Fréttablaðið - 25.02.2007, Page 78

Fréttablaðið - 25.02.2007, Page 78
„Já, við hljótum að vera alveg sjálf- kjörnir vinnustaðagrínarar. Atvinnumenn í faginu. Það hlýtur að vera,“ segir Jóhannes Ásbjörns- son, betur þekktur sem Jói í dúett- inum Simmi og Jói. Þekktastir eru þeir fyrir að kynna hið íslenska Idol auk þess að hafa verið saman með sjónvarps- og útvarpsþætti. Sigmar Vilhjálmsson hefur nú söðlað um. Hann hefur sagt upp störfum hjá 365 en þar hefur hann sinnt ýmsum störfum, síðast var hann sölustjóri áskriftardeildar. Landsbankinn bauð í Simma sem mun taka við stjórn nýrrar deildar sem sér um vildarkerfi nýrrar kortadeildar. Og hver situr ekki á fleti fyrir í Landsbankanum annar en Jói sem starfar á markaðssviði bankans. „Þetta er magnað og leggst rosa- lega vel í mig. Heldur betur,“ segir Jói og harðneitar því að einhver samkeppni muni ríkja þeirra á milli innan bankans, hvorki fag- lega og né sem helsti djókarinn innan bankans. „Við erum að vinna að ólíkum hlutum innan bankans,“ segir Jói sem nú liggur fárveikur í flensu heima hjá sér. Og verður því ekki til að taka á móti vini sínum þá er hann kemur til starfa. Af er sem áður var. Í samtali við Fréttablaðið er Simmi allt í einu orðinn mjög gætinn hvaða orð hann velur í samtali við blaða- mann. „Sem bankamaður neita ég að svara meiru nema í návist lög- fræðings,“ segir hann eftir að hafa útskýrt hvaða hlutverki hann mun gegna innan bankans. Tiltölulega stuttur aðdragandi er að þessum umskiptum, var ákveðið á föstudaginn og aðspurð- ur harðneitar Simmi að tjá sig um hvort bankinn borgi ekki miklu betur en fjölmiðlafyrirtækið. En samkvæmt heimildum blaðsins var það Landsbankinn sem bauð Simma starfið þannig að gera má ráð fyrir því að hann þiggi betri laun innan bankakerfisins en í aug- lýsingabauki fyrir sjónvarp – þó enginn svelti þar. „Já, þetta er húmorískt,“ segir Simmi en þeir Jói hafa starfað saman með hléum nú hátt í tíu ár. „Hann var einmitt að segja við mig starfsmannastjórinn að það yrði líklega skrifað meira um þetta en þegar Fréttablaðið greindi frá því að konur okkar væru nú báðar flugfreyjur.“ Og það er laukrétt hjá Simma og starfsmannastjóranum. Helga Guðrún Grímsdóttir, kona Eurovision-stjörnunnar Eiríks Haukssonar, mun fylgja manni sínum á lokakeppnina í Helsinki í maí. Þetta verður ekki í fyrsta skipt- ið sem Helga Guðrún styður við bakið á Eiríki því hún var honum einnig til halds og trausts þegar hann söng Gleðibankann í Bergen árið 1986 og þegar hann söng fyrir Noregs hönd í Róm fimm árum síðar. „Það er ægilega gaman að þessu. Þetta er eins og að vera í miðju ævintýri,“ segir Helga Guð- rún um Eurovision-keppnina. „Það var svo rosalega vel staðið að báðum þessum keppnum, sérstak- lega í Bergen. Það er alltaf mikið um að vera, líka fyrir stuðnings- mennina. Maður fær að upplifa svo margt og það er alltaf mjög gaman að kynnast nýju fólki,“ segir hún. Helga Guðrún segist hingað til ekki hafa gefið Eiríki sérstök ráð áður en hann hefur stigið á svið frammi fyrir milljónum áhorf- enda. „Ég veit að hann gefur allt sem hann á og svo er bara að reyna að ná að slappa aðeins af áður en stundin rennur upp svo það verði ekki mikið stress í gangi.“ Hvað varðar fataval Eiríks, segist Helga vissulega segja sitt álit en ekkert meira en það. „Það eru aðrir sem koma þar við sögu en ég er ekki til í að horfa á hvað sem er,“ segir hún og hlær. Helga fer til Helsinki Lára Sveinsdóttir stígur á stóra svið Þjóðleikhússins í fyrsta skipti í kvöld þegar hún bregður sér í hlutverk Heiðu í Sitji Guðs englar. Oft er talað um stóra stund í lífi leikara þegar þeir afreka þetta og Lára segist vissulega vera með hnút í maganum. Ekki þó vegna þess að þetta sé stóra sviðið held- ur vegna þess að það snúist. Hún segist því meira finna fyrir fiðr- ingi heldur en einhverri hræðslu. „Ég hef aldrei leikið á svona snún- ingssviði og fæ bara eitt rennsli áður en stóra stundin rennur upp,“ segir Lára en hún tekur við hlut- verkinu af Brynhildi Guðjónsdótt- ur sem farin er til London og tekur þátt í uppfærslunni á Pétri Gaut í Barbican Center í leikstjórn Baltasars Kormáks. Lára hlakkar þó fyrst og fremst til kvöldsins enda er verkið skemmtilegt og mikið af skemmti- legu fólki í kringum hana. „Þetta er náttúrlega Þjóðleikhúsið og því stór stund að stíga á þetta svið en þetta verður allt í lagi,“ segir Lára. „Þetta er eitthvað sem alla leikara dreymir um og eitthvað sem allir verða að prófa,“ bætir hún við. Lára hefur hingað til aðallega leikið í barnaleikritum en kom einnig fyrir í litlu hlutverki í kvik- myndinni Börn auk þess sem hún hefur skemmt sjónvarpsáhorfend- um Stöðvar 2 í gamanþáttunum Stelpunum. Og nóg er af verk- efnum í nánustu framtíð og ber þar hæst frumraun Björns Hlyns Haraldssonar í leik- stjórastólnum í sumar. „En meira get ég ekki sagt um það, þetta verður allt að koma í ljós.“ Stór áfangi að stíga á stóra sviðið Bróðirinn ekki skírður eftir æskuástinni „Mér hefði fundist merkilegra ef Halla Vilhjálms hefði verið með mér, þá hefði ég farið með það í blöðin. Jude Law er flottur gaur, en hann hefur alveg verið með fleiri stelpum. Svo fannst mér þetta klámvesen bara bjánalegt, af hverju kemur það okkur við?“ Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000 www.terranova.is · Akureyri sími: 461 1099 Hafnarfjörður sími: 510 9500

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.