Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 69

Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 69
Guðmundur Breiðfjörð, markaðsstjóri kvikmyndadeildar Senu, segist tví- mælalaust taka undir að íslensk bíó- menning hafi batnað á undanförnum árum og tilgreinir þar meðal annars bætta þjónustu við bíógesti sem felst meðal annars í betri sýningaraðstöðu og aukinni tækni. Aukinheldur nefnir hann að nýjar myndir skili sér æ hraðar hing- að til lands og fjölmargar myndir séu heimsfrumsýndar hér á landi. Iðnustu bíógestirnir eru ungt fólk en Guðmundur áréttar að aldursbilið fari stækkandi. „Menn héldu að ungir strákar væru allra dugleg- ustu bíógestirnir en þegar allt er talið kemur í ljós að kynjahlutfallið er mjög jafnt, til dæmis eru konur mjög duglegar að mæta á rómantískar gam- anmyndir. Markhópurinn hefur verið sterkastur á aldrinum 16-24 ára en undanfarin ár hefur bilið verið að aukast og nú myndi ég segja að helsti markhópurinn væri 18-39 ára. Ástæða þess er til dæmis hversu vel kvikmyndahátíðirnar hafa geng- ið og nú með tilkomu Græna ljóssins verður meira af klassískum myndum sem ná mögulega að draga eldri gesti inn í bíóin sem annars myndu ekki mæta vegna þess að það eru hlé eða of mikið af poppkorn- smyndum.“ Hann útskýrir að íslenskar myndir geti hækkað aðsóknartölur kvikmyndahúsanna gífurlega og þá komi oft gestir sem annars séu sjaldséðir í kvik- myndahúsunum. Í ljósi þess að aðsókn landsmanna í kvikmyndahús hefur dregist saman á undanförn- um árum segir Guðmundur að framboð á afþreyingarefni hafi aukist gífurlega og því sé samkeppnin harðari. „Ég held að aðsóknin nú sé orðin tiltölulega stöðug en árið í fyrra var algjört metár hjá okkur en Mýrin er stór hluti af þeirri velgengni. Auðvitað er það sveiflukennt eftir því hvar stórmyndir lenda og hvort það er stór íslensk mynd á almanaks- árinu. Miðað við þær aðsóknartölur að Íslendingar fari að meðaltali rúmlega fimm sinnum í bíó ári verður að segjast að hér er mjög heilbrigður og hraustur markaður sem ekki hefur undan neinu að kvarta.“ Sena er nýtekin við rekstri Háskólabíós og Guð- mundur segir að þar verði ráðist í gagngerar endur- bætur á næstunni, auk þess sem þá verði sérhæfing milli kvikmyndahúsa þeirra mögulega aukin, Græna ljósið fái inni í Regnboganum, íslensku myndirnar í Háskólabíói og stórmyndirnar í Smárabíói. Hann segir að samkeppni í dreifingu og sýningu kvikmynda sé töluverð en hún skili sér til neytenda í bættri þjónustu. Þegar talið berst að fleiri aðilum, til dæmis Fjalakettinum og sýningum Kvikmynda- safnins, sem nú standi að skipulögðum kvikmynda- sýningum segist Guðmundur fagna fjölbreytninni. „Það er ákveðinn jaðar sem alltaf hefur verið til staðar og mun ávallt verða. Við höfum komið til móts við þennan hóp með kvikmyndahátíðum og sýningum Græna ljóssins. Við viljum að sjálfsögðu vinna með þessu fólki því það eykur flóruna og hjálpar öllum iðnaðinum.“ Guðmundur segir þó að fyrrgreindar sýningar muni ekki hafa áhrif á sýn- ingarstefnu Senu. Eru íslensk bíóhús bara ofvaxnar sjoppur eða býr hér bíóþjóð? Að undanförnu hefur verið rætt nokkuð um áherslur íslenskra kvikmyndahúsa en horfur eru á að fjölbreytni myndefnis sé að auk- ast, til dæmis með tilkomu kvikmyndaklúbbsins Fjalakattarins, sem hefur starfsemi sína á morg- un. Kristrún Heiða Hauksdóttir heyrði hljóðið í þremur hagsmunaaðilum og forvitnaðist um hvort bíómenningin væri að batna. Björn Ægir Norðfjörð, aðjúnkt í kvik- myndafræði við Háskóla Íslands, er bjartsýnn á framtíð íslenskrar bíómenn- ingar og lýsir yfir ánægju sinni með þá grósku sem merkja má meðal áhuga- fólks um kvikmyndir, til dæmis fram- taksemi Fjalakattarins og dreifingafyr- irtækisins Græna ljóssins. „Það veltur hins vegar á áhorfendum hvort þessar tilraunir takast,“ segir hann. „Aðrar myndir en „Hollywood-myndirnar“ nutu mun meiri vinsælda hér áður fyrr en þær gera í dag því raunar er búið að spilla fyrir kvikmyndaviðtökum hérlendis á undanförnum árum – hugmyndir íslenskra áhorfenda eru svo bundnar við Hollywood að það er erfitt að brúa það bil. Nú er margt að gerast og ég vona að áhorfendur taki við sér, opni augun fyrir öðru en nýjustu „Hollywood- myndunum“ og nýti sér aðrar sýningar og miðla – það þýðir ekki að fólk þurfi að hætti við að sjá nýj- ustu Bond-myndina heldur má reyna að krydda hlutina aðeins.“ Hann útskýrir að hér á landi hafi verið kappkostað að gera kvikmyndahúsin sem fullkomnust, til dæmis varðandi hljóð og þægileg sæti en inntakið hafi setið á hak- anum og kvikmyndaúrvalið sé fábreytt. Björn segir að fjöldi bíógesta miðað við höfðatölu hafi lítið að segja um hversu rík kvikmyndamenning sé hér á landi, til dæmis í ljósi þess hversu ein- hæft úrvalið er. Tölur sem þessar geti á hinn bóginn verið til vitnis um að hér á landi sé lítið hægt að gera annað en að fara í bíó. Björn útskýrir að námið sem nýhafið er í HÍ þar sem nemendur geta lært kvikmyndafræði sem auka- grein til BA-prófs sé ákveðin staðfesting á því að kvikmyndamiðillinn sé nú tekinn alvarlega. „Við höfum enga fordóma gagnvart Hollywood-myndum hér og sýnum þær eins og aðrar myndir því mark- miðið er að víkka út hugmyndir nemenda um kvik- myndir og kenna þeim að horfa á myndir sem hafa fleiri markmið en að selja popp og kók.“ Ásgrímur Sverrison, ritstjóri Lands og sona - málgagns Íslensku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar, segir að margt bendi til þess að íslensk bíómenning fari batnandi og telur þar til þrjú atriði; eflingu íslenskrar kvikmyndagerðar, þróun Alþjóðlegu kvikmynda- hátíðarinnar sem hefur fest sig í sessi og vaxið með árunum og fram- tak Kvikmyndaklúbbsins Fjalakattarins annars vegar og Græna ljóssins hins vegar. „Flóran er að skána en það ber að hafa í huga að hér höfum við búið við mjög einhæft og takmarkað bíóúrval um árabil. Ég tel að það sé verið að svíkja okkur um stóran hluta af kvikmyndamenningu með því að halda að okkur einhæfu úrvali – það er verið að gera mun fjölbreyttari myndir en þær sem Holly- wood stendur að. Það er ekki nema sjálfsagt að við fáum að vera hluti af því, okkar menn- ing verður ríkari fyrir vikið.“ Ásgrímur segir að uppi séu margar vísbendingar um að hér sé markaður fyrir fjölbreyttari myndir. „Fólk þyrstir í fjölbreyttara efni en þennan áhuga þarf að rækta, það þarf að hlúa að og stækka þennan hóp. Myndefni verður sífellt stærri hluti af okkar menningu og þess vegna er mikilvægt að hér sé fjölbreytt efni á boðstólum.“ Hann áréttar að bíómenning hér á landi sé mjög mótsagnakennd. „Við erum ein mesta bíóþjóð í heimi og það vita framleiðendur í Hollywood mæta vel enda fáum við hingað nýjustu myndinar frá þeim. Á hinn bóginn er mjög lítil kvikmyndamenning hér á landi, lítil umræða og rannsóknir á kvikmyndinni sem list- og tjáningarformi. Áhugi á slíku virðist mjög takmarkaður en það skýrist meðal annars af fábreyttu úrvali mynda síðustu áratugina.“ Ásgrímur útskýrir að þróun kvikmyndamenningar hér fylgi alþjóðlegri breytingu í kvik- myndaiðnaðinum og vísar til þess að staða miðilsins í vestrænni menningi hafi breyst upp úr 1980. „Hún breytist úr því að vera almennt viðurkennt listform líkt og hún hafði verið síðustu 20-30 árin á undan yfir í að verða meira popp- og fjöldamenning líkt og hún var í upphafi. Það sem gerist hér endurspeglar þessa almennu þróun en gallinn er sá að hér urðu áherslurnar ýktari, þessar listrænu áherslur hurfu næstum. Í öðrum löndum hafði fólk enn aðgang að „listrænum myndum“, þar voru starfrækt bíó sem sérhæfðu sig í slíkum mynd- um.“ Ásgrímur fagnar framtaki Græna ljóssins og þá sér í lagi því að nú sé farið að markaðssetja „listrænni“ kvikmyndir. „Ég hef lengi hvatt til þess að þær væru markaðssettar af sömu ákefð og „Hollywood- myndir“ og nú virðist það vera að gerast. En það verður að gefa þessu tíma. Fólk hefur enn takmarkaðan smekk fyrir framsæknum mynd- um en hann má byggja upp ef menn halda því til streitu og trúa á þetta framtak. Það er mjög mikilvægt að menn gefist ekki upp þó það gangi hægt til að byrja með.“ Batnandi bíómenning á Íslandi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.