Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 38
heimaerbest Bærinn Vör stendur við bakka Ell- iðavatns með útsýni yfir vatnið og Bláfjallahringinn í fjarska. „Nafn- ið er komið úr Snorra-Eddu en Vör var ein af ásynjunum,“ útskýrir Unnur, sem átt hefur kofann í um ellefu ár. Hann keypti hún af ferðafélaga úr einni af Kínaferð- um sínum. Unnur fer hjólandi allra sinna ferða og lætur sig ekki muna að hjóla í klukkutíma frá heimili sínu í miðbænum bæði sumar og vetur. „Ekki neitt,“ svar- ar Unnur hlæjandi þegar hún er spurð hvað hún hafist að í kofan- um sem er hvorki tengdur við raf- magn né vatn. „Ég sit og horfi á útsýnið og slappa af,“ útskýrir hún. Kofi Unnar var fyrst byggður sem bátaskýli og síðar var byggð önnur hæð ofan á það. „Þetta er því tveggja hæða bústaður,“ segir Unnur kímin um pínulitla kofann sinn sem var heldur laslegur þegar hún tók við honum fyrir ell- efu árum. Hún hefur sjálf lappað upp á hann og gert vistlegan enda er hún nokkuð lagin með hamar- inn. Rauð girðing er meðfram lóð- inni en glæsilegt hliðið inn í garð- inn er gert úr kínverskri rúmfjöl í þremur hlutum sem Unnur ferð- aðist með í handfarangri alla leið frá Kína. Þegar hún kemur í bústaðinn hengir hún ávallt kínverskt skraut á hliðið og húsið og því auðvelt að sjá hvenær hún er heimavið. Inni í kofanum eru margir fal- legir munir en flesta þeirra hefur Unnur fengið að gjöf frá vinum og kunningjum eða keypt á ferðalagi. Þar ægir mörgu saman, styttum, ljósmyndum og munum auk tveggja málverka eftir Unni sjálfa. Ástæðan fyrir heimsókninni í þetta sinn var að hengja plakat af kínverskum hershöfðingja á úti- hurðina í tilefni af ári svínsins. „Þetta er yfirleitt gert á gaml- ársnótt en hershöfðinginn er per- sóna úr gamalli þjóðsögu. Fyrir langa löngu var keisarinn veikur og lét tvo hershöfðingja standa vörð við útidyrnar til að halda vondum öndum frá. Þetta tókst svo vel að keisarinn varð frískur. Almenningur hafði ekki efni á hershöfðingjum og málaðu mynd- ir af þeim á dyrnar í staðinn og þetta varð síðar að hefð.“ Margt í kofanum minnir á Kína enda skipuleggur Unnur ferðir til landsins með Kínaklúbbi Unnar. Hún þekkir vel til í Kína enda hefur hún farið þangað rúmlega tuttugu sinnum, en í fyrsta sinn dvaldist hin lærða dansmær þar í þrjá mánuði árið 1983. Í apríl held- ur hún utan með 24. hópinn sinn og leitar uppi skemmtilega staði sem fæstir ferðamenn fá augum að líta enda vill Unnur leyfa fólki að sjá hið raunverulega Kína. Ef fólk vill fræðast nánar um ferðir Unnar er bent á vefsíðuna www.simnet.is/kinaklubbur solveig@frettabladid.is Tilvalinn staður til að gera ekki neitt Unnur Guðjónsdóttir á lítinn kofa við Elliðavatn. Þar hefur hún komið sér þægilega fyrir og skreytt bæði innan og utan með munum úr ferðalögum sínum um heiminn. Unnur er eigandi Kínaklúbbs Unnar og hefur farið rúmlega tuttugu sinnum til Kína. Í tilefni af nýja kínverska árinu, ári svínsins, setur Unnur upp mynd af kínverskum hershöfðingja úr þjóðsögu sem segir að hann muni verja heimilið fyrir illum öndum. FRÉTTALBLAÐIÐ/VILHELM Drykkjarhornin hefur Unnur keypt víða um heim og nýtast vel í hinum fjölmörgu boðum sem haldin eru í bústaðnum smáa. Kamínan er mikið notuð í kofanum enda eina uppspretta hita. Krúttlegi kofinn er ekki stór en mjög notalegur. Upprunalega var þetta bátaskýli sem byggt var ofan á. Unnur geymir rauðan bát á neðri hæðinni, sem hún nefnir Karfa, og rær stundum út á vatnið. Unnur skreytir húsið og garðinn með munum frá Kína. 24. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.