Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 19
[Hlutabréf]
Hlutabréf í Aktiv Kapital féllu í
verði um 9,6 prósent eftir að félag-
ið birti ársuppgjör fyrir árið 2006
sem sýndi 3,3 milljarða króna tap
fyrir skatta. Þar af var tapið á
fjórða ársfjórðungi tæpir 1,4 millj-
arðar.
Þetta er töluverður viðsnúning-
ur til hins verra frá árinu 2005
þegar hagnaðurinn nam 2,5 millj-
örðum eftir skatta.
Aktiv Kapital er fjármálafyrir-
tæki sem sérhæfir sig í innheimtu
á viðskiptakröfum og starfar í tíu
löndum. FL Group er annar stærsti
hluthafinn með 13,3 prósenta hlut.
Rekstrartekjur norska félags-
ins námu 15,8 milljörðum króna í
fyrra.
Hlutabréf féllu
í Aktiv Kapital
Tekjur breska hergagnaframleið-
andans BAE Systems tæplega þre-
faldaðist á síðasta ári. Mestu
munar um aukna sölu á hergögn-
um til bandaríska hersins í fyrra
og sölu félagsins á 20 prósenta
hlut í evrópska flugvélaframleið-
andanum Airbus til EADS, móður-
félags Airbus.
Tekjur BAE Systems, sem er
einn stærsti hergagnaframleið-
andi Bretlands, námu 1,64 millj-
örðum punda, jafnvirði 213,5 millj-
arða íslenskra króna, samborið
við 553 milljónir punda, eða 72
milljarða króna, árið 2005. Þar af
námu tekjur félagsins vegna sölu
á hlut þess í Airbus 925 milljónum
punda, ríflega 120 milljörðum
íslenskra króna.
BAE skilaði af
sér góðu ári
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
stendur í nýjum methæðum eftir
töluverða hækkun á hlutabréfa-
markaði í gær. Vísitalan hækkaði
þá um 1,25 prósent og stóð í 7.446
stigum.
Þar með nemur hækkun árs-
ins 16,16 prósentum sem er orðin
meiri hækkun en á öllu árinu í
fyrra. Þá var ávöxtun Úrvalsvísi-
tölunnar 15,8 prósent.
Til samanburðar settu grein-
ingardeildir viðskiptabankanna
fram spár í upphafi árs um að
Úrvalsvísitalan myndi hækka um
20-25 prósent á árinu 2007.
Fimm fyrirtæki hafa hækkað
um fimmtung eða meira það sem
af er ári.
Þau koma öll úr fjármálageir-
anum og eru: Exista, FL Group,
Glitnir, Landsbankinn og
Straumur-Burðarás. Exista er
hástökkvari ársins með um 28
prósenta hækkun.
Kaupþing, verðmætasta félag-
ið í Kauphöllinni, hefur hækkað
um 19,4 prósent á árinu.
Meiri hækkun en allt árið 2006
Fimm fyrirtæki úr fjármálageiranum hafa hækkað um fimmtung á árinu.
Hagnaður samstæðu Milestone
nam 21,4 milljörðum króna eftir
skatta á árinu 2006, samkvæmt
uppgjöri sem birt var í gær.
Í lok síðasta árs var arðsemi
eigin fjár Milestone 92 prósent og
heildareignir námu ríflega 170
milljörðum króna, jukust um 102
prósent á árinu. Eigið fé samstæð-
unnar nam ríflega 43,7 milljörðum
króna og hafði aukist um 69 pró-
sent frá því í byrjun ársins.
„Vöxtur hefur einkennt efna-
hag samstæðunnar á undanförn-
um árum með fjárfestingum og
styrkingu eiginfjár. Heildareignir
samstæðunnar hafa frá upphafi
árs 2005 vaxið úr tæplega 11,4
milljörðum í rúmlega 170 millj-
arða, þar af 85,7 milljarða á árinu
2006,“ segir félagið.
Kjarnafjárfest-
ingar skila sér
* Flugvallarskattar eru ekki innifaldir: Baltimore, 13.470 kr., Glasgow, 8.860 kr., Amsterdam, 8.080 kr. og Osló, 7.180 kr. Útreikningur á skatti er háður gengi.
Með því að bóka á www.vildarklubbur.is sparast 2.000 kr. þjónustugjald.
Einnig er hægt að bóka í síma 50 50 100 gegn 2.000 kr. þjónustugjaldi.
Sölutímabil: Mánudagur 26. febrúar og þriðjudagur 27. febrúar.
Ferðatímabil: Apríl og maí 2007.
Barnaafsláttur Vildarklúbbsins gildir í þessu tilboði.
+ Nánari upplýsingar á www.vildarklubbur.is
Vildarklúbbur
S
IA
.I
S
I
C
E
3
64
02
0
2
/0
7
BALTIMORE
aðeins 25.000 Vildarpunktar*
HELMINGSAFSLÁTTUR
AF VILDARFERÐUM
TIL VALINNA ÁFANGASTAÐA ICELANDAIR Í APRÍL OG MAÍ
AMSTERDAM
aðeins 19.000 Vildarpunktar*
GLASGOW
aðeins 19.000 Vildarpunktar*
OSLÓ
aðeins 19.000 Vildarpunktar*
‘07 70ÁR Á FLUGI
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MADRÍD
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
BERGEN GAUTABORG
REYKJAVÍK
ÍSLAND