Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 6
Xbox360 leikjatölv- an er um þriðjungi dýrari í Elko en á löndunum í kringum okkur. Nintendo Wii leikjatölvan, einn keppinauta Xbox360 á leikja- tölvumarkaðnum, er ekki nema um fimm prósentum dýrari í Ormsson en í sömu löndum. Verðið á leikjatölvunum tveim- ur var kannað í verslunum Wool- worths í Bretlandi, Webhallen í Svíþjóð, Multikanalen í Noregi og Midtdaten í Danmörku. Valdar voru verslanir sem eru sem lík- astar þeim sem borið var saman við á Íslandi. Sundurliðað verð landanna má sjá á töflu hér á síðunni, en sé tekið meðaltal af verðinu í þess- um fjórum löndum kostar Xbox360 tölvan 33.624 krónur. Í Elko kostar hún 44.995 krónur, eða 31 prósenti meira. Meðalverð á Nintendo Wii í sömu löndum er 28.431 króna. Í Ormsson, sem er umboðsaðili Nintendo á Íslandi, kostar sama tegund vélarinnar 29.900 krónur. Nintendo Wii er því ekki nema um fimm prósentum dýrari hér en í löndunum í kring. Gísli Jóhannsson, innkaupa- stjóri hjá Elko, segir tvær megin- ástæður vera að baki þessum verðmun. Annars vegar séu tollar og skattar hærri hér en annars stað- ar, og hins vegar geti verið að verðslagurinn sé enn þá harðari á hinum löndunum en hér, jafnvel þannig að tölvurnar séu seldar undir innkaupsverði. „Við erum sjálfir með mjög litla álagningu á vélinni. Þessi bransi er meira og minna þannig að menn selja tölv- urnar á, og jafnvel undir, inn- kaupsverði og leggja síðan á leik- ina.“ Rúnar Hrafn Sigmundsson, sölumaður hjá Ormsson, segist afar ánægður með að verðmunur- inn á Nintendo Wii sé svona lítill. „Við settum okkur í upphafi að fara aldrei undir ákveðið verð og höfum staðið við það. Það er mjög ánægjulegt að munurinn sé ekki meiri en þetta þrátt fyrir tolla og gjöld sem eru hér en ekki í öðrum löndum,“ segir hann. Hagnast frekar á leikjum en tölvum Verðmunur á leikjatölvum hérlendis og í nágrannalöndunum er æði misjafn eftir því hver tölvan er. Xbox 360 er þriðjungi dýrari hér en í löndunum í kring. Nintendo Wii er ekki nema fimm prósentum dýrari hér en í sömu löndum. INNBLÁSTUR FYRIR SKÖPUNARGLEÐINA Ókeypis Panduro Hobby föndurlisti á íslensku! Einnig fáanlegur í Skólavörubúðinni. Borgartúni 29 Höfðabakka 3Glerárgötu 34 Var rétt af Bændasamtökunum að meina gestum klámráð- stefnu að gista á Hótel Sögu? Ætlar þú að kjósa í alþingis- kosningunum í vor? Jón Sigurðsson, iðnað- ar- og viðskiptaráðherra, getur ekki tjáð sig um hugsanlegt eign- arnám jarða við Þjórsá né um ummæli Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra í þá veru að slík valdbeiting sé „fráleit“. „Ég má ekki úttala mig um þetta mál, því samkvæmt stjórn- sýslunni verður ráðherra að bíða ef málið kemur til hans á seinna stigi, þá má hann ekki vera van- hæfur [til að úrskurða].“ Jón tekur þó fram að það sé „hvergi neins staðar á neinu borði að fara út í neitt eignarnámsferli, það er þvert á móti verið að semja í góðu“. Arnar Þór Sævarsson, aðstoð- armaður Jóns, tekur fram að þrjú skilyrði þurfi til eignarnáms: Að almannahagsmunir krefjist þess, að lagaheimild liggi fyrir því og að fullar bætur verði greiddar land- eigendum. Ljóst sé að heimild finnist í lögum til eignarnáms. Málið snúist því fyrst og fremst um hvort almannahagsmunir séu nægilega knýjandi eða ekki. Árni M. Mathiesen fjármála- ráðherra vildi heldur ekki tjá sig um málið, en benti á sín fyrri ummæli í Fréttablaðinu. Hinn 20. janúar sagði Árni eftirfarandi: „Lögin leyfa eignarnám og því er það í prinsippinu réttlætanlegt, en auðvitað getur það verið mis- jafnt eftir einstökum tilfellum. [...] Ég veit hins vegar ekki hvern- ig þetta mál stendur eða hverjar aðstæður eru í einstökum málum, þannig að ég get ekki svarað fyrir einstök mál.“ Eignarnám ekki útilokað Loðnuaflinn á ver- tíðinni nálgast 150 þúsund tonn en leyfilegur heildarafli íslenskra skipa er 300 þúsund tonn. Bræla á miðunum fyrir Suðurlandi hefur hamlað veiðum en ágætis veiði er þar sem skipin geta athafnað sig. Veðurlag næstu vikna skiptir miklu næstu vik- urnar ella mun kvótinn ekki nást og milljarða verðmæti tapast. Mikið hefur verið að gera í loðnuvinnslu í Vestmannaeyjum, unnið er á vöktum og reynt að frysta eins mikið til manneldis og frekast er unnt. Eitthvað hefur verið um átu í loðnunni sem hefur komið í veg fyrir að hægt sé að frysta á fullum afköst- um. Eyþór Harðarson, útgerðar- stjóri hjá Ísfélagi Vestmanna- eyja, segir að búið sé að frysta um 1.000 tonn af loðnu á Japans- markað, og um 2.000 tonn á Rúss- landsmarkað. Bátar Ísfélagsins hafa veitt um 30 þúsund tonn af loðnu og eiga eftir að veiða annað eins, reynt verður að vinna þann kvóta til hrognafrystingar. Sigurjón Gísli Jónsson, fram- leiðslustjóri hjá Vinnslustöð Vestmannaeyja, segir að búið sé að frysta um 1.600 tonn af loðnu á Japansmarkað, og um 1.500 tonn á Rússlandsmarkað. Bátar Vinnslustöðvarinnar hafa veitt 15 þúsund tonn og eiga eftir um 16 þúsund tonn. Vinnslustöðin ætlar að nýta þann kvóta til hrognafrystingar. Nokkur hús og að minnsta kosti ein vörubifreið sukku ofan í jörðina þegar stór sigskál myndaðist skyndilega í Gvatemalaborg í fyrrinótt. Ekki var nokkur leið að bjarga fólki úr húsunum því botn holunnar var mjög óstöðugur. Hávær hljóð og stækur hol- ræsafnykur bárust upp úr holunni og jörðin í kring titraði. Síðar um daginn voru þúsund hús í næsta nágrenni rýmd. Herinn var kallaður út til að aðstoða fólk og hafa stjórn á rýmingunni. Talið er að leki úr aðalholræsi og miklar rigningar nýverið hafi valdið jarðsiginu. Jarðvegurinn hafi hreinlega verið orðinn gegnsósa. Húsin sukku fyrirvaralaust Steinunn Jakobsdóttir, tveggja barna móðir sem fékk heilablóðfall fyrir tveimur árum, segist vera í algjörri óvissu um húsnæði þegar hún þarf að flytja úr íbúð Sjálfsbjargar eftir viku. Hún og foreldrar hennar hafa ítrekað beðið bæjarstjórn Mosfellsbæjar um úrræði en fengið þau svör að enga hjálp sé að fá. Bæjarfélagið hafi selt svo margar félagslegar íbúðir að undanförnu, að ekki sé hægt að veita Steinunni slíka íbúð. „Þeir virðast ekkert ætla að fjölga íbúðum þó eftirspurn sé eftir þeim, ég veit ekki hvar ég verð næst þegar ég sé börnin mín, gatan blasir við,“ segir Steinunn. Segir götuna blasa við Að minnsta kosti sextán manns létust þegar eldur braust út í ferju í Javahafi á Indónesíu á fimmtudaginn. Hundruð manna þurftu að stökkva í sjóinn til að forða sér frá eldinum, sumir með smábörn í fanginu. Meira en tíu var enn saknað í gær að sögn talsmanns indónes- íska hersins og leituðu herskip að fólkinu í sjónum. Algengt er þó að skrár yfir farþega séu ónákvæmar og því er líklegt að enn fleiri sé saknað.Talið er að upptök eldsins um borð megi rekja til að kviknað hafi í flutningabíl sem hlaðinn var af einhvers konar efnum. Eldur braust út í ferju á hafi úti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.