Fréttablaðið - 24.02.2007, Síða 75
Mikið úrval af
fermingarfötum
stærðir 8-16
KRINGLAN I SMÁRALIND I DEBENHAMS
www.oasis-stores.com
Nei, það er heldur betur ekki hlýtt hérna á Íslandinu okkar, ekki núna að
minnsta kosti þó maður sjái það alltaf fyrir sér sem hlýtt..!. Og grænt er
það nú sannarlega ekki á göngupöllum tískuhúsanna ytra. Hvort sem litið
er til Parísar eða New York, London eða Mílanó þá ráða ríkjum í tískuhús-
unum framtíðarlegir málmar, plast og silfurlitaðir mini-kjólar svo fátt eitt
sé nefnt. Þannig leit framtíðarsýn Nicolas Ghesquiere út þegar hann
kynnti fatalínu sína fyrir vor/sumar 2007 hjá Balenciaga. Sú allra
töffaralegasta sem litið hefur dagsins ljós síðustu ár. Svartir, glansandi
jakkar, buxur úr málmi, kjólar gerðir eingöngu úr koparvír og til að toppa
útlitið var hár módelanna sleikt aftur og augun römmuð inn í risastór,
vísindaleg skyggnisólgleraugu. Þær litu mekanískt út, líkt og þær myndu
hrökkva úr hnélið þá og þegar og útbúnaðurinn svo þétt sniðinn að þær
gengu með hnykkjum um pallinn í þvinguðum og kynlausum róbótastíl.
Kannski er það vegna aukinnar hræðslu við framtíðina, kannski vegna
aukinna hryðjuverkaógna og heimsstríða en á síðastliðnum árum hafa
tískuhönnuðir helst leitað huggunar í rómantík og sjarma liðinna tíma. Nú
eru tímarnir aðrir. Líf okkar snýst meir og meir um nýja tækni, gervi-
hnattaútsendingar, internet-tækni, sjónhimnuskanna...
Hussein Chalayan markaði tímamót með einstökum hætti í sýningu
sinni „One Hundred And Eleven“ (fyrir vor/sumar ‘07) þar sem hann tók
fyrir hætti í klæðaburði og síbreytilega tískusilúettuna allt frá árinu 1895
og upp úr (hundraðogellefu ár). Chalayan réði til sín tæknilega sérfræð-
inga sem fengu það verkefni að breyta fimm kjólum í „lifandi“ flíkur sem
virtust anda. Þessu takmarki var náð með þar til gerðum agnarlitlum
víravirkjum og mótorum sem voru saumaðir í pilsfald og korselett.
Agnarlítil mistök og vélaverkið hefði stöðvast.
Hvernig sjá tískuhönnuðir fyrir sér raunverulega tísku í framtíðinni?
Að mati Husseins Chalayan snýst framtíðin um möguleika. „Á þessu stigi
málsins getum við aðeins fengið nýjar hugmyndir út frá vísindum og
tækni.“ Hönnuðurinn Alber Ebaz er hins vegar ekki tilbúinn til að líta mál-
efnið svo björtum augum: „Það er ekkert sem kemur í kjölfar framtíðar-
stefnunnar. Hvert fer maður þegar maður maður hefur náð til tunglsins?“
Já, því má velta fyrir sér endalaust. Ég sé ekki betur en að spennandi
verði að fylgjast með þróuninni í tískuheiminum á komandi árum. Og
vorið sem kannski er ekki alltaf grænt og hlýtt verður þó alltaf gott. Vorið
góða...
Vorið góða grænt og hlýtt...???
Veikust fyrir prjónafötum
Einstaka sinnum kemst
eitthvað í tísku sem gerir
líf okkar svo mikið þægi-
legra…
En hvað getur maður kallað þessa
æðislega sætu kjóla sem svo þægi-
legt er að smeygja sér í?
Kyrtla? Skokka? Mussur? Ég
held það gildi allt saman ágætlega,
við getum kallað þá raul þess
vegna. Aðalatriðið er að rúmgóður
og fallegur skokkur getur bæði
falið ýmsar af okkar syndum og í
leiðinni undirstrikað það sem við
eigum að undirstrika. Það falleg-
asta við þessa litlu kjóla er að
maður getur verið í þeim við næst-
um ALLT. Gallabuxur, svartar og
litaðar leggings, rifflaðar sokka-
buxur…
Og maður vaknar bara á morgn-
ana, smeygir þeim yfir höfuðið og
þarf ekki að spá í neitt frekar allan
daginn. Dásamlegt. Hér eru nokkr-
ir ofsa sætir sem
þið dömur
ættuð að gefa
auga …