Fréttablaðið - 24.02.2007, Qupperneq 4
Þeir sem kaupa PlayStat-
ion 3 leikjatölvuna í forsölu hjá BT eða
Max fá ekki að vita hvað hún mun
kosta. Forsala á vélinni, sem kemur til
landsins 23. næsta mánaðar, hófst í
gær.
Í forsölunni er fólki boðið upp á að
borga inn á vélina, tíu þúsund krónur
hjá Max og fimm þúsund hjá BT, og
borga svo afganginn þegar vélin
kemur. Hver sá afgangur verður geta
forsvarsmenn verslananna hins vegar
ekki sagt til um.
„Þetta finnst mér gjörsamlega út í
hött,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna.
„Þetta er eins og að gefa út óútfyllta
ávísun. Mér finnst fyrir neðan allar
hellur að nýta sér vinsældir vöru til
að láta fólk borga inn á hana án þess að
tilgreina hvað verðið verður þegar upp
er staðið,“ segir hann.
Júlíus Hafstein, verslunarstjóri hjá
Max, segist ekki telja neitt athugavert
við viðskiptahætti af þessu tagi. „Það er
fullt af fólki sátt við þetta. Við getum
ekki fastsett verðið eins og er, en það
verður um 60 til 70 þúsund krónur.“
Gunnar G. Ingvarsson, innkaupa-
stjóri hjá BT, tekur í svipaðan streng og
áætlar verðið á bilinu 60 og 65 þúsund
krónur. Gengissveiflur valdi því að ekki
sé hægt að segja nákvæmar til um
lokaverð. „Þeir sem eru ósáttir kaupa
vélina þá bara ekki í forsölu.“
Verjendur tveggja ákærðu í Baugsmálinu
skoruðu í gær á settan ríkissaksóknara í málinu að
falla frá átjánda ákærulið ákærunnar, þar sem kær-
andi í málinu hafi gefið skýringar sem samrýmist
ekki ákæru.
Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, lagði fram bókun frá honum og Jakobi R. Möll-
er, verjanda Tryggva Jónssonar, þar sem þessi áskor-
un kom fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þá var
fram haldið aðalmeðferð í þeim hluta Baugsmálsins
sem nú er fyrir dómi.
Í þeim ákærulið sem um ræðir eru þeir Jón Ásgeir
og Tryggvi ákærðir fyrir fjárdrátt með því að hafa
dregið fé úr Baugi til Fjárfestingafélagsins Gaums,
fjölskyldufyrirtækis Jóns Ásgeirs, til að fjármagna
eignarhlutdeild Gaums í skemmtibátnum Thee Vik-
ing.
Jón Gerald Sullenberger, einn ákærðu í málinu,
lagði upphaflega fram kæru hjá lögreglu, en hann
gaf skýrslu fyrir dómi á fimmtudag sem sakborning-
ur, og kom fyrir dóminn aftur í gær sem sakborning-
ur og vitni.
Gestur vísaði í orð hans fyrir dómi þar sem hann
sagði að Gaumur hafi aldrei átt hlut í bátum á Flór-
ída, heldur hafi Jón Ásgeir og faðir hans, Jóhannes
Jónsson, átt hluti á móti sér. Með þessu sagði
Gestur botninn fallinn úr ákæruliðnum, og rétt
að skora á sækjanda í málinu að falla frá
honum.
Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkis-
saksóknari í Baugsmálinu, sagði ákæruna
byggja á fleiru en framburði Jóns Geralds og
ekki yrði fallið frá þessum ákærulið.
Gestur spurði Jón Gerald út úr sem vitni í mál-
inu, meðal annars um greiðslur frá Baugi til
Nordica, fyrirtækis Jóns Geralds. Jón Ásgeir og
Tryggvi halda því fram að Baugur hafi innt af
hendi mánaðarlegar greiðslur til Nordica,
en Jón Gerald segir fyrirtækið aðeins
hafa fengið álagningu af vörum.
Gestur benti á að Nordica hafi stefnt
Baugi til að greiða 825 þúsund dali hér á landi vegna
vanefnda á samningum árið 2003. Sú upphæð sé
hærri en Nordica geti mögulega hafa haft út úr við-
skiptum við Baug á árunum 1999 til 2002, sem hafi
ekki getað verið hærri en um 600 þúsund dalir. Jón
Gerald segir upphæðina sem stefnt var vegna hafa
verið reiknaða út af endurskoðanda sínum.
Gestur sagði ekki heila brú í tölunum frá Jóni Ger-
aldi, og svaraði Jón Gerald því til að þeir yrðu þá
bara sammála um að vera ósammála.
Vilja að fallið verði
frá einum ákærulið
Verjendur tveggja ákærðu í Baugsmálinu telja forsendur fyrir einum ákærulið
brostnar eftir vitnisburð Jóns Geralds Sullenbergers. Sækjandi segist ekki ætla
að falla frá ákæruliðnum. Jón Gerald segir Gaum aldrei hafa átt bát með sér.
BAUGS M Á L I Ð
Talið er að yfir
tuttugu manns hafi látist í mesta
eldsvoða í sögu Lettlands þegar
eldur braust út á heimili fyrir
aldraða og hreyfihamlaða í
Alsunga í Lettlandi skömmu eftir
miðnætti aðfaranótt föstudags.
Yfirvöld greindu upphaflega
frá því að 26 af 97 íbúum hefðu
látist en eftir að einn þeirra
fannst síðar um nóttina með
alvarleg meiðsli er vonast til þess
að fleiri sem hafi flúið eigi eftir
að gefa sig fram.
Fyrstu rannsóknir benda til
þess að kviknað hafi í bygging-
unni, sem er á þremur hæðum, út
frá rafmagni sem ekki hafði verið
almennilega gengið frá.
Mesti eldsvoði í
sögu Lettlands
Lögreglan rannsak-
ar nauðgunartilraun sem átti sér
stað í skjóli nætur á Vesturgöt-
unni í Reykjavík fyrr í mánuðin-
um. Karlmaður réðst á þrítuga
stúlku í porti á Vesturgötu, barði
hana og reyndi að nauðga henni.
Maður sem varð vitni að árásinni
kom í veg fyrir ódæðið.
Að sögn Björgvins Björgvins-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns
hjá Lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu, er lögreglan að kanna
þær vísbendingar sem hún hefur.
Lögreglan rannsakar meðal
annars upptökur úr eftirlits-
myndavélum í miðborginni
umrædda nótt.
Reyndi að
nauðga stúlku