Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 2
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
NISSAN PATROL ELEGANCE 33”
Nýskr. 07.04 - Sjálfskiptur - Ekinn 46 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
3.990
.000.
-
Fundað var um nafn-
laust bréf sem barst mörgum sem
koma að Baugsmálinu að loknu
þinghaldi í Baugsmálinu í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Á fundin-
um voru dómarar, sækjandi og
verjendur, en Sigurður Tómas
Magnússon, settur ríkissaksókn-
ari, óskaði eftir fundinum.
Gestur Jónsson, verjandi eins
ákærðu, sagði eftir fundinn að þar
hafi sækjandi ítrekað að hann hafi
hvergi komið nálægt þessum
bréfaskriftum, en raunar hafi ekki
nokkrum manni dottið í hug að
bera slíkt upp á Sigurð Tómas.
Fundurinn hafi þó ekki skilað
neinni raunverulegri niðurstöðu.
Sigurður Tómas sagðist í gær
hafa vanþóknun á bréfinu, sem
ekki var sent honum. „Bréf sem
menn skrifa án þess að koma fram
undir nafni eru alltaf verulega
ógeðfelld í mínum huga. Að sjálf-
sögðu vil ég taka fram að það er
verulega slæmt fyrir sókn máls-
ins að svona bréf sé skrifað og
sent.“
Jakob R. Möller, verjandi ann-
ars ákærðu, segir að bréfið hafi
ekki verið sent sér, en hann hafi
lesið það. Það sé afar ógeðfelld og
ómálefnaleg árás á dómstóla
landsins. Það afhjúpi yfirgrips-
mikla vanþekkingu á lögfræðileg-
um málefnum, það sé áróðurs-
plagg og rangfærslurnar í því séu
óteljandi.
Spurður hvort ástæða sé fyrir
lögreglu að rannsaka hver ritaði
bréfið sagði Jakob: „Það hefur
verið eytt miklum mannafla og fé í
að rannsaka af minna tilefni.“
Engin niðurstaða af fundi
Aðeins eitt dæmi virð-
ist þekkt um að dómara hafi verið
sent nafnlaust bréf fyrir utan
nafnlausa bréfið sem var sent til
allra dómara Hæstaréttar Íslands
og lykilmanna í Baugsmálinu fyrr
í vikunni. Friðgeir Björnsson,
fyrrverandi dómstjóri Héraðs-
dóms Reykjavíkur, fékk í hendur
bréf árið 1992 þar sem var fjallað
um hann persónulega á neikvæð-
an hátt. Dómarar og lögmenn sem
Fréttablaðið hafði samband við
eru allir sammála um að starfsum-
hverfi þeirra sé gott og óalgengt
að þeir séu ónáðaðir með bréfa-
skriftum eða símtölum þó að dæmi
séu um slíkt.
Gunnlaugur Claessen, forseti
Hæstaréttar, segist aldrei áður
hafa fengið sent nafnlaust bréf
vegna starfa sinna sem dómari.
Spurningunni um hvort hann fái
hótunarbréf eða símhringingar
sem eru undir nafni, svarar Gunn-
laugur einfaldlega að það sé friður
um starfið að hans mati þótt hann
geti ekki talað fyrir aðra sem
starfinu gegna en sig sjálfan.
„Þetta tilfelli núna er alveg nýtt
og framandi.“
Helgi I. Jónsson, dómstjóri
Héraðsdóms Reykjavíkur, segir
að nafnlaus bréf til dómara hafi
aldrei verið send síðan hann hóf
störf. „Eina bréfið sem ég hef
heyrt af fékk forveri minn, Frið-
geir Björnsson. Það var einsdæmi
þangað til þetta bréf birtist allt í
einu.“
Friðgeir Björnsson segir að
hann þekki ekki fleiri dæmi um
nafnlaus bréf sem send hefðu
verið til dómara hér á landi en
bréf vegna einstakra dóma berist
af og til en þá alltaf undir nafni.
„Þá er ekki um neinar svívirðing-
ar að ræða þó menn taki stundum
djúpt í árinni.“
Helgi Jóhannesson, formaður
Lögmannafélags Íslands, segir að
það sé ekki algengt að lögmenn
verði fyrir ónæði eða fái send hót-
unarbréf, en það komi þó fyrir.
Starfsfriður dómara
og lögmanna góður
Aðeins eitt þekkt dæmi virðist vera um að nafnlaust bréf hafi verið sent til
dómara á undanförnum árum. Dómarar og lögmenn telja starfsumhverfi gott
og hótunarbréf eða símhringingar berist aðeins í undantekningartilfellum.
Viðræður við Banda-
ríkjamenn um hvað taka skuli við
þegar fjármögnun þeirra á rekstri
Íslenska loftvarnakerfisins
(IADS) sleppir í ágúst næstkom-
andi hófust í höfuðstöðvum Atl-
antshafsbandalagsins í Brussel í
gær.
Það er Ratsjárstofnun sem ann-
ast rekstur kerfisins, sem er hluti
af loftvarnakerfi NATO, en í því
felst að verkefnið er hernaðarlegs
eðlis. Jón Egill Egilsson, forstöðu-
maður varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, sem ásamt
Jörundi Valtýssyni af skrifstofu
utanríkisráðherra fór fyrir
íslensku sendinefndinni í viðræð-
unum, tjáði Fréttablaðinu að fund-
urinn hefði verið á mjög jákvæð-
um nótum.
Af Bandaríkjanna hálfu sátu
fundinn fulltrúar úr varnarmála-
ráðuneytinu í Washington. Að sögn
Jóns Egils voru báðir aðilar sam-
mála og samstiga um að vinna
áfram að málinu með uppbyggi-
legum hætti. Til að byrja með sé
viðfangsefni viðræðnanna að
greina hvern þátt rekstrarins og
hvernig því verður komið í kring
að Íslendingar taki við ábyrgð á
hverjum þeirra. Ákveðið var að
halda viðræðunum fljótlega
áfram, en óákveðið er þó hvar og
hvenær næsti fundur fer fram.
Viðræður um málið verða einnig
teknar upp á vettvangi NATO
fljótlega.
Kópavogsbær er
skuldbundinn til að selja Garða-
bæ vatn á undirverði frá og með
byrjun júlímánaðar, segir
Guðríður
Arnardóttir,
oddviti
Samfylkingar í
bæjarstjórn-
inni.
Til að standa
við þá skuld-
bindingu sé
nauðsynlegt að
leggja vatns-
lögn gegnum
Heiðmörk sem fyrst. Annars
þurfi Kópavogsbær að öllum
líkindum að kaupa vatnið af
Orkuveitu Reykjavíkur á fullu
verði og niðurgreiða það til
Garðbæinga.
„Þetta gæti skýrt flumbru-
ganginn í Gunnari I. Birgissyni
bæjarstjóra og hvers vegna
honum liggur svona mikið á,“
segir Guðríður.
Hvorki náðist í Gunnar né Pál
Magnússon bæjarritara í gær,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Gunnar lofaði
ódýru vatni
Reynir, er gaman hjá AFA?
Leikskólabörn fóru í
fylgd Lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu í skrúðgöngu frá
Hlemmi og að Miklatúni í gær.
Tilefnið var Vetrarhátíð sem
stendur yfir í Reykjavík. Um það
bil fjögur hundruð manns tóku
þátt í göngunni. Göngufólkið
skemmti sér svo við að hlýða á
söng Lögreglukórsins og leik-
skólabarna.
Á vefsíðu lögreglunnar kemur
fram að sjálfur Lúlli löggubangsi
hafi slegist í för með börnum og
lögreglu og átti hann óskipta
athygli yngstu göngumannanna.
Leikskólabörn í
fylgd lögreglu
Fuglategundum
hefur aftur tekið að fjölga í
Húsdýragarðinum. Nær öllum
fuglum var þar lógað fyrir
þremur mánuðum eftir að grunur
vaknaði um að afbrigði af
fuglaflensu hefði borist í fuglana
sem þar voru.
Tíu íslenskar hænur og þrír
hanar eru komin í garðinn og
segja forsvarsmenn hans að
fuglum verði enn fjölgað á
næstunni. Von sé á páfuglum,
bronskalkúnum, fasönum, öndum
og dúfum áður en langt um líður.
Fuglar snúa
aftur í garðinn
Lögreglumaður
slasaðist við handtöku á manni í
Hafnarstræti í gærmorgun.
Maðurinn sem er um tvítugt var
undir áhrifum fíkniefna og hafði
haft í hótunum við gangandi
vegfarendur og heimtað af þeim
peninga.
Þegar lögreglumenn komu á
staðinn veitti maðurinn harða
mótspyrnu með þeim afleiðingum
að einn lögreglumannanna
slasaðist á fótum og þurfti að leita
sér læknis. Þrátt fyrir að maður-
inn sé ungur að árum segir
lögregla hann eiga sér langa
afbrotasögu, einkum tengda
fíkniefnaneyslu.
Lögreglumaður
slasaðist á fótum