Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.02.2007, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 25.02.2007, Qupperneq 66
F resturinn sem Banda- ríkin gáfu Írönum til að hætta kjarnorkufram- leiðslu er liðinn en hér er ég enn þá, les fréttir á netinu, segi fólki og þau hlæja. Hér er enginn að spá í pólitískan fréttaleik Vesturlanda. Þegar ég sé fréttamyndir á CNN frá Teheran finnst mér eins og ég sé að horfa á bíó. Sömu myndirnar af öskrandi mönnum í einhverjum mótmælum, kannski 1% af þjóðinni. Þetta eru myndirn- ar sem Vesturlönd fá að sjá. Raun- veruleikinn hér á götum borgar- innar er allt annar. Ég hef heyrt fólk segja að helsta vandamál Íran sé landafræði. Íran fæddist á vitlausum stað á landa- kortinu. Það er ekki hægt að líkja Íran við nágrannalöndin Írak eða Afganistan. Teheran er reyndar engin venjuleg borg og andstæð- urnar miklar, hér er bæði fólk sem er jafnvel vestrænna en ég sjálf og fólk sem les Kóraninn. En það sem helst einkennir Íran er fólkið. Hvergi hef ég hitt fólk sem er jafn hjálpsamt, vingjarnlegt og gestrisið. Það þarf ákveðna sjálfs- bjargarvið- leitni til að lifa af í þessari borg og Teher- an er ekki endi- lega auðveldasta borgin til að ferð- ast til einn. Hún er mjög óútreiknanleg en fyrir þá sem hafa gaman af því að týnast í stórborg- um þá er Teheran staðurinn. Leigubílakerfið hérna er til dæmis mjög sniðugt ef maður veit hvað maður er að gera en mjög flókið þegar maður er algjörlega týndur. Hver sem er getur verið leigubíll þannig að maður stendur á götuhorni og galar inn um bílrúð- una nafnið á götunni sem maður er að fara á. Ef bíllinn er á þeirri leið þá hoppar maður inn og það er algengt að bíllinn fyllist á leiðinni þannig að maður er alltaf í bíl með ókunnugum og oft eru farþegarnir fleiri en sætin gera ráð fyrir. Bílferð í Teheran getur verið ágætis rússibanaferð. Hér er mjög þétt, brjáluð traffík og bílstjórarn- ir reyna stöðugt að finna leið til að komast aðeins hraðar. Umferðar- reglur eru af skornum skammti og akreinar ekki til að hafa áhyggjur af. Hringtorg eru algeng en það sem væri kannski fimm akgreina hringtorg annars staðar er ein stór kaos í Teheran. Bílarnir eru líka flestir eldgamlir og vel beyglaðir á alla kanta. Til að komast yfir götu, sem flestar eru með nokkrum akgrein- um í báðar áttir og stöðugri umferð, þarf einfaldlega að demba sér af stað og vona að bílarnir hægi á sér. Það er mikil list að velja rétta augnablikið og núna æði ég af stað eins og ekkert sé sjálfsagð- ara. Oft er reyndar gripið í hönd- ina á mér og ég leidd yfir götur. Þannig er fólkið í Íran, alltaf að passa mig. Ég gleymi aldrei konunni sem ég spurði til vegar einn daginn, hún skildi enga ensku og gat ekk- ert talað við mig. Hún skildi hins vegar hvert ég var að fara, tók í höndina á mér og leiddi mig af stað. Þegar ég reyndi að segja henni að ég myndi koma mér á leiðarenda sjálf hlustaði hún ekki. Næsta sem ég vissi sátum við tvær í leigubíl. Klukkutíma og tveimur leigubílaferðum síðar, sem ég mátti alls ekki borga fyrir, var hún ennþá með mér og skildi ekki við mig fyrr en ég var komin heim. Ég gleymi heldur aldrei þegar ég var að spóka mig um í verslun- armiðstöð í ofurfínu hverfi með ofurfínum búðum. Í einni búðinni þar sem viðskiptavinirnir voru uppteknir við að skoða og máta Prada og Dolce&Gabbana, tók verslunareigandinn rándýra tösku úr einni hillunni, setti í poka og rétti mér. Ég skildi ekki hvað var að gerast og neitaði að taka við henni. Hann sagði mér að þegar ég færi heim þá vildi hann að ég ætti þessa minningu frá Íran, að ég gæti labbað inn í búð og gengið út með gjöf. Og svo margþakkaði hann mér fyrir að koma til Íran. Núna sit ég hér með forláta bleika tösku þakta bleikum gim- steinum sem ég mun líklega aldrei nota en með minningu um fólkið í Íran sem ég mun aldrei gleyma. Þegar ég hitti fólk hér er mér oftar en ekki þakkað fyrir að heim- sækja Íran. En eftir þessa heim- sókn á ég svo margt að þakka þessu fólki, ekki hvað síst fyrir að breyta því hvernig ég hugsa um heiminn, fólk, stríð og frið. hannabjork@gmail.com Leidd um götur borgarinnar „Tungumálin eru eins og tjöld úr guðvef. Þau hefur hönd drottins ofið úr þráðum málfærisins og þanið út yfir þjóðirnar, svo að hvert þjóðfélag er út af fyrir sig, undir sínu tungumálstjaldi, eins og heim- ilisfólk undir húsþaki; allt, sem þar er talað og ráðgert inni, er hulinn helgidómur fyrir öllum út í frá. Og þetta tjald, svo mikið og margbrot- ið sem það er, getur maðurinn þó flutt með sér, hvert á land sem hann fer, og falið það undir tungu- rótum sínum; og hann getur varla skilið það við sig, því það er eins og gróið við góm hans.“ Þannig skrifar Sveinbjörn Hall- grímsson í Þjóðólf 1849. Ef til vill finnst einhverjum mál hans nokk- uð hátíðlegt og um of blandið þjóð- erniskennd, en óneitanlega er vel að orði komist. Ég bjó til nýtt orð á liðnu sumri, reyndar alveg ósjálfrátt. Ég var að tala í síma við Vigdísi Finnboga- dóttur, og hún sagðist þá hafa verið að hugsa til mín. Ég þakkaði henni fyrir það og kvaðst hafa hugboð um að ég ætti hjá henni hugsæti. „Já,“ svaraði hún, „og í það sest enginn nema þú.“ Ég kannaði málið hjá Guðrúnu Kvaran hjá Orðabók háskólans og fékk staðfest að orðið hugsæti væri ekki á skrá. Svona geta ný orð fæðst og mér þykir vænt um að eiga mér hugsæti hjá góðum vini. var sagt í Ríkisútvarpinu nýlega, og finnst mér það skýrt dæmi um óþarft stofnanamál. Aldrei verður of oft tekið fram að íslenska er ekki nafnorðamál eins og enska, og fer einatt illa á því að hrúga eða skeyta saman nafnorðum. Eða búa til nafnorð að óþörfu. Mér finnst ljótt að tala um „sýnileika fyrir- tækja“, hvað svo sem átt er við með því. Má ekki alveg eins segja að fyrirtækin „sjáist betur“, „verði sýnilegri“ eða „meira áberandi“? Orðið sýnileiki er að vísu í orða- bókum, en orð af þessu tagi ber að fara með af gát. heyrist æ oftar. Hvernig gráða er stærðargráða? Orðið gráða er haft um mælieiningu fyrir hita, horn, lengd og breidd jarðar í mælingu milli póla, en einnig um lærdóms- stig, sbr. prófgráða. En gráða mælir ekki stærð – og stærðar- gráða bætir engu við stærð og á engan rétt á sér. Trúlega enn ein áhrif úr ensku þar sem sagt er to a certain degree. Slíkt er ekki hægt að þýða beint á íslensku, þar sem hugsun er öðru vísi. Galdurinn við þýðingu er að lesa málsgrein á erlendu máli og spyrja sig síðan hvernig hliðstæða hugsun megi orða á íslensku. Ekki þýða orð af orði. Í Skagafirði norður sendi Jakob Pétursson Páli Sigurðssyni í Varmahlíð eitt sinn þessa dýru braghendu: Þeystir á hesti, hresstir gesti, hreinlundaður, úti á verstu vegum glaður varstu bestur ökumaður. Vilji menn senda mér brag- hendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@vortex.is Hljóðfæri hugans Leystu krossgátuna! þú gætir eignast The Devil wears Prada á DVD! Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.