Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 65
F reyja hefur frá fæð- ingu glímt við alvar- lega líkamlega fötlun sem lýsir sér þannig að bein hennar eru stökk og brotna auð- veldlega. Hún er bundin við hjóla- stól en er þó fær í flestan sjó og lætur fötlun sína ekki stöðva sig. Árið 2005 útskrifaðist hún sem stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og gerði sér lítið fyrir og dúxaði. Nú heimsækir hún hvern framhaldsskólann á fætur öðrum og flytur fyrirlestur sinn „Það eru forréttindi að vera með fötlun“. „Þetta byrjaði allt saman þegar ég var í sálfræði í FG,“ útskýrir Freyja þegar blaðamaður spyr hvernig hugmyndin að verkefninu hafi kviknað. „Við fengum það verkefni að fjalla um einhvern minnihlutahóp og ég ákvað að skrifa um minn málaflokk, þ.e. málefni fatlaðra. Það var erfitt og allt í einu var ég komin með fyrir- lestur sem var ekkert fræðilegur heldur bara mín persónulega reynsla. Ég flutti fyrirlesturinn og fékk góð viðbrögð. Hægt og rólega fóru hjólin að snúast og ég fann að ég vildi gera eitthvað meira úr þessu,“ segir Freyja, sem fór þá af stað með verkefnið sitt. Nú hefur hún heimsótt fjölmarga framhalds- skóla og haldið þar fyrirlestra fyrir fjölmennan hóp kennara og nemenda. „Viðtökurnar hafa verið rosalega góðar og það hefur verið ánægjulegt að sjá hvernig nem- endur opna sig og brjóta sína múra gagnvart mér. Það tel ég skref í rétta átt,“ segir Freyja. Freyja telur að allir hafi ein- hverja fordóma og sjálf segist hún hafa orðið vör við fordóma gagn- vart fötluðum. „Ég upplifi þá sem fáfræði. Ekki sem persónulega árás á mig heldur frekar sem for- dóma gagnvart hópi fatlaðs fólks. Það er ekki talið eðlilegt að við fáum að lifa innihaldsríku og gef- andi lífi. Það er eins og við eigum alltaf að sætta okkur við eitthvað minna út af því að það kostar svo mikinn pening að gera hlutina vel,“ segir Freyja. „Ég horfi á þetta þannig að við séum öll sömul öflugir einstaklingar. Ef fatlaðir eru sýnilegir og fá að taka þátt skila þeir miklu til samfélagsins. Þess vegna vil ég sjá okkur fá að lifa því lífi sem við viljum lifa, úti í samfélaginu en ekki inni á stofn- unum. Meðan fólk með fötlun er ekki hluti af samfélaginu þá er samfélagið ekki heilt,“ segir Freyja. Þótt verkefni Freyju ljúki formlega í apríl ætlar hún að halda ótrauð áfram. Heimasíða verkefn- isins verður áfram opin og Freyja vonast til þess að síðan geti orðið vettvangur fræðslu um þessi mál- efni. „Við erum mjög gjörn á að afsaka fordóma með fáfræði. Ég spyr þá á móti hvort við berum ekki ábyrgð á því að uppfræða fólk. Upplýsingarnar þurfa að vera aðgengilegar og það þarf að hvetja fólk til þess að nýta sér þær,“ segir Freyja. Freyja var að vonum ánægð með viðurkenningu Fréttablaðsins og sagði Samfélagsverðlaunin góðan vettvang til þess að minna á allt það jákvæða sem á sér stað í samfélaginu. „Þetta er mikill heiður fyrir mig og staðfesting á því að ég sé á réttri braut,“ segir Freyja. Fáfræði er engin afsökun Freyja Haraldsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir verkefni sitt „Það eru forréttindi að lifa með fötlun“. Með verkefn- inu veitir hún framhaldsskólanemum sýn inn í reynsluheim fatlaðra og er því verðugur handhafi Samfélagsverðlaunanna í flokknum „Til atlögu gegn fordómum“. Um fjögur hundruð eldri borgarar bíða eftir hjúkrunarrými og um þúsund þurfa að deila herbergi á stofnunum með öðrum. Staðan er algerlega óforsvaran- leg og úr henni þarf að bæta. Stjórnmála- menn hafa þó hingað til aðeins lofað og þeir sem barist hafa fyrir úrbótum hafa þurft að bíða án þess að eygja von um að tekið sé almennilega á málun- um. Þetta segir Reynir Ingibjartsson, formaður AFA – aðstandendafé- lags aldraðra. R eynir hlaut Samfé- lagsverðlaun Frétta- blaðsins sem afhent voru í fyrradag en markmið þeirra er að draga fram nokk- ur af þeim kærleiksverkum sem unnin eru í samfélaginu. Vinna AFA þykir hafa átt stóran þátt í því að vekja athygli á málefnum og stöðu eldri borgara í samfélaginu. Helstu baráttumál félagsins eru að þrýsta á stjórnvöld um úrbætur á kjörum og húsnæði aldraðra. Reynir segir hugmyndina að sam- tökunum hafa kviknað þegar hann var að koma úr heimsókn frá móður sinni sem þá lá á spítala. „Mig langaði að virkja fleiri aðstandendur þannig að við gætum barist saman í stað þess að hver og einn væri að berjast í sínu horni,“ segir Reynir. Hugmyndin, sem fæddist á Hafnarfjarðarveginum eftir heimsóknina, varð svo að alvöru í desember 2005 þegar hann og Margrét Guðmundsdóttir, mynd- listar- og stjórnarmaður í 60+ í Hafnarfirði, stóðu fyrir undir- búningsfundi að stofnun félags- ins. Haustið 2005 hafði Margrét haft frumkvæði að húsnæðis- könnun meðal eldri borgara þar sem óskir þeirra og framtíðarsýn í búsetumálum voru kannaðar. Niðurstöðurnar þóttu athyglis- verðar og leiða skýrt í ljós að fólk vildi gjörbreyttar áherslur. Undirbúningsfundurinn var vel sóttur og undirtektirnar það góðar að ljóst þótti að góður grundvöllur var fyrir því að stofna félag. Kos- inn var undirbúningshópur til að stofna formlegt félag. Afrakstur vinnu hópsins leit svo dagsins ljós 26. mars í fyrra. „Þann dag árið 1968 var fyrsta styrktarfélag aldraðra stofnað sem síðar var breytt í Félag eldri borgara. Dagurinn var því vel við hæfi,“ segir Reynir. Fyrir síðustu sveitarstjórnar- kosningar hélt hópurinn svo fjöl- mennan fund í Háskólabíói í sam- starfi við eldri borgara. Annar fundur var svo haldinn í nóvem- ber þar sem Reynir segir að athygli hafi verið vakin á því að nær helmingur fjármuna Fram- kvæmdasjóðs aldraðra, sem ætlað er að standa straum að kostnaði við uppbyggingu dvalarheimila, rann í önnur verkefni. „Það verður að bæta stöðuna í þessum málum og loforð um það höfum við fengið hjá stjórnmála- mönnum. Hins vegar höfum við ekki séð krónu bætast við umfram það sem kemur úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra og fjár- lögum ríkisins fyrir árið 2007. Loforðin um að eitthvað komi seinna eru næg hjá ríkisstjórn- inni en bráðlega verður komið nýtt Alþingi og ný ríkisstjórn,“ segir Reynir, sem nefnir einnig að hann myndi vilja sjá mun fleiri aðstandendur ganga til liðs við félagið. „Stundum hefur okkur fundist sem hópurinn næði ekki nægilegri athygli. Samfélagsverðlaun Frétta- blaðsins sannfærðu okkur þó um að það er tekið eftir okkur. Það er ómetanlegt vítamín í baráttunni. Í kosningunum í vor vona ég að kosið verði um þessi mál og að næsta ríkisstjórn taki mark á því sem lagt hefur verið á borð í þessum málum. Við höfum lagt fram okkar stefnu og tillögur og væntum þess að stjórnmálaflokkarnir geri þær að sínum í næstu kosningum.“ Vítamín í baráttu fyrir bættum kjörum aldraðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.