða fyrir Eyjólf Sverrisson
þjálfara að kalla saman sína
menn til þess einungis að æfa
saman.
Vill æfa en ekki endilega spila
Vonast eftir tækifæri í byrjunarliðinu