Fréttablaðið - 25.02.2007, Page 80

Fréttablaðið - 25.02.2007, Page 80
Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil www.expressferdir.is Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express EXPRESS FERÐIR Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100 PÁSKAFERÐ TIL LONDON 4.–8. apríl London og nágrenni verða gerð góð skil í fjölbreyttri og skemmtilegri páskaferð. Farið verður um víðan völl; Skoðunarferðir til Oxford og Bath sem er „ítölskust“ allra breskra borga, hið stórmerka Stonehenge kannað og farið um slóðir skáldkonunnar Jane Austen. Í London verður margt brallað, þ.á.m. farið á söngleikina Mama Mia og Billy Elliot. Innifalið: Flug með sköttum, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4 stjörnu hóteli ásamt morgunverði, skoðunarferðir um London og til Bath og Stonehenge. Íslensk fararstjórn. Verð á mann í tvíbýli 69.900 kr. ÞRIGGJA DAGA BORGARFERÐ TIL LONDON 17.–19. mars Heimsborgin London hefur allt sem hugurinn girnist, fjölskrúðugt leikhús- og tónlistarlíf, æsispennandi fótboltaleiki, endalaust af söfnum og veitingastöðum frá öllum heims- hornum. Við mælum t.d. sérstaklega með Masala Zone: Frábær matur, sjóðheit stemning og umfram allt ódýr. Svo finna þeir sem hafa gaman af því að versla alveg örugglega það sem þeir leita að í London. Dvalið verður á 3–4 stjörnu hóteli miðsvæðis í borginni. Skelltu þér í vorstemninguna í London, þú hefur gott af því! Innifalið: Flug með sköttum og gisting í tvær nætur á 3-4 stjörnu hóteli með morgunverði Verð á mann í tvíbýli 29.900 kr. Ferðir við allra hæfi! Kynntu þér úrvalið á www.expressferdir.is ARSENAL–WEST HAM 6.–8. apríl Hlutskipti grannfélaganna Arsenal og West Ham hafa verið ólík á tímabilinu. Arsenal eru í 4. sæti Ensku úrvalsdeildarinnar og eru í 16 liða úrslitum í Meistarakeppninni. Örlög West Ham hafa verið önnur í vetur og geysihörð botnbaráttan heldur áfram. En það er mál manna að Eggert og félagar eigi mikið inni sem gæti bjargað þeim, nú þegar mest á reynir. Þegar þessi lið mætast er ávallt hart barist, eins og sæmir í góðum grannaslag. Innifalið: Flug með sköttum, tvær nætur á hóteli með morgunverði, miðsvæðis í London og miði á leikinn. Verð á mann í tvíbýli 74.900 kr. SKÍÐAFERÐ TIL DAVOS Í SVISS Davos í Sviss er eitt besta skíðasvæði Alpanna sem teygir sig yfir nær 300 km svæði. Í boði eru fimm stórkostleg skíðasvæði og hægt er að skíða á milli Davos og hins víðfræga skíða- bæjar Klosters sem liggur í yfir 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli. Þaðan er hægt að komast í 3.000 metra hæð. Davos er passlega stór bær, vinalegur og fallegur. Þar eru fjölmörg veitinga- hús, fínar verslanir, barir og næturklúbbar. Innifalið: Flug til Friedrichshafen ásamt sköttum, gisting á 3 stjörnu hóteli í Davos, hálft fæði, morgunverður og kvöldverður. Verð á mann í tvíbýli í viku 79.900 kr. Flug báðar lei ðir frá 20.505 kr. með sköttum og gj öldum. Fljúgð u ódýrt til Friedrichshafe n með Iceland Express og skelltu þér á s kíði á bestu sk íðasvæðum Evrópu – Lech , Ischgl, Saint Anton o.fl. Dúndurtilboð til Friedrichshafe n! PÁSKAFERÐ! Ég játa að sem mikill unnandi alls þess sem franskt er, til dæmis fallaxarinnar og Tour de France, hlakka ég óður og upp- vægur til að berja augum allt það nýjasta og kúltíveraðasta frá Frans á listahátíðinni Pourquoi pas?, sem útleggst víst á íslensku sem Hvers vegna ekki? Ekki minnkaði eftirvæntingin þegar ég frétti að frá þeim sömu og færðu okkur Peugeot-inn væri komið ELDORGELIÐ. eru í eðli sínu dramatísk hljóðfæri, að ekki sé minnst á þegar búið er að bæta eldi við þau. Ég sá fyrir mér organista: hávax- inn mann og magran, fölan á brá með úfið, hvítt hár, sveipaðan svartri skikkju með háum kraga, sitjandi við risastórt nótnaborð. Í hvert skipti sem hann ýtti á nótu spýttust eldtungurnar úr pípum hljóðfærisins og lýstu upp nætur- himininn. Þetta varð ég að sjá. að láta andann koma yfir mig fyrir tónleikana gætti ég mín á að hita upp á viðeigandi hátt; gæddi mér á því besta sem frönsk vín- og ostagerð hefur upp á að bjóða, fletti í Flaubert og Proust og hlust- aði á Gainsbourg og Piaf áður en ég skundaði á Austurvöll. Þar varð mér fljótlega ljóst að ég hafði verið haldinn nokkrum ranghug- myndum. Pípur orgelsins voru vissulega stórar og mikla díaból- íska fúttið sem ég hafði séð fyrir mér var víðsfjarri. Organistinn var frekar rindilslegur og í stað svörtu skikkjunnar var hann í rauðri flíspeysu. mínar glæddust hins vegar á ný þegar organistinn dró fram flotta eldvörpu sem hann ætl- aði augljóslega að nota til að ylja „hinni þýsku drottningu hljóð- færanna“ og kalla fram úr henni undurfagra tóna. Þetta yrði aldeilis magnaður konsert. Loksins bar hann eld að hörpu sinni og ég beið eftir að tónahnossið skylli á hlust- um mér. Verk eftir hvern skyldi hann spila: Bach? Frank? Langlais? Mér var dillað. stund leið án þess að nokkuð gerðist. Mér var orðið kalt og farinn að ókyrrast þegar djúp druna gerði vart við sig. Ég sneri mér að stórvöxnum herra- manni við hliðina á mér, horfði á hann ásakandi og beið þess að hann bæðist afsökunar en áttaði mig þá á að gnýrinn kom frá orgelinu. Annar lágur og mónótónískur dynur fylgdi í kjölfarið og þannig gekk þetta koll af kolli næsta hálftímann. Var þetta allt og sumt? Hafði ég þrælað mér í gegnum kasúldið osts- tykki, rauðvínsbelju og ótal blaðsíð- ur af magdalenukökulýsingum fyrir þetta? Pourquoi? Hvers vegna ekki?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.