Fréttablaðið - 24.02.2007, Side 24
FÆDDUST ÞENNAN DAG
Leikritið um Ronju ræningja-
dóttur verður sýnt í fimm-
tugasta sinn í Borgarleikhús-
inu á morgun. Leikritið var
frumsýnt í febrúar í fyrra og
hefur notið mikilla vinsælda
hjá yngstu kynslóðinni, enda
um klassískt barnaævintýri
eftir Astrid Lindgren að
ræða. Á því ári sem liðið er
frá frumsýningu hafa yfir 25
þúsund manns séð leikritið.
Nú eru aðeins fimm sýningar
eftir og fer því hver að
verða síðastur að sjá Ronju
og Birki glíma við rassálfa,
skógarnornir og aðrar hætt-
ur í Matthíasarskógi.
Arnbjörg Hlíf Vals-
dóttir leikur Ronju og
Friðrik Friðriksson leikur
vin hennar Birki Borkason.
Foreldra Ronju, þau Matthí-
as og Lovísu, leika Þórhallur
Sigurðsson (Laddi) og Sóley
Elíasdóttir. Eggert Þorleifs-
son leikur öldunginn Skalla-
Pétur.
Með önnur hlutverk fara:
Björn Ingi Hilmarsson, Davíð
Guðbrandsson, Ellert A. Ingi-
mundarson, Guðmundur
Ólafsson, Gunnar Hansson,
Halldór Gylfason, Hildigunn-
ur Þráinsdóttir, Hinrik Þór
Svavarsson, Kjartan Bjarg-
mundsson, Orri Huginn
Ágústsson, Tryggvi Gunnars-
son, Valur Freyr Einarsson
og Þór Tulinius.
Félagar í Karlakórnum Þresti bjóða til
afmælisveislu í Hafnarfirði í dag í til-
efni 95 ára afmælis kórsins. Félags-
skapur söngmanna sem kenna sig við
fuglinn tónelska var stofnaður af Frið-
riki Bjarnasyni tónskáldi árið 1912.
Geir A. Guðsteinsson, kórfélagi og sér-
legur kynningafulltrúi hópsins, útskýr-
ir að kórinn hafi starfað sleitulaust
síðan, auðvitað með mismiklum þunga
en ávallt hafi Þrestir staðið fyrir tón-
leikahaldi.
„Menn ganga til liðs við karlakóra
fyrst og fremst vegna þess að þeim
finnst gaman að syngja en það er ekki
síður félagsskapurinn sem skiptir máli
því í kórastarfi eignast maður góðan
hóp af vinum,“ segir Geir og bætir við
að sumir félaganna taki að sér að
syngja við athafnir og afmæli auk þess
að skemmta sér saman.
Rúmlega fimmtíu félagar eru í
kórnum nú og hafa margir félaganna
starfað innan vébanda hans um árabil.
„Þetta er kokkteill,“ segir Geir sposk-
ur og útskýrir að innan hópsins séu
bæði yngri söngmenn og „gamlir jaxl-
ar“. „Ég held að sá elsti hafi byrjað 17
ára gamall en hann er nú að verða sex-
tugur. Faðir hans starfaði annan eins
tíma með kórnum svo það liggur við að
sá félagi hafi tengst starfsemi kórsins
frá upphafi.“ Það er einnig til marks
um kraftinn og fjörið í kórnum að fyrr-
greindur félagi hefur ekki tekið sér frí
frá kórastarfinu allan þennan tíma.
Kórinn hefur staðið af sér sveiflur
og breytingar í tónlist allt frá gömlu
ættjarðarlögunum í gegnum revíutím-
ann, stórhljómsveitartímann, rokkið,
bítlana, diskóið og fönkið. Geir áréttar
þó að kórinn hafi aldrei staðið í vegi
fyrir þeim sveiflum heldur aðlagast
þeim eftir megni og tekið þær í sína
þjónustu.
Þrestirnir eru fyrir löngu orðnir
hluti af menningarlífinu í Hafnarfirði
og hafa gert ófá strandhögg víðar um
land og á erlendri grund. Fyrsta hljóm-
plata kórsins kom út árið 1975 og nú er
von á nýjum diski, Þrestir 95, þar sem
kórinn flytur ljúfar dægurlagaperlur.
Stjórnandi Þrasta er Jón Kristinn
Cortez, en píanóleikari Jónas Þórir.
Afmælinu verður fagnað í Hásölum,
félagsheimili Hafnarfjarðarkirkju, í
dag kl. 17 en þangað eru allir velkomn-
ir og ókeypis aðgangur. „Þetta verða
fremur óhefðbundnir tónleikar,“
útskýrir Geir en kórinn mun að sönnu
taka lagið og bjóða gömlum félögum
og öðrum söngglöðum gestum að
syngja með.
Karl og Díana opinbera trúlofun sína
„Að velja eina persónu
væri eins og að gera upp
á milli barnanna minna,
en sumar persónur hafa
heimtað meira af mér
en aðrar, eins og til
dæmis Galdra-Loftur,
Faust og Ödipus
konungur, svo einhverjar
séu nefndar.“
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ólafur Theodórsson
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn
27. febrúar kl. 14.00.
Júlía Baldursdóttir
Baldur Ólafsson Auður Líndal Sigmarsdóttir
Ellen Ólafsdóttir Guðjón Theódórsson
Ragnhildur Í. Ólafsdóttir Birgir Guðmundsson
og barnabörn.
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ingibjörg Þóra
Sigurðardóttir
Furugerði 1, (áður Stangarholti 12)
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Margrét Sigurðardóttir Sigurður Steingrímsson
Sigurbjörn Sigurðsson Hafdís Leifsdóttir
Sigríður Ó. Þ. Sigurðardóttir Hafsteinn Sæmundsson
Sigurbjörn Pálsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu og veittu okkur ómetan-
legan stuðning við andlát og útför
Hjörleifs H. Jóhannssonar
Guð blessi ykkur öll.
Þorgerður Sveinbjarnardóttir
Helga Hjörleifsdóttir
Sveinbjörn Hjörleifsson Elín Björk Unnarsdóttir
Björgvin Hjörleifsson Preeya Kempornyib
Arnþór Hjörleifsson Ásrún Ingvadóttir
Sigurbjörn Hjörleifsson Kanokwan Srichaimun
Einar Hjörleifsson Lilja Guðnadóttir
Hjördís H. Hjörleifsdóttir Sigursteinn Magnússon
og barnabörn.
Ronja sýnd í 50. skipti