Fréttablaðið - 24.02.2007, Blaðsíða 80
Brasilíski knattspyrnu-
maðurinn Ronaldinho hefur
fengið mikla gagnrýni eftir 1-2
tap Barcelona á heimavelli gegn
Liverpool í Meistaradeildinni og
þá hafa spjót spænsku blaðanna
einkum beinst að líkamlegu
atgervi og formi kappans.
Spænska blaðið AS gekk lengst
og birti tvær myndir af Ronald-
inho, aðra frá nóvember 2003 og
hina frá því eftir leikinn á móti
Liverpool. Þar sést mikill munur á
Brasilíumanninum sem ætti að
rökstyðja þær kenningar að ljúfa
lífið utan vallar sé farið að hafa
áhrif á leik hans. Sprengikraftur-
inn og hraðinn eru á undanhaldi og
við því má Barcelona-liðið ekki.
Læknalið Barcelona hefur ekkert
viljað tjá sig um í hvernig formi
hann er en myndirnar umræddu
segja meira en mörg orð.
Ronaldinho
hefur fitnað
Það er mikið undir í dag
þegar tvö af neðstu liðum ensku
úrvalsdeildarinnar, West Ham og
Charlton, mætast. Leikurinn er
mjög áhugaverður fyrir margra
hluta sakir.
Stjóri West Ham er Alan
Curbishley, sem gerði hreint ótrú-
lega hluti fyrir Charlton á sínum
tíma en eftir að hann yfirgaf félag-
ið hefur hvorki gengið né rekið
hjá því. Stjóri Charlton í dag er
svo Alan Pardew, sem var stjóri
hjá West Ham þegar Björgólfur
Guðmundsson keypti félagið og
gerði Eggert Magnússon að stjórn-
arformanni.
Eggert lýsti yfir miklum stuðn-
ingi við Pardew er hann kom til
félagsins en rak hann skömmu
síðar og réð Curbishley í hans
stað. Eggert hefur alveg óumbeð-
inn hraunað yfir Pardew í bresku
blöðunum upp á síðkastið og sagði
meðal annars að Pardew hefði
misst stuðning leikmanna liðsins.
Pardew hefur lítinn áhuga á að ríf-
ast við Eggert.
„Ef ég rekst á herra Magnús-
son þá mun ég vera mjög kurteis.
Það þýðir samt ekki að ég sé sam-
mála ákvörðun hans um að reka
mig á sínum tíma,“ sagði Pardew
við breska blaðið Mirror. „Ég var
ekki sammála þá og verð það
aldrei. Engu að síður ber ég engan
kala til Eggerts.“
Pardew segir að það verði ekki
skrítið að ganga til leiks gegn sínu
gamla félagi. Hann sé stjóri Charl-
ton í dag og þess vegna hugsi hann
um lítið annað.
Pardew neitar að rífast við Eggert
Fabio Capello, þjálfari
spænska stórliðsins Real Madrid,
stundar það þessa dagana að kalla
inn leikmenn sem hann hefur haft
út í kuldanum í vetur. Um síðustu
helgi tók hann inn David Beckham
með góðum árangri og nú er ítalski
framherjinn Antonio Cassano
kominn inn í hópinn fyrir leikinn á
móti Atletico Madrid í kvöld.
Capello lét hafa eftir sér að
Cassano væri líkt og Beckham
búinn að æfa vel og hefði auk
þess misst nokkur kíló. Cassano
hefur ekki spilað með liðinu síðan
í tapleik á móti Getafe í október.
Cassano inn úr
kuldanum
Fyrirliði Chelsea og
enska landsliðsins, John Terry,
verður ekki með Chelsea gegn
Arsenal í úrslitum deildarbikars-
ins á morgun vegna meiðsla.
Óttast var í fyrstu að hann yrði
frá í nokkrar vikur vegna
ökklameiðslanna sem hann hlaut
gegn Porto en nú er ljóst að hann
verður að öllum líkindum klár í
slaginn gegn Portsmouth um
næstu helgi.
„Ég held að hann muni spila
gegn Portsmouth. Ég geng út frá
því,“ sagði Jose Mourinho,
knattspyrnustjóri Chelsea.
Verður klár um
næstu helgi