Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 82
Juninho Pernambucano,
miðjumaður franska liðsins Lyon,
kom fram með þá samsæriskenn-
ingu að markvisst væri unnið
gegn frönsku liðunum í Evrópu-
keppninni. Juninho var ekki
sáttur við enska dómarann Mike
Riley, sem dæmdi markalausan
leik Roma og Lyon í Róm. Sólar-
hring áður varð allt vitlaust þegar
Ryan Giggs tryggði Manchester
United 1-0 sigur á Lille með því
að taka aukaspyrnu áður en Lille-
menn voru tilbúnir.
„Ég varð fyrir miklum von-
brigðum með dómarana í leiknum
hjá Lille og eftir leikinn okkar sá
ég að frönsk lið fá enga virðingu í
Evrópukeppninni. Frönsk lið fá
bara ekki sömu meðhöndlun og
liðin frá Englandi, Spáni eða
Ítalíu,“ sagði Brasilíumaðurinn.
Juninho var ekki hættur því hann
sakaði einnig Philippe Mexes hjá
Roma um að reyna viljandi að
meiða sig á lokakafla leiksins.
Frönsk lið fá
enga virðingu
Michael Jordan er einn
af eigendum NBA-liðsins Charlotte
Bobcats og hann gaf það út á
dögunum að hann ætlaði að eyða
því sem til þyrfti til þess að fá
sterka leikmenn til liðsins. Jordan
sendi ársmiðahöfum bréf þar sem
hann fór yfir framtíðarplönin.
Charlotte hefur aðeins unnið 19 af
51 leik í vetur og er í 12. sæti af 15
liðum í austurdeildinni.
„Ef þið þekkið mig þá vitið þið
að ég þoli ekki að tapa. Það er
ætlun okkar að eyða þeim pening
sem þarf til að fá réttu leikmenn-
ina til okkar. Við ætlum að bæta
við okkur góðum mönnum í
nýliðavalinu og næla okkur síðan
í leikmenn með lausa samninga,“
sagði Jordan í bréfinu en eins og
er borgar Bobcats lægstu launin í
deildinni. Það gæti breyst fyrr en
varir.
Jordan ætlar að
eyða í Bobcats
KR-ingar léku síðasta leik
sinn á æfingamótinu á La Manga
gegn Noregsmeisturum Rosen-
borgar í gær og urðu að sætta sig
við 0-1 tap í góðum leik. Sigur-
markið kom strax á þriðju mínútu
en eftir erfiðar upphafsmínútur
sótti vesturbæjarliðið í sig veðrið
og var nokkrum sinnum nálægt
því að jafna leikinn.
„Þetta var þrusugóður leikur
hjá okkur. Við vorum bara óheppn-
ir, fáum á okkur klaufalegt mark í
upphafi leiks, fáum ekki dæmt víti
sem við áttum að fá og nýtum svo
ekki algjört dauðafæri í lokin,“
sagði Teitur Þórðarson, þjálfari
KR, eftir leik en hann sagði liðið
hafa verið að spila eins vel og í 4-0
sigrinum á Brann.
„Ég er ofboðslega ánægður
með mótið því við erum búnir að
standa okkur svakalega vel. Í
fyrra mættum við liðunum sem
voru í sætum 5 til 8 en nú vorum
við að spila við fjögur efstu liðin.
Fyrsti leikurinn var mjög góður
þar sem við töpum 1-0 fyrir Våler-
enga, sem er eitt besta liðið í Nor-
egi. Síðan kemur leikurinn við
Lilleström þar sem úrslitin eru
miklu verri en leikurinn. Við vinn-
um síðan Brann 4-0 og töpum síðan
naumt á móti Rosenborg. Það er
mjög gott,“ sagði Teitur og það
besta við ferðina er að hún þjapp-
aði saman liðinu fyrir átök sum-
arsins.
„Þessi ferð skilar okkur miklu.
Liðið er að standa sig gífurlega vel
og þetta hefur verið frábær ferð
til að keyra saman mannskapinn.
Ég er sáttur við mjög margt en
sérstaklega með móralinn og bar-
áttuviljann í liðinu í síðustu tveim-
ur leikjum. Þeir eiga hrós skilið
fyrir það strákarnir,“ segir Teitur,
sem segir KR-liðið í betra formi
en norsku liðin.
„Við erum að spila þrælvel og
höfum verið að taka þessi lið á
úthaldinu. Við höfum lent í smá
basli með tempóið í byrjun leikj-
anna en þegar hraðinn minnkar
tökum við nánast yfir leikina. Það
þýðir bara að við erum í góðu
formi og erum með góða grunn-
þjálfun,“ sagði Teitur, sem er
athyglisvert ekki síst þar sem það
er styttra í mót hjá norsku liðun-
um auk þess að þar fara atvinnu-
menn sem gera ekkert annað en að
æfa fótbolta.
KR-ingar koma heim til Íslands
seint annað kvöld og spila sinn
fyrsta leik í Lengjubikarnum viku
síðar. Sá leikur er gegn Þrótti í
Egilshöllinni sunnudaginn 4. mars.
Teitur Þórðarson, þjálfari KR, var ánægður með frammistöðu liðsins á æfinga-
mótinu á La Manga en KR tapaði 0-1 fyrir Rosenborg í lokaleiknum í gær.
GRÆJUDAGAR
Í HÁTÆKNI
Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.isTilboðum skolað niður með Coca-Cola Opnunartími þessa helgi 11 - 18
• Flatsjónvörp með allt að 30% afslætti
• Magnarar með allt að 50% afslætti
• Nokia farsímar með allt að 40% afslætti
Tilboð á
öllum vörum
Aðeins um helgina
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
3
5
0