Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 33
Guðrún Axelsdóttir kynnti sér
margt af því besta sem Mar-
okkó hefur upp á að bjóða.
Fáir Íslendingar hafa fengið jafn
gott tækifæri til að kynnast Mar-
okkó og Guðrún Axelsdóttir bók-
haldari, sem dvaldi þar hjá mar-
okkóskri fjölskyldu í september
síðastliðnum.
„Ég ákvað að heimsækja fjöl-
skyldu marokkóskrar vinkonu
minnar,“ segir Guðrún, sem lagði
ein sín liðs af stað í þessa ævin-
týraferð. Guðrún dvaldi í tíu daga
hjá fjölskyldunni, sem býr í Khem-
isset, 15.000 manna bæ sem er
miðja vegu milli höfuðborgarinnar
Rabat og konungsborgarinnar Fes.
„Bærinn er nánast ósnortinn af
ferðamönnum. Mikið er um litlar
verslanir á jarðhæðum húsa, sem
ná út á gangstéttir. Sömuleiðis
saumastofur, þar sem karlar sitja
fyrir utan og sauma „jellaba“ í
stórum stíl, sem eru þægilegar
yfirhafnir. Þarna eru líka markað-
ir, meðal annars matvörumarkað-
ur þar sem heimsins bestu ávextir
fást.“
Heimilisfólkið, sem er vel stætt,
bar Guðrúnu á höndum sér og
unglingarnir á heimilinu kynntu
hana stoltir fyrir vinum sínum.
„Ég sé íslenska unglinga nú ekki
leika þann leik eftir,“ segir hún og
hlær. „Bæjarbúar voru elskulegir
og settu ekki fyrir sig þótt ég tal-
aði enga arabíska og litla frönsku,
sem eru aðaltungumálin. Mér tókst
samt að gera mig skiljanlega með
því að blanda saman ensku og
þeirri litlu frönsku sem ég kann.“
Fyrstu vikuna bilaði eina farar-
tæki fjölskyldunnar, gamall Mer-
cedez Benz sem telst stöðutákn í
Marokkó, og Guðrún ferðaðist því
ekki eins mikið og hún vildi í byrj-
un. Hún bætti sér það upp næstu
viku þegar íslensk vinkona hennar
kom til Marokkó. „Við fórum til
Fes daginn eftir, þar sem við keypt-
um teppi á markaði í gamla
borgarhlutanum Medina. Þar er
hægt að fá nánast allt sem hugur-
inn girnist, svo sem teppi, keram-
ik, leðurinniskó, bækur og krydd.“
Að tíu dögum liðnum sögðu
Guðrún og vinkona hennar skilið
við fjölskylduna og héldu ferðinni
til Marrakech, sem er í Suður-
Marokkó og þekkt undir heitinu
„perla suðursins“. „Við tókum lest
til Marrakech þar sem við vorum
í þrjá daga. Okkur fannst það
feykinóg, bæði vegna þess hve
aðgangsharðir sölumennirnir á
mörkuðunum eru og svo er
umferðarmenningin heldur ekki
hliðholl gangandi vegfarendum.“
Vinkonunum líkaði betur í Essa-
ouira, lítilli borg við Atlatnshafið,
sem er stundum kölluð„bláhvíta
borgin“. „Ströndin í Essaouira er
yndisleg, hrein og laus við ágang
ferðamanna,“ útskýrir Guðrún.
„Fiskibátarnir koma þar inn með
afla um eftirmiðdaginn, svo hægt
er að velja sér ferskan fisk. Matur-
inn er ljúffengur og menningarlíf
stendur í blóma.
Fátt jafnast á við útsýnið yfir
hafið og nágrenni og engin furða
að fegurð Essaouira skuli hafa
dregið að sér listamenn og rithöf-
unda í gegnum tíðina.“
Ferðalaginu lauk í Essaouira en
Guðrún segist ákveðin í að ferðast
aftur til Marokkó þegar tækifæri
gefst. Hún muni þá heimsækja
borgina aftur og fjölskylduna í
Khemisset, sem hún segist oft
hugsa til.
Bláhvít draumaborg
Fljótasiglingar - Klettaklifur
Hestasýningar - Gönguferðir - Gisting
Veitingar - Ratleikir - Hestaleiga
Hafið samband og við gerum tilboð
Verið velkomin! bakkaflot@islandia.is
Sími 453-8245 & 899-8245 • Ferðaþjónustan Bakkaflöt
560 Varmahlíð, Skagafirði – www.bakkaflot.is
Skólahópar!
FERÐATÖSKUR
í bláu og svörtu. Léttar og ódýrar
Beutybox kr. 2.600.-
75 cm kr. 6.500.-
66 cm kr. 6.000.-
52 cm kr. 5.500.-
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu flugsætun-
um til Austurríkis. Flogið verður í beinu morgunflugi til
Salzburg. Frábær aðstaða fyrir skíðamenn er t.d. í Zell
am See, Flachau eða Lungau. Fjöldi af lyftum og allar
tegundir af brekkum, eftir óskum og getu hvers og eins,
snjóbretti og gönguskíði ekki undanskilin.
Frá kr. 59.990
Vikuferð á hótel Neuepost ****
Innifalið: Flug, skattar og gisting á Hótel
Neuepost í Zell am See í tvíbýli með
morgunmat í 7 nætur.3. mars – 10.
mars. Netverð á mann
Skíði í
Austurríki
3.–10. mars
frá kr. 19.990
Nú eru síðustu forvöð að fara á
skíði til Austurríkis með beinu
morgunflugi. Síðustu sætin
Frá kr. 19.990
Flugsæti báðar leiðir með sköttum, 3.
mars – 10. mars. Netverð á mann.
Frá kr. 39.990
Vikuferð á Pension Moser
Innifalið: Flug, skattar og gisting á
Pension í SchÜttdorf í tvíbýli með
morgunmat í 7 nætur.3. mars – 10.
mars. Netverð á mann