Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 34
Hollywood-stjörnurnar taka
þátt í tískusýningu General
Motors.
Það var mikið um dýrðir þegar
árleg tískusýning General Motors,
Ten, fór fram í Paramount-kvik-
myndaverinu í Los Angeles í vik-
unni. Er hún nokkuð frábrugðin
öðrum tískusýningum þar sem
stjörnur úr skemmtanaiðnaðinum
sýna fötin en ekki fyrirsæturnar.
Tískusýningin er orðinn einn
vinsælasti viðburðurinn fyrir Ósk-
arsverðlaunaafhendinguna, sem
verður haldin í mars næstkom-
andi, og margir keppenda nota því
tækifærið til að vekja á sér athygli
annað hvort með því að sýna eða
láta sjá sig.
Því voru leikkonurnar Jennifer
Hudson og Adriana Barraza á
meðal þeirra sem reyndu fyrir sér
á sýningarpallinum. Sú fyrrnefnda
er tilnefnd fyrir aukahlutverk í
Dream Girls en sú síðarnefnda
fyrir leik í Babel. Jackie Earle
Hayle, sem er tilnefndur fyrir
aukahlutverk í kvikmyndinni
Little Children, var á meðal
karlstjarnanna sem sýndu um
kvöldið.
Greina mátti mörg þekkt andlit
í áhorfendaskaranum, þar á meðal
leikaraparið Ashton Kutcher og
Demi Moore, sem mættu til leiks
ásamt vinkonu þeirra Penélope
Cruz, sem er tilnefnd til Óskars-
verðlauna fyrir bestan leik í kvik-
mynd leikstjórans Pedros Almod-
óvar, Volver.
Af myndunum að dæma virtust
fyrirsætur og áhorfendur hafa
gaman af og mál manna að stjörn-
urnar stæðu sig vel í nýju hlut-
verki.
Stjörnurnar sýna
í Hollywood
Köflótt og röndótt
í tísku næsta vetur
Á tískuvikunni í Mílanó var köflótt
mjög áberandi ásamt röndum og
hlébarðamynstri.
Köflótt, róndótt og hlébarðamynstur
var mikið í tísku á níunda áratugnum
sem virðist vera kominn aftur með
stæl.
Á sýningu Blugirl, á tískuvikunni í
Mílanó þar sem haust og vetartískn
var kynnt, var níundi áratugurinn
sérstaklega áberandi og mátti sjá það
bæði í litavali og sniðum.
Sokkabuxurnar verða í sterkum
litum og hattar áberandi.
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 • Sunnud. 12-16